Læknablaðið - 01.02.2022, Qupperneq 28
88 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
R A N N S Ó K N
sjúklingar voru með undirliggjandi sýkingar (6%). Aðrir þekktir
áhættuþættir stokkasega fundust hjá 12 sjúklingum (39%). Fjórir
þeirra voru með ofþornun (13%), þrír voru með höfuðáverka (10%)
og fimm voru með offitu (16%). Enginn sjúklingur var með bólgu-
sjúkdóm og enginn var þungaður eða í sængurlegu.
Greining á stokkasega var staðfest með myndgreiningu hjá öll-
um sjúklingum. Einn sjúklingur fór í segulómun (3%) eingöngu, 13
(42%) fóru í tölvusneiðmynd (TS) og/eða TS bláæðamyndatöku og
17 (55%) einstaklingar fóru bæði í segulómun og tölvusneiðmynd.
Algengasta staðsetningin fyrir stokkasega var í þverstokkum
(transverse sinus) hjá 23 einstaklingum (74%) og efri þykktarstokki
(superior sagittal sinus) hjá 14 manns (45%) (mynd 3). Stokkasegi
kom fram í tveimur eða fleiri bláæðastokkum hjá 18 einstakling-
um (58%). Fjórir sjúklingar sýndu merki um heiladrep við mynd-
greiningu (13%) og 8 sýndu merki um heilablæðingu (26%). Átta
sjúklingar voru bæði með heiladrep og heilablæðingu (26%).
Yfirlit yfir meðferð sjúklinga sést í töflu III. Allir sjúklingarnir
voru settir á blóðþynningarmeðferð, jafnvel þeir sem voru með
heilablæðingu. Algengast var að hefja meðferð á heparíni eða létt-
heparíni og síðan tók við meðferð á warfaríni. Sex sjúklingar fóru
á NOAC-lyf (New Oral Anticoagulants) (19%). Fimmtán sjúklingar
(48%) voru á blóðþynningu í 6 mánuði eða skemur, en 16 voru á
blóðþynningu lengur en 6 mánuði, þar af voru 9 sjúklingar settir á
langtíma- eða ævilanga blóðþynningarmeðferð. Einnig voru allir
Tafla III. Yfirlit yfir meðferð stokkasega.
Heildarfjöldi
n=31 (%)
Kyn
Konur
n=22 (%)
Karlar
n=9 (%)
Lyfjameðferð
Heparín/léttheparín 28 (90) 20 (91) 8 (89)
Warfarín 24 (77) 17 (77) 7 (78)
NOAC-lyfa 6 (19) 3 (14) 3 (33)
Flogaveikilyf 7 (23) 3 (14) 4 (44)
Lengd sjúkrahúsvistar
≤1 mánuður 29 (94) 21 (96) 8 (90)
>1 mánuður 2 (6) 1 (5) 1 (11)
Innlögn á gjörgæsludeild 10 (32) 6 (27) 4 (44)
Skurðaðgerð 3 (10) 2 (9) 1 (11)
aNOAC (New Oral Anticoagulants)
Mynd 3. Kökurit sem sýnir algengustu staðsetningar stokkasega.
Mynd 4. Afdrif einstaklinga með stokkasega þremur mánuðum eftir greiningu sam-
kvæmt modified Rankin-skala.
sjúklingarnir lagðir inn á sjúkrahús. Meðallegutími var 15,3 dagar.
Tíu voru lagðir inn á gjörgæslu í styttri eða lengri tíma (32%). Þrír
sjúklingar (10%) þurftu á skurðaðgerð/-um að halda. Allir þrír
gengust undir bráða kúpuopnun vegna blæðingar. Auk tæmingar
á blæðingu voru framkvæmd brottnám á höfuðkúpubeini til
þrýstingslækkunar (decompressive craniectomy) og hlutabrottnámi á
heilavef (partial lobectomy) til þrýstingslækkunar.
Einn sjúklingur lést vegna hnykiltjaldshaulunar í kjölfar
stokkasega (3,3%). Fimm þróuðu flogaveiki í kjölfar stokkasegans
(16%). Tveir sjúklingar fengu aftur stokkasega (6%) á eftirfylgdar-
tímanum og þrír fengu bláæðasega af annarri gerð (10%). Upp-
lýsingar um afdrif sjúklinga voru til staðar hjá 30 manns. Þremur
mánuðum eftir greiningu mældust 26 sjúklingar með 0-2 á mRS
skalanum (fullur/nær fullur bati (87%)), þrír mældust með 3-5 á
mRS skala (10%) og einn sjúklingur lést (6 á mRS skala) (mynd 4).
Umræða
Á árunum 2008-2020 greindist 31 einstaklingur með staðfestan
stokkasega, á bilinu 1-4 á ári. Meðalnýgengið var 0,7 á hverja
100.000 íbúa á ári. Nýgengið er í samræmi við erlendar rannsókn-
ir, þar sem nýgengið hefur verið á bilinu 0,2-2,0 tilfelli á hverja
100.000 íbúa.3-6,8 Á Íslandi voru konur í miklum meirihluta, um
70%, sem er sambærilegt við aðrar rannsóknir (68-85%).9-12 Meðal-
aldurinn þýðisins var 34,3 ár sem er heldur lægra en í rannsóknum
frá Argentínu, Túnis, Noregi og tveimur stærstu rannsóknum sem
gerðar hafa verið á stokkasega – ISCVT- og VENOST-rannsóknun-
um (37,3-43,2 ár).9-11,13,14 Ekki var marktækur munur á meðalaldri
milli kynja (p=0,3).
Í langflestum rannsóknum um stokkasega hafa yngri kon-
ur verið í meirihluta. Stokkasegi á sér oftar stað hjá ungu fólki
en heilablóðföll vegna blóðsega í heilaslagæðum.15 Sennilegasta
skýringin er sú að stærstu áhættuþættir stokkasega koma fram í
konum á barneignaraldri: getnaðarvarnarlyf, meðganga og sæng-