Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 30

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 30
30 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021 ina (Gardner o.fl., 2016). Fjöldi heilbrigðisstarfsfólks sem sinnir konunni getur haft mikil áhrif á hana þar sem aukinn fjöldi starfs- manna inni á fæðingarstofunni eykur umhverfisáreiti til muna. Að auki hafa umhverfisáreiti eins og hljóð úr tækjum sem notuð eru inni á fæðingarstofum verulega truflandi áhrif á konuna (Rogers o.fl., 2016). Einhverfar mæður hafa sérstaklega lýst samskiptaerfiðleikum í fæðingunni sjálfri (Lum, o.fl., 2014). Þær upplifa oft hræðslu í samskiptum og þora ekki að tjá skoðanir sínar og tilfinningar við þá ljósmóður sem sinnir þeim (Pohl, o.fl., 2020). Í rannsókn Rogers og félaga frá árinu 2016 lýsti ein konan því að það hefði valdið henni mun meiri sársauka og vanlíðan að þurfa að eiga við spítalann en sársaukinn sem hún fann fyrir í fæðingunni sjálfri (Rogers o.fl, 2016). Þegar horft er betur til sársauka sem er óhjákvæmilega eitt af því sem konur hugsa um þegar kemur að fæðingu þá virðast margar einhverfar konur hafa frekar háan sársaukaþröskuld, en aftur á móti þá gæti það einnig verið afleiðing þess að þær upplifi erfiðleika við að tjá og lýsa þeim sársauka sem þær finna (Lum o.fl, 2014; Tint & Weiss, 2017). Það sem einhverfar konur hafa þörf fyrir í fæðingunni sjálfri eru skýr skilaboð og samskipti, að hafa stjórn á umhverfis- áreitum og að hafa stjórn á aðstæðum (Rogers o.fl, 2016). Flestir einstaklingar finna þörf fyrir að hafa stjórn á þeim aðstæðum sem þeir eru í. Einhverfar konur eru þar ekki undanskildar. Sumar þeirra hafa lýst því hvernig þeim finnst þær hvorki hafa stjórn á eigin gjörðum né umhverfinu og að fæðingaráætlun hefði getað skipt þar sköpum (Gardner, ofl., 2016). Þær hafa einnig lýst því hvernig það að vita hvernig hlutirnir gerast og jafnvel hvernig áferð eða tilfinn- ing við eitthvað lýsir sér hjálpi þeim að takast á við það þegar að því kemur. Það að vita hvað er að fara að gerast getur gert gæfumuninn og að umönnunaraðilar biðji um leyfi fyrir allri snertingu (Rogers o.fl, 2016). SÆNGURLEGA Einhverfar konur eru líklegri en aðrar konur til að þróa með sér fæðingarþunglyndi (Pohl o.fl., 2020; Asano o.fl., 2014). Rann- sókn Pohl og félaga frá árinu 2020 sýndi tíðni fæðingarþunglyndis hjá einhverfum mæðrum vera allt að 58%. Einhverfar mæður eru á margan hátt viðkvæmari fyrir hlutum sem geta ýtt undir líkur á fæðingarþunglyndi. Þær eru til dæmis líklegri til að glíma við vandamál af geðrænum toga, hafa orðið fyrir ofbeldi, líklegri til að einangrast, eiga erfiðara með að biðja um aðstoð og upplifa dæmandi viðmót í sambandi við þeirra foreldrafærni (Pohl, o.fl., 2020). Afleiðingar fæðingarþunglyndis geta meðal annars verið aukinn kvíði, minna öryggi í móðurhlutverkinu, minni geta til að aðlagast móðurhlutverkinu, seinkaður taugaþroski hjá nýbur- anum og fleiri afleiðingar sem mikilvægt þykir að koma í veg fyrir (Meaney, 2018). Einhverfar mæður eru líklegri til að eiga erfitt með að leita eftir aðstoð hjá heilbrigðisstarfsfólki. Sérstaklega virðist sem þeim finn- ist erfitt að leita eftir aðstoð er varðar börnin sín og finnst þeim heil- brigðisstarfsfólk oftar en ekki misskilja sig. Þær upplifa mun meiri kvíða í samskiptum sínum við þann fagaðila sem sinnir þeim þegar kemur að umönnun barna þeirra og finna fyrir óöryggi varðandi hvaða atriðum er viðeigandi að deila með þeim fagaðila (Pohl o.fl., 2020). Í rannsókn Pohl og félaga kom í ljós að um 80% einhverfra mæðra sögðu ekki frá því að þær væru einhverfar vegna hræðslu við að það yrði komið verr fram við þær. Auk þess upplifa einhverfar mæður móðurhlutverkið meira einangrandi en aðrar mæður og þeim finnst þær frekar vera dæmdar og eiga þar af leiðandi erfiðara með að biðja um þann stuðning sem þær þurfa hverju sinni (Pohl o.fl, 2020). Einhverfar mæður þurfa þó á stuðningi að halda og vilja standa sig í móðurhlutverkinu þar sem rannsóknir hafa sýnt að einhverfar mæður eru ekki frábrugðnar öðrum mæðrum þegar horft er til foreldravirkni. Hins vegar þurfa þær annars konar aðstoð en flestar aðrar konur (Pow-Lau, Peterson, Attwood, Garnett & Kelly, 2016). Þegar kemur að brjóstagjöf einhverfra kvenna þá er mikilvægt að hafa það í huga að það að hafa barn á brjósti getur haft veruleg áhrif á skynúrvinnslu þeirra. Við brjóstagjöf