Læknablaðið - 01.02.2022, Side 15
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 75
R A N N S Ó K N
kvenna var 139,7 mmHg. Hjá körlum var HBÞ 83,5 mmHg að
meðaltali en 81,8 mmHg hjá konum. Frá 2010 hefur SBÞ þróast
úr 138,9±16,4 mmHg í 139,6±16,8 mmHg og 141,5±17,9 mmHg árin
2014 og 2019, sem er marktæk hækkun (p<0,001). HBÞ var 82,3±9,9
mmHg árið 2010, 82,8±10,4 mmHg árið 2014 og 82,6±10,1 mmHg
árið 2019 og hækkaði á tímabilinu (p=0,015).
Yfir allt rannsóknartímabilið náðu 44,1% meðferðarmarkmið-
um en aðeins var um helmingur með skráða blóðþrýstingsmæl-
ingu eins og sést í töflu III. Á mynd 5 má sjá hlutfall þeirra sem
náðu meðferðarmarkmiðum eftir undirhópum.
Af þeim sem höfðu bæði greininguna háþrýstingur og
sykursýki höfðu 2/3 fengið ávísað einhverju blóðþrýstingslækk-
andi lyfi. Þegar háþrýstingur og sykursýki fara saman er skýr
ábending fyrir notkun lyfs með verkun á RAAS. Af þeim sem
voru með sykursýki og á einhverju háþrýstingslyfi fengu 73,3%
lyf með verkun á RAAS, annaðhvort sem eitt lyf eða sem hluta af
fjöllyfjameðferð. Ekki varð marktæk breyting á notkun lyfja með
verkun á RAAS hjá körlum með sykursýki (p=,627) en hjá konum
með sykursýki jókst notkun (p=,009) um 0,52 prst á ári (95% ÖB:
0,13-0,94 prst).
Heilsugæslustöðvar
Hlutfall þeirra sem ná meðferðarmarkmiðum var skoðað eftir
heilsugæslustöðvum fyrir árið 2019. Rúmlega 41% háþrýstings-
sjúklinga náðu meðferðarmarkmiðum það ár. Stöðvar númer 2 og
19 skera sig hins vegar nokkuð úr með um þriðjung sjúklinga sem
nær markmiðum.
Umræður
Samkvæmt þessari rannsókn fjölgaði sjúklingum með skráða há-
þrýstingsgreiningu í heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu á árabil-
inu 2010-2019. Ekki er samt hægt að fullyrða að háþrýstingur á
Íslandi sé algengari þar sem rannsóknin er afturskyggn og tekur
ekki tillit til þátta eins og skráningar eða skimunar, sem gæti hafa
breyst. Vonir standa til að skráning batni, ekki síst eftir að skrán-
ing á blóðþrýsingsgildum var tekin inn í greiðslulíkanið sem not-
að er til að ákvarða rekstrarfé til heilsugæslustöðva (innleitt 2017).
Á rannsóknartímabilinu hafa bæði SBÞ og HBÞ hækkað að
meðaltali sem er ótvírætt áhyggjuefni. Þá ná færri sjúklingar
meðferðarmarkmiðum. Hafa verður í huga að á tímabilinu voru
meðferðarmarkmið fyrir blóðþrýsting lækkuð fyrir sjúklinga
Mynd 4. Hlutfall lyfjaflokka af meðferð árið 2019 þegar
beitt var einum lyfjaflokki.
Mynd 5. Hlutfall þeirra sem náðu meðferðarmarkmiðum
í mismunandi hópum. Hlutfall sykursjúkra sýnt sam-
kvæmt meðferðarleiðbeiningum NICE sem voru í gildi
hverju sinni. Lengst til hægri er hlutfall sykursjúkra sem
var undir 140/90 mmHg á hverjum tíma.