Læknablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 45
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 105
Ég kom í heimsókn á minn gamla vinnu-
stað, Duke University Hospital, 1974. Þeir
höfðu þá nýlega eignast merkilegt tæki,
„bronchofiberscope“, sem olli byltingu í
berkjuspeglunum. Á lungnaþingi þetta
haust hlustaði ég á Donald C. Zavala
við University of Iowa halda skýr og
skemmtileg erindi um þannig speglanir.
Mér var sagt að þetta væri hálfgerður
furðufugl en væri eldklár.
Guðmundur K. Magnússon, vinur
minn og bekkjarbróðir, var háskólarektor
1979-1985 og kom á tengslum HÍ við Uni-
versity of Iowa. Annar vinur minn, Þor-
kell Jóhannesson prófessor, hafði unnið
þar við rannsóknir. Svo fór að 1986 kippti
Guðmundur í einhverja spotta svo mér
var boðið að koma.
Við hittum Don Zavala sem vildi allt
fyrir okkur gera. Guðmundur hafði sagt
að ég mætti bjóða prófessor sem mér litist
vel á að koma í heimsókn til Íslands. Við
gerðum Don þetta tilboð og um haustið
birtust þau hjónin.
Læknafélögin héldu þá námskeið í
september sem voru undanfarar Lækna-
daga. Don hélt þar erindi og á öllum
þremur spítölum Reykjavíkur og á Reykja-
lundi. Var óþreytandi að heimsækja þessa
staði og veita góð ráð. En við þurftum líka
að skemmta þeim hjónum og Don sagði að
sig langaði að renna fyrir lax. Laxveiðar
hafa aldrei verið mitt fag svo ég fékk Stein
Jónsson í málið. Hann útvegaði þeim dag
í Soginu og sá Don fyrir öllum útbúnaði.
Þetta varð dálítið ævintýri. Don óð langt
út í ána og lenti í hálfgerðu kviksyndi og
Steinn dró hann í land við illan leik! Ef ég
man rétt veiddu þeir ekkert!
Don sagði mér sögu sína.1 Hann
útskrifaðist læknir frá University of
Cincinnati og fór í lyflækningar í Iowa.
Síðan bjó hann í smábæ í suðurhluta Kali-
forníu og stundaði lyflækningar í 17 ár og
vegnaði vel.
Ö L D U N G A D E I L D I N
Ferðin til Iowa
Þá fékk hann þá flugu í höfuðið að
hann þyrfti að læra lungnalækningar 45
ára gamall. Hann fór að þreifa fyrir sér
um sérnám. Alls staðar var hann spurð-
ur: 1) Hvers vegna dytti honum í hug 45
ára gömlum í góðu vel launuðu starfi að
leggja í langt og erfitt nám? 2) Stendurðu
í málaferlum? 3) Eru vandræði í hjóna-
bandinu og ertu að skilja? 4) Ertu alkó-
hólisti eða fíkill? Þótt svarið við spurning-
um 2-4 væri neitandi gagnaði það lítið. Þá
minntist hann þess að vinur hans hafði
lært lungnasjúkdóma og var nýbúið að
ráða hann til að stofna lungnadeild í Iowa
City. Hann hringdi og spurði hvort hann
vildi taka sig í sérnám. Það var guðvel-
komið. En við lungnadeildina starfaði
aðeins einn læknir, hann sjálfur. Það væri
engin legudeild fyrir lungnasjúklinga,
engin göngudeild og engin gjörgæsla.
Hann væri að fara í sumarfrí daginn eftir
og yrði í burtu í mánuð! Don gæti flutt
inn í húsið hans meðan hann væri að leita
sér að húsnæði. Ráðgjöf lungnalæknis
væri eftirsótt og nóg að gera á spítalanum.
Álagið samt hóflegt og hann gæti oftast
komist heim í kvöldmat. Engar vaktir.
1969 fór Don á ráðstefnu
HNE-lækna í Atlanta. Þar
talaði japanskur læknir, Shi-
geto Ikeda, um nýtt tæki til
berkjuspeglunar, bronchofi-
berscope. Don skildi varla eitt
einasta orð en myndirnar töl-
uðu sínu máli og hann varð
stórhrifinn. Við heimkomuna
spurði hann hvort hann gæti
ekki fengið fé til tækjakaupa.
Það fékk dræmar undirtektir,
en því var hvíslað í eyra hans
að í Iowa City væri klúbbur
kvenna sem lúrði á tals-
verðum peningum og gætu
verið örlátar við menn sem
nenntu að flytja þeim erindi.
Hann fræddi þær um nyt-
semi berklaprófa og uppskar 3600 $. Það
dugði til að kaupa skóp! Ekki þorði hann
að byrja að spegla fólk enda litu skurð-
læknarnir uppátækið illum augum. Þeir
höfðu sinnt berkjuspeglunum og haft af
þeim dágóðar tekjur. Hundurinn Hanni-
bal varð fyrsta tilraunadýr Dons.
Þar kom að Don fékk tækifæri til að
spreyta sig á manneskju. Lögfræðingur
nokkur var með blett ofarlega í lunga sem
ekki hafði tekist að ná sýni úr með stífum
spegli. Læknar voru tregir að gera að-
gerð án greiningar og leitað var til Dons.
Maðurinn spurði hvað hann hefði speglað
marga sjúklinga en hann sagðist bara hafa
speglað hunda. Maðurinn bað um frest og
Don reiknaði ekki með að sjá hann aftur.
En hann birtist og greining fékkst. Ísinn
var brotinn og eftirspurn varð fljótt mikil.
Eitt sem við Don ræddum var hvort
ekki væri hægt að koma íslenskum lækn-
um í sérnám við University of Iowa. Ég
spurði hvað við ættum að gera til að
fá lækni samþykktan. Hann svaraði að
bragði: „You put wings on him!“ Kjartan
Örvar var valinn og eftir það voru engin
vandræði fyrir Íslendinga að komast þar
að!
Tryggvi Ásmundsson
tryggvi.asmundsson@gmail.com
Fremri röð f.v.: Judy Zavala, Agla Egilsdóttir, Ester Egg-
ertsdóttir. Aftari röð f.v.: Guðmundur K. Magnússon,
Donald C. Zavala, G. Edgar Folk, Þorkell Jóhannesson.
Dr. Folk var hér gistiprófessor frá University of Iowa.
Hann var líffræðingur og þekktur sem brautryðjandi
í umhverfisfræðum og einn af þeim fyrstu til að setja
senditæki á dýr.
Heimild
1. Zavala DC. Once upon a time, or ... How it really happ-
ened. J Bronchol 2003; 10: 75-8.
Stjórn Öldungadeildar
Óttar Guðmundsson formaður
Helga M. Ögmundsdóttir ritari
Sigurður Guðmundsson gjaldkeri
Friðrik Yngvarsson
Gísli Einarsson
Öldungaráð
Guðmundur Viggósson
Jóhannes M. Gunnarsson
Kristófer Þorleifsson
Margrét Georgsdóttir
Reynir Þorsteinsson
Ritstjóri vefsíðu og
síðu Öldungadeildar
í Læknablaðinu:
Helga M.
Ögmundsdóttir
Magnús Jóhannsson