Læknablaðið - 01.02.2022, Qupperneq 40
100 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
V I Ð T A L
Lóa Guðrún Davíðsdóttir meltingarlæknir stýrir íslenskum hluta norrænnar
rannsóknar á þarmabólgusjúkdómi sem styrkt hefur verið um þrjár milljónir evra,
ríflega 400 milljónir íslenskra króna. „Fjárstyrkurinn er fljótur að klárast,“
segir Lóa sem leitar að 30 þátttakendum
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Vill 30 Íslendinga í norræna
þarmabólgurannsókn
„Þarmabólgusjúkdómur veldur veru-
legri skerðingu á lífsgæðum en þetta er
langvinnur bólgusjúkdómur í meltingar-
vegi sem hrjáir um 0,5% þjóðarinnar,“
segir Lóa Guðrún Davíðsdóttir, meltingar-
læknir á Landspítala, sem stýrir íslensk-
um hluta norrænnar rannsóknar á þarma-
bólgu.
Lóa segir sjúkdóminn skiptast í
sáraristilbólgu og Crohns-sjúkdóm. Til að
greina hann þurfi að gera ristilspeglun
með vefjasýnum og stundum myndgrein-
ingu. „Sáraristilbólga getur teygt sig frá
endaþarmi og upp eftir ristlinum. Crohns-
sjúkdómurinn getur lagst á alla hluta
garnarinnar,“ lýsir hún og að gangur sjúk-
dómsins geti verið hraður og hann svarað
illa meðferð.
„Þetta krefst oft endurtekinna innlagna
á spítala og jafnvel aðgerða á görnunum,“
segir hún, og að sjúkdómurinn geti leitt til
ristilkrabbameins.
Fá þrjár milljónir evra
Rannsóknin sem kallast Nordtreat, eða
nánar tiltekið The Nordic IBD treatment
strategy trial, er samstarfsverkefni Sví-
þjóðar, Danmerkur, Noregs og Íslands.
Aðstandendur hennar hlutu þriggja millj-
óna evru styrk frá NORDFORSK, sem er
stofnun rekin á vegum Norrænu ráðherra-
nefndarinnar til að stuðla að auknu rann-
sóknasamstarfi Norðurlandanna. Rannís
styrkti Landspítala til rannsóknarinnar en
stofnanirnar starfa saman.
„Alþjóðlegt samstarf er að mínu
mati mjög mikilvægt fyrir Landspítala,“
segir Lóa. „Helstu rannsakendur innan
þarmabólgusjúkdóma á Norðurlöndunum
standa að þessari rannsókn. Aðalmarkmið
hennar er að ná til þeirra sjúklinga sem
líklegt er að hafi verri sjúkdómshorfur
með því að greina ákveðin áhættuprótín
(novel objective protein signature) í blóði
þeirra og veita þeim einstaklingsmiðaða
meðferð strax í upphafi.“ Þannig megi
mögulega koma í veg fyrir eða minnka
alvarlegar afleiðingar sjúkdómsins. Einnig
verði aðrir þættir skoðaðir, eins og áhrif
baktería í görn, erfðaþættir, lífsstíll og
mataræði.
„Við þurfum 750 sjúklinga til að rann-
sóknin verði marktæk og vonumst til að
geta fengið allt að 30 manns á Íslandi. Um
70 greinast hér á landi á ári og því getur
orðið á brattann að sækja að ná tilskildum
fjölda,“ segir hún en er vongóð enda þurfi
aðeins að vera líkur á að þátttakendur séu
með þarmabólgusjúkdóm. Þeir þurfi að
hafa haft niðurgang og/eða blóð í hægð-
um í meira en tvær vikur til að koma til
greina.
„Ef sjúklingar með þessi einkenni leita
til heimilislækna eða annarra sérfræðinga
mega þeir gjarnan hafa samband við mig
á Landspítala,“ segir Lóa.
Fæddist í Svíþjóð
Aðeins eru 6 ár síðan Lóa sneri frá Sví-
þjóð þar sem hún lærði og starfaði á Kar-
ólínska. Synir hennar þrír fylgdu með en
maður hennar, Björn Haraldsson, starfar
enn sem verkfræðingur í Svíþjóð; er þar
með annan fótinn, svona eins og COVID
leyfir.
„Ég er fædd og uppalin til 6 ára aldurs
í Svíþjóð og fór alltaf þangað á sumrin
að vinna. Það var því augljóst mál að
fara þangað í framhaldsnám.“ Lóa sækir
læknisáhugann ekki langt en pabbi henn-
ar er Davíð Gíslason ofnæmislæknir sem
líka þar var ytra í sérnámi.
„Ég ákvað að fara í læknisfræði eftir
að hafa varið unglingsárum mínum á
Vífilsstöðum. Fyrst við garðyrkju í fallegu
umhverfi spítalans og svo á húðdeildinni
og lungnadeildinni. Meltingarlæknis-
fræði varð svo fyrir valinu þar sem þessi