Læknablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 41
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 101
sérgrein er einfaldlega skemmtilegust og
fjölbreyttust,“ segir hún sposk og Lækna-
blaðið frábiður sér pósta um að það sé nú
ekki rétt!
„Ég flutti til Stokkhólms og hóf mitt
framhaldsnám 2004. Við fjölskyldan höfð-
um það mjög gott þar. Ég var afskaplega
ánægð á Karólínska sjúkrahúsinu,“ segir
Lóa sem byrjaði í rannsóknum í lifrar-
lækningum og tók doktorsprófið þaðan
en þarmabólgan hafi heillað hana þegar
hún hóf að spegla. „Ég hef haldið mig við
það síðan enda mikið að gerast í undirsér-
greininni.“
Ísland togaði þau heim
Lóa segir að eftir 12 ár í Svíþjóð hafi ekk-
ert annað komið til greina en að koma
heim. „Við vorum afar hamingjusöm í
Svíþjóð. Búin að kaupa hús og ætluðum
ekki að fara. En svo gerðist eitthvað,“
segir Lóa og lýsir því hvernig Ísland togi
þau til sín.
„Elsti strákurinn okkar átti að fara í
menntaskóla og þá allt í einu kom ekkert
annað til greina en að drífa okkur heim.“
Þau séu sæl á Íslandi. „Drengirnir eru
mjög ánægðir,“ segir Lóa og lýsir því
hvernig sá yngsti hafi aðeins talað sænsku
þegar þau fluttu heim.
„Svo skipti hann yfir í íslensku en
hefur vart sagt orð á sænsku síðan.“ Þau
hjónin hafi þurft aðeins lengri aðlögunar-
tíma. „Við söknuðum Svíþjóðar og förum
reglulega saman út.“ Hún hitti fyrrum
vinnufélagana og njóti þess að vera ytra.
Það hafi þó verið frábært að koma heim.
Hún hafi verið í góðu sambandi við Einar
Stefán Björnsson yfirlækni á meðan sér-
námi stóð og vel hafi verið tekið á móti
henni á meltingardeildinni við komuna
heim.
„Ég fékk strax að taka þátt í að byggja
upp göngudeild þarmabólgusjúkdóma
og stofna gæðagagnaskrá þarmabólgu-
sjúkdóma og líftæknilyfja sem heitir því
íslenska nafni ICE-IBD.“
Lóa segir að nú einbeiti hún sér að
rannsókninni. „Ég hvet lækna til að hafa
samband við mig ef þeir telja sjúklinga
sína heppilega í þessa rannsókn. Inn-
taka í rannsóknina hefst í febrúar í ár en
henni lýkur eftir eitt ár. Eftirfylgni hvers
einstaklings fyrir sig lýkur svo eftir eitt
ár.“
Lóa Guðrún Davíðsdóttir, læknir á meltingardeild
Landspítala, stýrir íslenskum hluta norrænnar þarma-
bólgurannsóknar. Hér er hún á göngum Læknasetursins
þar sem hún starfar. Mynd/gag
„Við þurfum 750 sjúklinga til að
rannsóknin verði marktæk og
vonumst til að geta fengið allt
að 30 manns á Íslandi. Um 70
greinast hér á landi á ári og því
getur orðið á brattann að sækja
að ná tilskildum fjölda“