Læknablaðið - 01.02.2022, Qupperneq 21
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 81
Algengast var að þeir sem smituðust af lifandi hringormi teldu
sig hafa fengið lirfuna í heimahúsi (8 tilvik), þrír sögðust hafa smit-
ast við að borða fisk á veitingastað, einn taldi sig hafa smitast í
sérstakri sushi-veislu og maður sem stundaði það að dýfa hráum
bitum af nýveiddum fiski í soya-sósu á vinnustað (hafnarsvæði)
taldi víst að sú hegðan hefði leitt til smitunar. Í þeim tveimur til-
vikum sem enn eru ótalin fannst lirfa í barni sem móðirin áleit
hafa smitast á barnaheimili. Svo sérkennilega vill til að hér er um
sama barnið að ræða. Árið 2015 fann móðirin spriklandi A. simp-
lex-lirfu við bleyjuskipti á barninu sem þá var 20 mánaða gamalt.
Hálfu öðru ári síðar fann hún enn á ný hringormslirfu, nú var þar
á ferðinni P. decipiens. Lirfan fannst í ælu eins og greint var frá hér
að framan.
Þorskur og steinbítur voru oftast nefnd sem uppspretta hring-
ormasmits, samtals í helmingi tilvikanna (9 af 18) (tafla I, tafla II).
Þau tilvik gætu þó hafa verið fleiri því í fjórum tilvikum var fisk-
tegundin sem lirfan kom úr ókunn.
Einn einstaklingur fann lirfu í skötusel rétt áður en bita með
lirfunni í var stungið upp í munn. Annar nefndi skarkola eða sushi
sem mögulega smituppsprettu, hann hafði neytt beggja þessara
fæðutegunda þegar að hann áleit sig hafa smitast. Sá þriðji taldi sig
hafa smitast í veislu þar sem eingöngu sushi var á boðstólum en
ekki var tilgreint hvort sú veisla hafði verið haldin á veitingastað
eða í heimahúsi. Í einu tilviki leyndist dauð Anisakis-lirfa í soðinni
ýsu sem verið var að mata barn á en barnið spýtti lirfunni út úr
sér (sjá ofar). Í einu tilvikanna fannst lifandi lirfa í „fullelduðum“
plokkfiskrétti sem keyptur var tilbúinn í plastbakka í fiskbúð og
hann eldaður samkvæmt leiðbeiningum í örbylgjuofni. Ekki er
vitað hvaða fiskur hafði verið notaður sem hráefni í réttinn (tafla
I, tafla II).
Misjafnt var hvort og þá hversu mikið fólk fann fyrir smiti af
völdum P. decipiens-lirfanna. Algengast var að fólk nefndi ógleði,
sumir nefndu að hafa stundum kúgast meðan að lirfan hélt sig í
maganum, aðrir seldu ítrekað upp. Einn nefndi sultartilfinningu
R A N N S Ó K N
Tafla I. Pseudoterraniva decipiens og Anisakis simplex-lirfur sem fundust lifandi í fólki á tímabilinu 2004-2020 ásamt upplýsingum um
þýðið, lirfurnar, smittíma og kringumstæður.
Nr (#) Ár Aldur (ár) Þroskastig
Lengd
(mm)
Smittími
(dagar)
Hvar fannst
lirfan?
Hvar varð
smitun?
Líkleg
smituppspretta
Pseudoterranova decipiens
1 2004 29 L4 34 6 Í koki Í heimahúsi Steinbítur
2 2005 31 L4 33 5 Í koki Í heimahúsi Steinbítur
3 2006 76 L4 47 9 Í koki Í heimahúsi Þorsklifur
4 2006 58 L4 30 2 Við endaþarm Í heimahúsi Sushi
5 2008 53 L4 - ~ 5 Í koki Hafnarsvæði Óþekkt fisktegund
6 2011 30 L4 - 5 Í koki Í heimahúsi Skarkoli/sushi
7 2015 16 L3 44 1 Í koki Í heimahúsi Þorskur
8 2016 3 L3 - 3 Í ælu Á barnaheimili Óþekkt fisktegund
9 2017 66 L4 40 4 Í koki Á veitingastað Þorskur
10 2019 84 L4 43 ~ 4 Í koki Á veitingastað Þorskur
11 2019 40 L3 33 5 Í koki Í heimahúsi Þorskur
12 2020 16 L3 35 ~ 4 Í koki Í heimahúsi Óþekkt fisktegund
13 2020 63 L4 31 5 Í koki Á veitingastað Þorskur/steinbítur
Anisakis simplex
14 2015 2 L3 17 3 Í bleyju Á barnaheimili Óþekkt fisktegund
Tafla II. Pseudoterraniva decipiens og Anisakis simplex-lirfur sem sendar voru á tímabilinu
2006-2020 til rannsókna að Keldum eftir að hafa fundist í fiski eða fiskafurðum rétt áður þeim
skyldi kyngt, ásamt upplýsingum um þýðið, lirfurnar og kringumstæður.
Nr. Ár
Aldur
(ár)
Þroskastig
Lengd
(mm)
Nánari
upplýsingar
Pseudoterranova decipiens
15 2006 - L3 32 Lifandi lirfa í léttsteiktum skötusel
16 2019 - L3 37 Lifandi lirfa í elduðum plokkfiskrétti
17 2020 2 L3 42 Lifandi lirfa úr vanelduðum þorski
Anisakis simplex
18 2008 1 L3 - Dauð, upprúlluð lirfa úr soðinni ýsu