Læknablaðið - 01.02.2022, Qupperneq 37
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 97
lækna. Þeim þótti ekki tekið nógu mikið
mark á áliti sérfræðinga og ekki nógu
mikið leitað til þeirra varðandi útfærslu.“
Vert sé að læra af því máli.
Steinunn hefur verið formaður nýs
Læknaráðs á Landspítala frá janúar 2021.
„Ég hef sagt mig frá formennskunni þar
og Þórunn Jónsdóttir, sérfræðingur í gigt-
lækningum, hefur tekið tímabundið við
formennskunni fram að næsta aðalfundi.“
Hann verði í vor. „Þá verður nýr formaður
kjörinn.“
Mikilvægt sé að félagið og ráðið starfi
vel saman. „Læknaráð þarf að vera öflugt.
Ég beini því hér til núverandi heilbrigð-
isráðherra að nú gæti verið lag að endur-
vekja Læknaráð formlega.“ Það hafi verið
mistök að strika út lækna- og hjúkrun-
arráðið. „Í stað þess að finnast of takmark-
andi að hafa þessi tvö ráð, hvernig væri
þá að endurvekja þau og bæta við ráðum
fleiri heilbrigðisstétta?“ spyr hún.
„Læknaráð er með einn fulltrúa í
fagráðinu sem nú starfar og við höfum
fundið að það er mikilvægt að hafa þessa
grasrót sem Læknaráð er á bakvið hann.
Það er ekki nóg að einn læknir sé full-
trúi í fagráði sem veita á faglegt aðhald
við stjórn spítalans. Hann þarf að hafa
strúktúr á bakvið sig.“ Mikilvægt sé að
aðrir fulltrúar stétta hafi fagráð sér að
baki.
Steinunn er yfirlæknir heilabilunar-
einingar Landspítala og hverfur nú í hálft
starfshlutfall. „Ég er mest á göngudeild
í klínískum störfum mínum og ætla að
halda henni gangandi eins vel og hægt
er og sinna sjúklingunum mínum,“ segir
hún. Hlutverk hennar sem yfirlæknir sé
að gæta þess að vinnubrögðin séu fyrsta
flokks og að nemum sé sinnt.
„Ég mun samræma þetta nýja hlutverki
mínu fyrra og tel mikilvægt að formaður
hafi tengingu við klíník og við starfið á
gólfinu inni á stofnun. Ég ætla sem for-
maður að kynna mér aðrar stofnanir, fara
víða, fara um landið, hitta fólk.“ Mikil-
vægt sé að vera sýnileg. Stjórnendur þurfi
að sjást þar sem atið sé.
Stjórnendur stígi inn á gólfið
„Ég hvet stjórnendur spítalans til að fara
á gólfið, fara á bráðamóttökuna, fara inn
á COVID-göngudeildina, fara sem víðast
um spítalann og hitta fólkið. Fá beint í æð
hvað brennur á því. Ég held að við verð-
um betri í stjórnunarhlutverki ef við erum
í góðum tengslum við fólkið sem vinnur
vinnuna.“ En vill hún þá meina að skort
hafi á þetta hjá stjórnendum spítala?
„Ég get talað út frá Landspítala sem
er landfræðilega víðfeðmur. Hann er út
um allan bæ. Nú er yfirstjórn spítalans
staðsett í Skaftahlíð og ekki í tengslum
við neina klíníska starfsstöð lengur. Það
er því landfræðilegra flóknara en áður að
tengjast fólkinu á gólfinu,“ segir hún.
„Sjálf, hafandi unnið á Landakoti, hefði
ég viljað sjá yfirmenn koma oftar og taka
á okkur púlsinn, sérstaklega í þessum
krefjandi aðstæðum í kringum hópsmitin
þar inni,“ segir Steinunn og vísar í það
þegar COVID-faraldurinn náði til þess
viðkvæma hóps sem þar er og 17 létust í
kjölfar hópsmits í október 2020.
„Okkur fannst við týnd í upphafi
faraldursins og svolítið gleymd en mér
fannst farsóttanefndin taka vel við sér
í seinni bylgjum og styðja við bakið
á okkur.“ Þétt hafi verið skimað eftir
smitið. „Víðtækar endurbætur standa yfir
á Landakoti og verið að reyna að bæta
húsnæðið í samræmi við þá gagnrýni sem
fram kom.“
Bent hafi verið á vankantana árum
og reyndar áratugum saman. „Það á
Steinunn á svölunum á efstu hæðinni í Hlíðasmára 8
sem eru húsakynni Læknafélags Íslands. Morgunroðinn
á þorranum lofar góðu um vegferð hennar sem nýs for-
manns félagsins. Mynd/Védís
við um húsnæði Landspítala víða, ekki
aðeins á Landakoti. Húsnæðið stæðist
ekki nútímakröfur varðandi sóttvarnir.“
Á daginn hafi komið að ábendingarnar
hafi verið réttmætar en viðhorfið verið að
leysa vandann ef upp kæmi krísa.
„Við eigum að vera duglegri að horfa
fram í tímann. Framvirk hugsun sparar
okkur útgjöld og fækkar áföllum seinna
meir,“ segir Steinunn. Koma þurfi fram
við starfsfólk heilbrigðisstofnana af sann-
girni. Það skipti sjúklinga máli.
„Ef læknum líður vel í vinnunni og fá
tækifæri til að sinna símenntun, þróast
í starfi og fá sína hvíld þjóna þeir sjúk-
lingunum betur.“
V I Ð T A L
Brýnt að semja við
stofulækna
„Eitt af okkar allra brýnustu verk-
efnum er að landa samningum
sjálfstætt starfandi lækna við ríkið,“
segir Steinunn. Læknar hafi þurft að
hækka gjöld á sjúklinga til að standa
undir rekstri. „Við viljum að heilbrigð-
iskerfið sé aðgengilegt öllum,“ segir
hún. Sjálfstætt starfandi læknar séu
mikilvæg stoð í heilbrigðiskerfinu. „Ef
það hriktir í þeirri stoð finnst það alls
staðar annars staðar í kerfinu.“