Læknablaðið - 01.02.2022, Page 27
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 87
R A N N S Ó K N
Meðalaldur karla var 39,1 en 32,4 ár meðal kvenna (p=0,3). Einn
sjúklingur hafði fyrri sögu um stokkasega. Fjórir sjúklingar höfðu
fyrri sögu um bláæðasega af annarri gerð en stokkasega.
Algengustu einkennin voru höfuðverkur (87%), staðbundin
taugaeinkenni (39%), flog (36%) og sjóntruflanir (23%). Höfuðverkn-
um fylgdu ógleði og uppköst í um 70% tilfella. Staðbundin tauga-
einkenni voru helftarlömun, málstol, verkstol og breytt snerti skyn
í andliti og/eða útlimum. Fjórir sjúklingar fengu staðbundin flog
(13%), einn fékk störuflog (3%) en 10 fengu alflog (32%). Fimm sjúk-
lingar (16%) voru með skerta meðvitund við komu á bráðamót-
töku. Tími frá upphafi einkenna til staðfestrar greiningar var að
meðaltali 9,2 dagar. Fjórtán manns (45%) höfðu bráð einkenni (<48
klst), 15 (48%) höfðu meðalbráð einkenni (48 klst-30 dagar) og tveir
(6%) höfðu haft langvinn einkenni (>30 dagar) fram að greiningu.
Yfirlit yfir þekkta áhættuþætti fyrir stokkasega má sjá á töflu
II. Fjórir sjúklingar (13%) höfðu engan þekktan áhættuþátt. Fjór-
tán sjúklingar höfðu einn áhættuþátt (45%), 7 höfðu tvo áhættu-
þætti (23%) og 8 höfðu þrjá eða fleiri áhættuþætti (26%). Algengasti
áhættuþátturinn var lyf (65%) og var þar marktækur munur á milli
kynja (p=0,01) þar sem 73% kvenna sem greindust með stokkasega
voru á getnaðarvarnarlyfjum.
Fimm sjúklingar höfðu ættgenga segahneigð (16%). Af þeim
höfðu tveir sjúklingar Factor V Leiden-stökkbreytingu (6%), einn
sjúklingur hafði bæði antithrombín-skort og prótein S-skort (3%)
og tveir höfðu JAK-2-stökkbreytingu (6%). Fimm sjúklingar voru
með undirliggjandi blóðsjúkdóma (16%), þar af voru tveir með
blóðríki (polycythemia vera), einn með blóðflagnafjölgun (essential
thrombocythemia) og tveir með blóðleysi. Fjórir sjúklingar voru
með krabbamein (13%), þar af tveir með bráðahvítblæði (6%). Tveir
Tafla I. Lýðfræði og einkenni stokkasega við greiningu.
Heildarfjöldi
n=31 (%)
Kyn
Konur
n=22 (%)
Karlar
n=9 (%)
Meðalaldur
34,3 ár
(14-63)
32,4 ár
(14-61)
39,1 ár
(16-63)
Tími frá einkennum
til greiningar
<48 klukkustundir 14 (45) 8 (36) 6 (67)
48 klst – 30 dagar 15 (48) 12 (55) 3 (33)
>30 dagar 2 (6) 2 (9) 0 (0)
Einkenni
Höfuðverkur 27 (87) 20 (91) 7 (78)
Staðbundin taugaeinkenni 12 (39) 8 (36) 4 (44)
Flog 11 (36) 7 (32) 4 (44)
Sjóntruflanir 7 (23) 5 (22) 2 (22)
Skert meðvitund 5 (16) 5 (23) 0 (0)
Tafla II. Þekktir áhættuþættir stokkasega.
Heildarfjöldi
n=31 (%)
Kyn
Konur
n=22 (%)
Karlar
n=9 (%)
Enginn þekktur áhættuþáttur 4 (13) 2 (9) 2 (22)
Ættgeng segahneigð 5 (16) 4 (18) 1 (11)
Factor V Leiden-stökkbreyting 2 (6) 1 (5) 1 (11)
Antithrombin-skortur 1 (3) 1 (5) 0 (0)
Prótein S-skortur 1 (3) 1 (5) 0 (0)
JAK-2-stökkbreyting 2 (6) 2 (9) 0 (0)
Áunnin segahneigð 1 (3) 0 (0) 1 (11)
Antifosfólípíð-heilkenni 0 (0) 0 (0) 0 (0)
Blóðríki (polycythemia vera) 2 (6) 1 (5) 1 (11)
Blóðflagnafjölgun
(thrombocythemia)
1 (3) 1 (5) 0 (0)
Járnskortsblóðleysi 2 (6) 2 (9) 0 (0)
Krabbamein 4 (13) 2 (9) 2 (22)
Blóðkrabbamein 2 (6) 0 (0) 2 (22)
Önnur krabbamein 2 (6) 2 (9) 0 (0)
Sýkingar 2 (6) 2 (9) 0 (0)
Innan miðtaugakerfis 0 (0) 0 (0) 0 (0)
Utan miðtaugakerfis 2 (6) 2 (9) 0 (0)
Lyf 20 (65) 18 (82) 2 (22)
Getnaðarvarnarlyf 16 (52) 16 (73) N/A
Barksterar 3 (10) 1 (5) 2 (22)
Krabbameinslyf 3 (10) 1 (5) 2 (22)
Pegaspargasi 2 (6) 0 (0) 2 (22)
Methotrexate 2 (6) 0 (0) 2 (22)
Palbociclib 1 (3) 1 (5) 0 (0)
Fulvestrant 1 (3) 1 (5) 0 (0)
Doxorubicin 1 (3) 0 (0) 1 (11)
Vincristin 1 (3) 0 (0) 1 (11)
Aðrar orsakir 12 (39) 10 (46) 2 (22)
Ofþornun 4 (13) 4 (18) 0 (0)
Höfuðáverkar 3 (10) 2 (9) 1 (11)
Offita 5 (16) 4 (18) 1 (11)