Læknablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 50
110 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Í byrjun COVID-faraldursins dreymdi
mig daum sem hefur verið mér mjög
minnisstæður. Ég starfa nær eingöngu
á hjúkrunarheimili og hafði talsverðar
áhyggjur af mínum skjólstæðingum.
Ég hafði lesið um atburðina á hjúkr-
unarheimili í Kirkland nálægt Seattle
þar sem fyrstu smit á hjúkrunarheimili
komu upp í Bandaríkjunum, sem leiddi til
fjölda smita, ekki bara íbúa en líka meðal
starfsmanna. Dánartíðni var há, og síðar
hafa starfsmenn hjúkrunarheimila fallið í
valinn eftir smit í starfi.
Mér fannst ég standa niður við Reykja-
víkurtjörn, suðvestur endann. Yfir aust-
urbænum var stórt óveðursský og úr því
kom eldingaregn. Mér er litið yfir vest-
urbæinn og þar yfir gamla vesturbænum
var annað eins ský með eldingum. Ég
horfi svo yfir Esjuna en þar var heiður
himinn og þar flugu þrjár flugvélar í átt
að flugvellinum, tvær venjulegar flugvél-
ar, en ein var lík leikfangavél og flaug létt
og lipurt áfram.
Morguninn eftir túlkaði ég draum-
inn þannig að við myndum fá fjölda
COVID-smita á Grund sem er í Vestur-
bænum og ganga í gegnum eld og brenni-
stein þar. Það varð þó ekki raunin heldur
urðu smitin á Landakoti. Þegar ég hugsa
til baka var skýið í raun frekar yfir Landa-
koti en yfir Grund.
L I P R I R P E N N A R
Dreymt fyrir daglátum
Helga Hansdóttir
öldrunarlæknir
helga.hansdottir@morkin.is
Flugvélarnar þrjár túlkaði ég sem þrí-
eykið okkar. Tvær af flugvélunum voru
hefðbundnar og flugu beint og túlka ég
þær sem Ölmu og Þórólf sem hafa sýnt
framúrskarandi fagmennsku og þolgæði.
Þriðja vélin sem flaug svo leikandi létt
finnst mér vera Víðir.
Ég er sérlegur aðdáandi Víðis vegna
þess hve mannlegur hann er. Hann tal-
ar þannig að allir geta skilið hvað hann
meinar, til dæmis eins og að fólk þyrfti
bara að hafa asnalegt hár þegar hár-
greiðslustöðum var lokað. Hann gerði
mistök og smitaðist af COVID, hann grét
fyrir framan þjóðina, iðraðist, kom aftur
til vinnu og hefur sýnt af sér fádæma
mannúð, skilning og umburðarlyndi í öllu
fasi.
Það er í þessum anda sem mig langar
að tala um læknisfræði og umræðuna um
vísindalega þekkingu. Ég ætlast ekki til
þess af öllum kollegum mínum að kaupa
söguna af draumnum og túlkun hans
heldur vona ég að þeir lesi sögu af upplif-
un og hugsunum.
Sannreynd læknis fræði er gullstandard
okkar vinnu, en í umræðunni finnst mér
það stundum vera það eina sem ætti að
leiðbeina okkur. Að mínu viti kemur fyrst
mannúðarskylda okkar að sinna veiku
fólki eftir bestu getu og þekkingu hvers
tíma. Í mínu fagi, lyf- og öldrunarlækn-
ingum, er oft skortur á sannreyndum
upplýsingum, en það þýðir ekki að við
getum falið okkur bak við það og ekki
tekið á þeim vandamálum sem blasa við.
Mér eru efst í huga langvinnir verkir,
svefnleysi og óróleiki tengd heilabilun
sem valda hvað mestum þjáningum í
mínu starfi. Þar skortir á rannsóknir til
leiðbeiningar.
Oft eru niðurstöður rannsókna á mið-
aldra hraustu fólki notaðar til grundvallar
klínískum leiðbeiningum. Ekki er tekið
tillit til þess hve svörun fólks við lyfjum
getur verið einstaklingsbundin, og oft
þarf að reyna fleiri en eitt eða tvö lyf áður
en árangur fæst. Gildismat einstaklings-
ins kemur ekki inn í myndina og óskir
um meðferð né vilji til að taka áhættu
á aukaverkunum. Rannsóknirnar eru
gjarnan til skamms tíma en rannsóknir á
langtímaáhrifum eru tengslarannsóknir
þar sem erfitt er að henda reiður á orsök
og afleiðingu.
Ég hef lært eins og flestir klíníkerar að
mæta sjúklingum mínum þar sem þeir eru
staddir og láta þeirra óskir og gildismat
stýra rannsóknum og meðferð. Árangur
af því verður sennilega seint metinn með
standard mælitækjum og eftirliti. Því tel
ég að við eigum að halda upp merkjum
klínískrar læknisfræði og mannúðar ekki
síður en þekkingu og vísindalegri nálgun.