Læknablaðið - 01.02.2022, Page 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 63
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Magnús Haraldsson
Ólafur Árni Sveinsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
2000
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Póstdreifing
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
„Allir voru á því að þetta væri augljóslega það sem þyrfti að gera og enginn skoraðist undan,“
segir framkvæmdastjóri Klíníkurinnar um þá ákvörðun að loka stórum hluta hennar tímabundið
og stökkva af stað til bjargar vegna erfiðrar stöðu á Landspítala
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Strax og starfsfólkið kemur til baka verður
skorið upp á öllum stofum,“ segir Sigurður
Ingibergur Björnsson, framkvæmdastjóri Klíník-
urinnar. Um 20 starfsmenn hafi farið til starfa á
spítalanum í þrjár vikur í kjölfar símtals á gaml-
ársdag frá Maríu Heimisdóttur, forstjóra Sjúkra-
trygginga.
Sigurður segir að endurraða þurfi 50-60
skurðdögum vegna fjarveru starfsfólksins sem
snúi til baka þann 31. janúar. „Þetta er mikið
rask og við verðum fram í apríl að ná í skottið á
okkur.“
Orkuhúsið sendi einnig 7 starfsmenn á spítal-
ann, segir Dagný Jónsdóttir framkvæmdastjóri.
„Við sýnum samfélagslega ábyrgð,“ segir hún
og að samið hafi verið til tveggja vikna. „Svo
fylgjumst við með stöðunni dag frá degi. Við
vitum ekki hvert framhaldið verður,” sagði hún
við Læknablaðið þann 19. janúar. Á vef Sjúkra-
trygginga kom fram þann 20. janúar að einnig
hefði verið samið við Lækningu í Lágmúla. Sam-
tals hefði þá verið samið um 30 manna liðstyrk.
Sigurður segir að ákvörðunin hafi verið
tekin þar sem allt stefndi í óefni á spítalanum.
Sú erfiða staða var staðfest á upplýsingafundi
Almannavarna þann 12. janúar. Alma D. Möller
landlæknir sagði þá stöðuna alvarlegri en áður
hefði sést á Landspítala. Þá lágu 45 inni vegna
COVID.
Sigurður bendir á að starfsmenn Klíníkurinn-
ar hafi farið í samstarf við Landspítala í haust til
að vinna niður biðlista. Hann segir að það hafi
vissulega verið nær þeirra kjarnastarfsemi að fá
sjúklingana á Klíníkina fremur en að starfsmenn
hverfi til starfa á Landspítala.
„Heilbrigðiskerfið fær mest út úr því að við
vinnum eftir okkar verkferlum frekar en að
slíta þá í sundur og dreifa starfsfólki á deildir
sem það þekkir ekki,“ segir hann. „En þetta var
neyðarástand. Það gerir þetta enginn að gamni
sínu.“ Röskunin sé mikil hjá sjúklingum þeirra.
Sigurður Ingibergur Björnsson stýrir
Klíníkinni í Ármúla í húsakynnum þar
sem áður var Hótel Ísland. Mynd/Védís
Skáru niður
starfsemina fyrir
Landspítala
„Við gerum stórar aðgerðir og fólk liggur inni.
Það er búið að gera ráðstafanir; taka sér frí, jafn-
vel panta flug utan af landi. Þetta eru ekki léttar
ákvarðanir en þegar heilbrigðisyfirvöld meta
það þannig að kalla verði inn fleira fólk vegna
neyðarástands þá skorumst við á Klíníkinni ekki
undan.“
Í krísum sé þetta nauðsynlegt. „Við erum eitt
heilbrigðiskerfi. Verkefni þurfa að geta flætt á
milli,“ segir hann. „Vandi heilbrigðiskerfisins er
síbreytilegur og vaxandi. Samvinna er það sem
virkar.“
Sigurður segir mikilvægt að spítalinn for-
gangsraði verkefnum svo hann geti tekið við
bráðatilfellum og gert flóknar aðgerðir. „Hann
verður að geta tekið á því mikilvægasta, flókn-
asta og ófyrirséða. Það er búið að keyra nýtingu
Landspítalans allt of hátt.“ Sjálfstætt starfandi
stofur gætu tekið meira að sér „og á skaplegu
verði“.
Skynsamlegt að skera hér á landi
Semja þarf við ríkið um að fólk sem hefur
beðið of lengi eftir aðgerð geti fengið hana
niðurgreidda hjá sjálfstætt starfandi stöðvum,
segir Sigurður Ingibergur Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Klíníkurinnar í Ármúla.
HEI Medical Travel auglýsti þjónustu
CPH Privathospital í Fréttablaðinu um miðjan
janúar með þeim orðum að fólk eigi rétt á
endurgreiðslu kostnaðar og fyrir ferðalagið
hjá Sjúkratryggingum Íslands komi það í lið-
skipti þar eftir þriggja mánaða bið hér heima.
Ákvæðið sé hluti samningsins um Evrópska
efnahagsvæðið.
„Það hlýtur að vera skynsamlegt að réttindin
gildi líka hér á landi,“ segir Sigurður: „Við get-
um gert þetta ódýrar og með minna raski fyrir
sjúklinginn.“