Læknablaðið - 01.02.2022, Qupperneq 47
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 107
Dagur í lífi sérnámslæknis í Iowa
05.00 Vakna í straumlínulagaða
morgunvenju, klæðist spítalafötum, gríp
kaffibolla úr Nespresso dýrgripnum og
hjóla í vinnuna. Ég bý strategískt um 1,5
km frá spítalanum til að geta varið sem
stystum tíma í samgöngur (meiri svefn) og
fengið frískt loft um leið.
05.30 Í sérnámi í almennum skurð-
lækningum förum við á ýmsar deildir og
þennan mánuð er ég á bráðaskurðteym-
inu. Dagurinn hefst með því að nætur-
vaktin skilar af sér vaktinni til bráða- og
slysaskurðteymisins. Í kjölfarið er
genginn (hlaupinn) sérnámslæknastofu-
gangur sem þarf að klárast áður en að-
gerðir dagsins hefjast. Ég er svo heppin að
vera með annan reyndan sérnámslækni
á teyminu, Ásgeir Þór Másson, svo við
getum skipt listanum með okkur, tekið
hvorn sinn yngri sérnámslækninn og séð
30-40 sjúklinga vítt og breitt um spítalann
á skömmum tíma til að keyra af stað áætl-
anir dagsins. Þetta er í fyrsta skiptið sem
við Ásgeir höfum verið saman á teymi og
það er mikil gleði að geta deilt svörtum
lakkrís og harðfiski með smjöri þegar
stund er milli stríða, kollegum okkar til
mikillar furðu.
06.30 M&M (morbidity and mortality)
fundur þar sem sérnámslæknar kynna
valin tilfelli þar sem eitthvað hefði mátt
betur fara og lærdómsríkar umræður
fylgja. Grand Rounds-fundur tekur við
þar sem er farið yfir málefni sem varða
skurðdeildina. Þessir fundir eru rafrænir
svo það gefst tími til að borða morgun-
mat með sem er yfirleitt snarl á vinnu-
herberginu. „Wellness snacks” er nýtt
og verulega vinsælt framtak frá stjórn
sérnámsprógrammsins þar sem þau fylla
reglulega á ísskápinn á vinnuherberginu.
08.15 Aðgerðir hefjast, seinna en venju-
lega vegna fundahaldsins. Á bráðateym-
inu eru framkvæmdar valaðgerðir auk
bráðaaðgerða sem upp koma hverju sinni.
Á dagskrá í dag eru tvær stórar kviðslits-
aðgerðir vegna kviðslita frá fyrri skurðað-
gerðum, gallblöðrutaka og loks nárakvið-
slitsaðgerð í kviðsjá. Við Ásgeir vinnum
saman að fyrstu kviðslitsaðgerðinni en
svo skilja leiðir, hann leiðir fyrsta árs
sérnámslækni í gegnum gallblöðrutöku á
meðan ég geng í nárakviðslitið. Sérfræði-
læknirinn, Dr. Garcia, fylgist vel með,
kennir og hjálpar þar sem þarf. Á milli
aðgerða hrannast inn konsúltbeiðnir og
auk þess þarf að fara með sérfræðinginn
á stofugang svo hann geti lagt formlega
blessun sína yfir teymið.
11.00 Sjúklingur með botnlangabólgu er
skoðaður og bókaður á skurðstofuna.
Áður en botnlangatakan er hafin kemur
inn mjög veikur einstaklingur með víð-
tækt drep í görn og fyrri sögu um margar
kviðarholsaðgerðir. Við drífum viðkom-
andi á skurðstofuna „class 1” eða innan
klukkustundar og fjarlægjum stóran hluta
af smáþörmum, kviðurinn skilinn eftir
opinn og sjúklingurinn fluttur á skurð-
gjörgæsluna til frekari meðferðar svo
hann verði í góðu standi þegar görnin er
sett aftur saman og kviðnum lokað.
15.00 Botnlangatakan kemst loks að á
skurðstofunni og yngri sérnámslæknir
rúllar henni upp meðan ég fæ að velja
tónlistina, vandamesta hlutverk skurð-
læknisins!
18.00 Teymin hittast aftur í
kvöldrapport, farið yfir vandamál inni-
liggjandi sjúklinga og væntanlegra sjúk-
linga frá öðrum stofnunum.
18.15 Hjóla heim í samfloti við Ásgeir
og við stoppum á leiðinni í gleðistund
sérnámslæknanna á Stellu, hverfisbarnum
nálægt spítalanum. Við sérnámslæknarnir
erum dugleg að hittast þegar COVID-að-
stæður leyfa og styðja hvert við annað
utan vinnu. Þarna fæ ég fyrstu alvöru
máltíð dagsins frá morgunmat og 50%
afsláttar Cajun jambalaya rennur ljúflega
niður.
19.30 Kem heim og langar ekkert frekar
en að sökkva í sófann og horfa á heilalaust
sjónvarpsefni. Kærastinn er ekki alveg
til í það og drífur mig út í göngutúr sem
frískar heilastarfsemina og skrefafjöldinn
er upp úr öllu valdi. Eitt það allra falleg-
asta við Iowa er himinninn enda mikið að
sjá af honum í hreinu flatlendi.
21.30 Hef alltaf verið kvöldsvæf og það
breytist ekki þegar dagurinn er langur
en jafnframt fjölbreyttur, gefandi og
skemmtilegur. Sofna nánast samstundis
yfir góðri fantasíubók á Kindlinum.
Bergljót Rafnar Karlsdóttir
Skurðstofulíf í Bandaríkjunum, - einhver
ljómi yfir því í öllum skilningi.
Frá vinstri: ég, Ásgeir Þór Másson sérnáms-
læknir, Lulua læknanemi, Dr Garcia sér-
fræðingur í bráða- og slysaskurðlækningum.