Læknablaðið - 01.02.2022, Side 4
64 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
71
Stefán Júlíus Aðalsteinsson, Jón Steinar Jónsson, Hannes Hrafnkelsson,
Guðmundur Þorgeirsson, Emil Lárus Sigurðsson
Meðferð háþrýstings í heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu
Miðað við innlendar og erlendar algengistölur eru enn margir háþrýstingssjúklingar
ógreindir á Íslandi. Ljóst er að enn má gera betur í greiningu sjúkdómsins. Ekki getur talist
ásættanlegt að færri en helmingur sjúklinga nái meðferðarmarkmiðum. Umbætur eru því
mikilvægar og aðkallandi enda til mikils að vinna.
79
Karl Skírnisson
Hringormar í fólki á Íslandi
árin 2004-2020
Á tímabilinu 2004-2020 bárust hringormar frá
18 manns til rannsókna að Tilraunastöðinni á
Keldum. Í nokkrum tilvikum mættu viðkomandi á
staðinn með orminn í glasi, sumir fengu heimilis-
lækni sinn til að senda lirfuna að Keldum en flestar lirfurnar bárust eftir að hafa fyrst ver-
ið sendar á sýkla- og veirufræðideild Landspítala þar sem greiningar á iðrasníkjudýrum
hafa farið fram eftir að þær voru fluttar frá Keldum um síðustu aldamót.
85
Ólafur Árni Sveinsson, Dagný Ásgeirsdóttir, Ingvar H. Ólafsson
Nýgengi stokkasega á Íslandi frá 2008 til 2020
Í þessari rannsókn var faraldsfræði stokkasega rannsökuð ásamt þekktum áhættu-
þáttum, einkennum, greiningu, meðferð og horfum. Stór hluti þeirra sem greindust með
stokkasega á rannsóknartímabilinu voru konur yngri en 50 ára. Algengasta einkennið var
höfuðverkur og algengasti áhættuþátturinn var notkun getnaðarvarnarlyfja. Voru allir
sjúklingarnir settir á blóðþynnandi meðferð og flestir náðu góðum bata.
F R Æ Ð I G R E I N A R
2. tölublað · 108. árgangur · 2022
67
Haraldur Briem
Lísa í Undralandi og
andstaða við
bólusetningar
Upphaf nútíma andstöðu
við bólusetningar er þekkt.
Reynt er að klæða andstöð-
una í vísindalegan búning
til að gera hana trúverðuga.
Megininntak andstöðunnar
byggir á að öll bóluefni séu
óörugg og gagnslaus, ef ekki
skaðleg. Frægt er dæmið
um falskar getgátur um að
bóluefni gegn mislingum geti
valdið einhverfu.
L E I Ð A R A R
Rétt rúmlega 32.000 börn hér á landi á aldr-
inum 5 til 11 ára hafa átt þess kost að vera
bólusett gegn kórónuveirunni sem veldur
COVID-19. „Það hefur gengið mjög vel. Fyrir
árganga 2010-2015 er þátttakan allt upp
í 72% í sumum umdæmum en fyrir allan
hópinn 2010-2016 yfir allt landið er hún um
49%,“ segir Kamilla Sigríður Jósefsdóttir,
barnasmitsjúkdómalæknir hjá Embætti
landlæknis.
Kamilla segir að þátttakan sé samkvæmt
væntingum embættisins. „Svo tínast áfram
inn börn sem losna úr sóttkví eða eru komin
þrjá mánuði frá COVID-smiti,“ segir hún um
framhaldið. Læknablaðið leit við í Höllinni
um miðjan janúar þegar bólusetningarnar
stóðu sem hæst.
Á FORSÍÐU
Börnin bólusett í Laugardalshöll69
Gunnar Þór Gunnarsson
Háþrýstingur, þögli
morðinginn. Betur má
ef duga skal
Háþrýstingur er langoft-
ast einkennalaus þar til
líffæraskemmdir og fylgi-
kvillar koma fram. Þess
vegna viðurnefnið þögli
morðinginn. Vandinn er
því að finna, meðhöndla
og fylgjast með einkenna-
lausu ástandi hjá mörgum
í langan tíma.
Mynd á kápu og mynd hér fyrir ofan/
Þorkell Þorkelsson