Læknablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 35
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 95
Þegar gerðar eru tilraunir til umbóta
virðist stundum sem maður hitti fyrir
íhaldssemi á sjálfstýringu. Það kristallast
einna best í frasanum: „Þetta hefur alltaf
verið svona” sem gjarnan er beitt sem
mótrökum gegn því að gera breytingar,
til dæmis á menntun, starfsumhverfi
eða kjaramálum lækna. Umræður um
vaktafyrirkomulag kalla jafnvel fram enn
alræmdari frasa: „Þegar ég var unglækn-
ir”, og eftir fylgja sögur af því þegar við-
komandi vann fjölda sólarhringa samfellt,
mikinn fjölda klukkustunda í viku eða
hafði vinnuskipulag sem í dag myndi telj-
ast í besta falli óeðlilegt.
Þessi viðbrögð eru yfirleitt ekki illa
meint, en máli hvers talar sá er mælir:
„Þetta hefur alltaf verið svona”, og þá sér-
staklega þegar litið er til langs vinnutíma,
ólaunaðrar yfirvinnu og mikillar vakta-
vinnu lækna?
Mikill fjöldi rannsókna hefur sýnt
fram á neikvæð áhrif vaktavinnu á heilsu.
Þeir sem vinna vaktir á mismunandi tím-
um sólarhrings eru til dæmis líklegri til
að fá kransæðasjúkdóma, heilablóðföll,
sykursýki og krabbamein í ristli, brjóstum
eða blöðruhálskirtli. Sömuleiðis eru þeir
líklegri til að látast úr kransæðasjúkdóm-
um, og heildardánartíðni þeirra er hærri.1
Heilsuspillandi áhrif vaktavinnu eru
slík að þegar áhrif lengri vinnutíma á
heilsu eru skoðuð reynist nauðsynlegt að
útiloka eða að minnsta kosti leiðrétta fyrir
því hvort rannsóknir taki líka til vakta-
vinnufólks. Rannsóknir sýna að langur
vinnutími hjá þeim sem ekki vinna vaktir
hefur einnig neikvæð áhrif á heilsu og
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Þetta hefur alltaf verið svona
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin
skoðanir en ekki félagsins.
læknir og formaður Félags almennra lækna
arni.johnsen@gmail.com
Árni Johnsen
stuðlar að þunglyndi, kvíða, svefnrösk-
unum og kransæðasjúkdómum. Þannig
eru þeir sem vinna langan vinnutíma án
vaktavinnu til dæmis 50% líklegri til að fá
kransæðasjúkdóma en aðrir.2
Einn hópur sem sérstaklega ber að
huga að í þessu samhengi eru þungaðar
konur. Þungaðar konur sem vinna vakta-
vinnu eða langar vinnuvikur eru í tölu-
vert aukinni hættu á ýmsum neikvæðum
fæðingarútkomum og heilsubresti á
meðgöngu, til dæmis fósturláti, fyrirbura-
fæðingu, léttburafæðingu og meðgöngu-
eitrun.3
Rannsóknir á áhrifum vinnutíma á
störf lækna eru erfiðar í framkvæmd,
til dæmis er erfitt að gera tvíblinda
slembirannsókn á slíku. Þær rannsóknir
sem hafa verið gerðar sýna að sjúk-
lingar lækna sem vinna langar vaktir
eru líklegri til að verða fyrir mistökum
við heilbrigðis þjónustu (medical errors)
og eru um það bil 50% líklegri til að
látast á sjúkrahúsi, samanborið við sjúk-
linga þeirra lækna sem vinna skemur.
„Ókosturinn við að vinna tvískiptar vakt-
ir er að maður sér bara helming þeirra til-
fella sem koma upp”, er haft eftir kollega.
En ókostirnir fyrir sjúklinga eru aðrir og
alvarlegri.4
Við ættum að breyta hugarfari okkar
gagnvart langri vinnuviku og mikilli
vaktabyrði. Að vinna of mikið er skaðlegt
bæði okkar eigin heilsu og heilsu skjól-
stæðinga okkar. Langar samfelldar vaktir
tíðkuðust hérlendis og eru sumstaðar er-
lendis „normið”, en það eru ekki haldbær
rök fyrir slíku fyrirkomulagi.
Þessi hugarfarsbreyting er þegar hafin,
sér í lagi hjá yngri kynslóð lækna. Okkur
ber að virða val þeirra sem kjósa að vinna
venjulega vinnuviku og hafa hóflega
vaktabyrði. Vissulega þarf að manna heil-
brigðiskerfið nótt sem dag. Störf lækna
ættu að vera skipulögð þannig að langar
vinnuvikur og þung vaktabyrði sé ekki
nauðsynleg, enda slíkt skaðlegt bæði
læknum og sjúklingum. Þegar lækna
vantar til að manna vaktir til skamms
tíma ætti ekki að skylda fólk til vinnu,
heldur beita hvötum. Ef skortur er til
langs tíma ætti að athuga nánar hvernig
sá skortur er til kominn og endurskoða
hvers eðlis þjónustan sem hægt er að
veita er miðað við þá takmörkuðu auðlind
mannauðs sem er til staðar.
Einu sinni var reykt á röntgenfund-
um. Einhvern tímann var því hætt, þó
að það hefði þá „alltaf verið svona”.
Mönnunarvandi heilbrigðiskerfisins verð-
ur ekki leystur með: „Þetta hefur alltaf
verið svona” hugarfari, né heldur með því
að láta lækna vinna sér til heilsubrests.
Heimildir
1. Kecklund G, Axelsson J. Health consequences of shift
work and insufficient sleep. BMJ 2016; 355: i5210.
2. Bannai A, Tamakoshi A. The association between long
working hours and health: a systematic review of
epidemiological evidence. Scand J Work Environ Health
2014; 40: 5-18.
3. Cai C, Vandermeer B, Khurana R, et al. The impact of
occupational shift work and working hours during
pregnancy on health outcomes: a systematic review and
meta-analysis. Am J Obstet Gynecol 2019; 221: 563-76.
4. Leroyer E, Romieu V, Mediouni Z, et al. Extended-
duration hospital shifts, medical errors and patient
mortality. Br J Hosp Med (Lond) 2014; 75: 96-101.
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGO
Félag almennra lækna
Árni Johnsen
Þórdís Þorkelsdóttir
Félag íslenskra heimilislækna
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Oddur Steinarsson
Félag sjúkrahúslækna
Theódór Skúli Sigurðsson
Guðrún Dóra Bjarnadóttir
Læknafélag Reykjavíkur
Guðmundur Örn Guðmundsson
Ingibjörg Kristjánsdóttir
Steinunn Þórðardóttir formaður
Stjórn Læknafélags Íslands