Læknablaðið - 01.02.2022, Qupperneq 13
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 73
R A N N S Ó K N
um breytum ef við átti. Í nokkrum tilvikum var notuð kí-kvaðrat
greining og er það þá tekið fram. Notað var ANOVA þegar meðal-
tal fyrir samfelldar breytur var metið.
Við gildi blóðþrýstingsmælinga voru notuð meðferðarmark-
mið samkvæmt leiðbeiningum NICE,7 sem er <140/90 mmHg.
Athygli er vakin á því að árin 2010 og 2014 voru önnur meðferðar-
markmið fyrir sykursjúka (<140/90 mmHg) heldur en árið 2019
(<130/80 mmHg). Fyrir hvern einstakling var tekin síðasta skráða
blóðþrýstingsmæling á árunum 2010, 2014 og 2019. Ef ekki var til
skráð blóðþrýstingsmæling fyrir tiltekin almanaksár var skráð að
mælingu vantaði. Blóðþrýstingsgildi voru fengin úr sérstökum
skrán ingardálkum fyrir blóðþrýsting. Ekki var unnt að ná í gildi
sem aðeins voru skráð í sjúkraskrárnótu.
Leyfi frá vísindanefnd Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins/
Háskóla Íslands fékkst 8. janúar 2020. Vísindasiðanefnd gaf leyfi
fyrir framkvæmd rannsóknarinnar 28. janúar 2020 (VSN-20-021)
og Persónuvernd gerði ekki athugasemd við að vísindasiðanefnd
afgreiddi umsóknina.
Tafla III. Almennt um rannsóknarþýðið.
2010
N (%)
2014
N (%)
2019
N (%)
p-gildi
Fjöldi með háþrýstingsgreiningu 25.873 31.395 40.787 -
Fjöldi í þýði 152.294 160.461 181.354
Fjöldi með
háþrýstingsgreiningu/1000 íbúa
169,9
195,7
224,9 <0,001*
Karlar
11.387
(44,0)
14.374
(45,8)
19.529
(47,9)
<0,001**
Konur
14.486
(56,0)
17.021
(54,2)
21.259
(52,1)
<0,001**
Meðalaldur [staðalfrávik] 63,6±14,4 64,3±14,3 64,9±14,1 <0,001***
Með blóðþrýstingsmælingu á árinu
13.355
(51,6)
12.948
(41,2)
19.533
(47,9)
<0,001**
* Kí-kvaðrat próf, 2010 á móti 2014 og 2014 á móti 2019, **Tvíkosta aðhvarfsgreining, ***ANOVA
Niðurstöður
Rannsóknarþýði
Eins og fram kemur í töflu III hefur fjöldi einstaklinga með há-
þrýstingsgreiningu aukist á rannsóknartímabilinu. Hlutfall kynja
hefur einnig breyst, hlutfall karla með greininguna háþrýstingur
hefur hækkað og hlutfall kvenna að sama skapi lækkað. Þá eru
hlutfallslega færri með skráða blóðþrýstingsmælingu og meðal-
aldur þeirra sem hafa greininguna hefur hækkað á tímabilinu en
á sama tíma hefur meðalaldur þýðisins einnig hækkað. Aldurs-
dreifing rannsóknarþýðis er á mynd 1. Hlutfall þeirra sem eru með
skráða blóðþrýstingsmælingu er misjöfn milli ára en er rúmlega
51% árið 2010.
Lyfjameðferð við háþrýstingi
Af þeim 25.873 sem voru með greindan háþrýsting árið 2010 voru
63,4% á lyfjameðferð. Árið 2019 hafði hlutfall sjúklinga á lyfjameð-
Mynd 1. Aldursdreifing rannsóknarþýðis.
Súlur sýna samanlagðan fjölda þeirra með
háþrýstingsgreiningu innan hvers aldursbils
á árunumum 2010, 2014 og 2019.