er mikið um snertingu auk þess sem þetta er skyntilfinning sem er ólík öðru sem maður þekkir. Þetta getur reynst einhverfum konum óþægilegt og getur þessi skynjun, tilfinning og skynúrvinnsla einmitt verið hindrandi þáttur í brjóstagjöf. Þegar kemur að því að aðstoða einhverfar konur við brjóstagjöf virðist vera ýmislegt sem þær upplifa frá heilbrigð- isstarfsfólki sem þær eiga erfitt með. Það er þeirra upplifun að það sé ekki endilega hlustað á þær og hvaða langanir þær hafa varð- andi næringu nýburans. Þær vilja fá greinagóðar upplýsingar um mikilvægi brjóstagjafar en í rannsókn Gardner og félaga frá árinu 2016 voru nánast allar einhverfu mæðurnar með börnin sín á brjósti þrátt fyrir óþægindi sem tengjast þeirra skynúrvinnslu. Það virtist vera lykilatriði fyrir þær að vita af hverju brjóstagjöf er mikilvæg og flestar fengu góða aðstoð frá fagaðila í upphafi brjóstagjafar (Gardner o.fl., 2016). Þegar tíðni brjóstagjafar hjá einhverfum konum og konum sem ekki eru einhverfar er borin saman er ekki marktækur munur á milli þessara tveggja hópa hvort þær reyndu að hafa börn sín á brjósti eða ekki (Pohl o.fl., 2020). Þegar bornar eru saman þarfir einhverfra mæðra og annarra mæðra virðast vera fleiri hindranir fyrir þær einhverfu til að gera eins vel og þær vilja í móðurhlutverkinu. Þær upplifa það að þær eiga erfiðara með að hugsa um allt sem viðkemur heimili á þessum breyttu tímum sem sængurlegan er, þeim finnst erfiðara að finna félagsleg tækifæri fyrir börn sín og þær upplifa sig oftar en ekki sem óskipulagðar mæður. Hins vegar virðist ekki vera munur á milli þessara tveggja hópa þegar kemur að því að forgangsraða þörfum barns síns ofar en eigin þörfum auk þess sem báðir hópar sýndu jafn mikla viðleitni í að auka sjálfstraust barna sinna (Pohl o.fl, 2020). Þegar horft er til foreldravirkni eða álags í foreldrahlutverki, þá leiddi rannsókn Lau og félaga frá árinu 2016 í ljós að geta til að tileinka sér foreldrahlut- verkið og foreldravirkni einhverfra mæðra sem eiga einhverf börn var ekki minni en hjá mæðrum sem voru ekki einhverfar sem áttu einhverf börn (Pow-Lau o.fl, 2016). Niðurstöður eru teknar saman í töflu 1 sem á margan hátt svarar spurningunum sem settar voru fram í upphafi. Þar er farið yfir hvert tímabil fyrir sig í barneignarferlinu og hvað heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir þessum konum getur haft í huga við umönnun þeirra með tilliti til reynslu þeirra af ferlinu. UMRÆÐUR Ef horft er til reynslu einhverfra kvenna af barneignarferlinu og þeirra umönnunarþarfa benda niðurstöður til þess að þörfum þeirra sé ekki mætt eins vel og hægt er. Ákveðnir vankantar sem viðkoma þjónustu við þennan hóp komu fram á meðgöngu, í fæðingu, sæng- urlegu og brjóstagjöf. Þetta ferli er eitt af mikilvægustu þroskaver- kefnum í lífi hverrar fjölskyldu. Reynsla þeirra af ferlinu byggir meðal annars á eigin reynslu og upplifun í gegnum lífið og hlut- verk ljósmæðra er að styðja konur og fjölskyldur þeirra í gegnum þessar mikilvægu stundir. Ef horft er til þeirra þátta sem geta bætt upplifun og reynslu einhverfra kvenna í gegnum barneignarferlið, þá er vitundarvakning, viðurkenning og grunnþekking heilbrigðis- starfsfólks á einhverfu líklega lykilatriði. Þessar konur hafa oftar en ekki þurft að glíma við mótbyr í samfélaginu, dæmandi viðmót og niðrandi samskipti í gegnum líf sitt. Afleiðing þessa getur orðið til þess að þær telji sig oftar en ekki þurfa, umfram aðra, að sanna sig í foreldrahlutverkinu, en slíkt getur haft áhrif á líðan og löngun til að biðja um og þiggja þá aðstoð sem í boði er hverju sinni. Einnig virðist það vera þannig að ekki sé alltaf tekið tillit til þess að þessi hópur glímir við skynúrvinnsluvanda og að sá vandi sé mögulega ekki tekinn nægilega alvarlega. Eitt það mikilvægasta við umönnun einhverfra kvenna í fæðingu er að reyna að stuðla að rólegu umhverfi með sem minnstu áreiti. Mikilvægt er ennfremur að spyrja einhverfar konur sem koma í meðgönguvernd út í þeirra skynúrvinnslu og áhyggjur og gera viðeigandi ráðstafanir í samráði við þarfir hverrar konu fyrir sig. Að gera fæðingaráætlun, draga úr umhverfisáreitum, gefa greinagóðar upplýsingar og fræðslu, veita góðan stuðning við brjóstagjöf og tengslamyndun getur skipt höfuð- máli í heildarumönnun þessa hóps kvenna. Allt þetta er til þess fallið

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.