Læknablaðið - 01.02.2022, Síða 26
86 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
R A N N S Ó K N
of Diseases and Related Conditions 10, ICD 10). Upplýsinga var
aflað úr Sögukerfi og Heilsugátt. Eftirfarandi gögnum var safnað:
greiningarár, aldur við greiningu, kyn, áhættuþættir fyrir stokka-
sega (ættgengar segahneigðir, áunnar segahneigðir, meðganga og
sængurlega, blóðsjúkdómar, bólgusjúkdómar, krabbamein, sýk-
ingar, lyf og aðrir áhættuþættir), einkenni (höfuðverkur, ógleði
og uppköst, flog (staðbundin, störu- eða alflog), skert meðvit-
und, sjóntruflanir og staðbundin taugaeinkenni (helftarlömun,
málstol, verkstol)), rannsóknarniðurstöður úr myndrannsóknum
(segulómun, tölvusneiðmynd), meðferð (lyfjagjöf, lengd meðferð-
ar, sjúkrahúsinnlögn, gjörgæsluinnlögn, skurðaðgerðir og lengd
sjúkrahúsvistar) og afdrif. Einkenni töldust bráð ef tíminn frá
fyrstu einkennum til greiningar var styttri en 48 klukkustundir,
meðalbráð ef tíminn var á milli 48 klukkustundir og 30 dagar og
langvinn ef tíminn var lengri en 30 dagar. Afdrif sjúklinga voru
miðuð við modified Rankin Scale (mRS) þremur mánuðum eftir
greiningu.
Tölfræðiúrvinnsla
Rannsóknarupplýsingum var safnað í Microsoft Excel® skjal. Ný-
gengi stokkasega var reiknað með notkun mannfjöldatalna frá
Hagstofu Íslands frá 1. júlí hvert ár frá 2008 til 2011 en frá öðrum
ársfjórðungi hvers árs frá 2012 til 2020. Tölfræðileg úrvinnsla gagn-
anna og útreikningar voru framkvæmdir í Rstudio en Microsoft
Word®, Microsoft Excel® og Rstudio voru notuð til að búa til töflur
og gröf. Notað var Fisher tilgátupróf fyrir flokkabreytur en t-próf
fyrir talnabreytur. Tölfræðileg marktækni var miðuð við p<0,05.
Leyfi frá vísindasiðanefnd (VSN-20-185) og vísindarannsóknar-
nefnd Landspítala lágu fyrir við upphaf rannsóknar.
Niðurstöður
Rannsóknarþýðið samanstóð af 40 einstaklingum sem greindust
með stokkasega á árunum 2008-2020 á Landspítala eða Sjúkrahús-
inu á Akureyri. Fjórir reyndust hafa verið ranglega greindir eða
ómögulegt að staðfesta greininguna. Ennfremur voru 5 sjúklingar
erlendir ferðamenn sem greindust með stokkasega meðan á dvöl
þeirra á Íslandi stóð. Þar sem þeir höfðu ekki búsetu á Íslandi og
því ekki hluti af faraldsfræðilegri rannsókn, voru þeir undan-
skildir.
Alls greindist því 31 með stokkasega á árunum 2008–2020,
eða um 1-4 á ári. Meðalfjöldi tilfella var 2,4 á ári. Meðalnýgengi
stokkasega fyrir tímabilið var 0,7 tilfelli á hverja 100.000 íbúa á
ári. Flestar greiningar stokkasega voru árin 2013 og 2018 en bæði
árin voru tilfellin fjögur talsins. Mynd 2 sýnir nýgengi stokkasega
fyrir hverja 100.000 íbúa á ári yfir rannsóknartímabilið, flokkað
eftir kyni.
Tafla I sýnir lýðfræði og einkenni við greiningu. Um 70% úr-
taksins voru konur (n=22). Kynjahlutfallið var 2,4:1. Meðalaldur
var 34,3 ár en miðgildi aldurs var 30 ár, yngsti einstaklingurinn
var 14 ára en sá elsti 63 ára. 74% sjúklinga voru yngri en 50 ára.
Mynd 1. Helstu bláæðar og bláæðastokkar heilans.
Mynd 2. Nýgengi á hverja
100.000 íbúa á ári. Græna línan
sýnir nýgengi innan alls úrtaks-
ins, rauða línan sýnir nýgengi
meðal kvenna og bláa línan
nýgengi meðal karla.