Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 43

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 43
43LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021 Vorið 2021 útskrifaðist fyrsti hópur ljósmæðra úr breyttu námi, Ljósmóðurfræði til starfsréttinda, MS. Við þessa breytingu útskrif- ast allar ljósmæður sem lokið hafa námi frá Háskóla Íslands með meistaragráðu og geta þá í framhaldinu sótt um starfsleyfi. Breyting á námi ljósmæðra á sér nokkurn aðdraganda eins og lýst hefur verið áður á síðum blaðsins. Aðalrökin fyrir því að leggja niður kandídatsprófið og taka upp meistaragráðu voru þau að með því styttist nám ljósmæðra til meistaragráðu úr að lágmarki sjö árum í sex og meistaragráða fellur betur að ríkj- andi fyrirkomulagi varðandi prófgráður og skipulag náms innan háskóla. Að verða ljósmóðir hér á landi er þó eftir sem áður lengra nám en í nágrannalöndum okkar og munar þar helst um þann tíma sem það tekur að læra hjúkrunarfræði á Íslandi sem er undanfari náms í ljósmóðurfræði. Við breytingu á lögum um ljósmæður þar sem ljósmæðralög frá 1984 voru felld úr gildi og felld undir lög um heilbrigðisstarfs- menn nr. 34 frá 15. maí 2012, var samin reglugerð um menntun, réttindi og skyldur ljósmæðra og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi. Árið 2009 var sett á stofn sérstök námsleið fyrir ljósmæður með kandídatspróf sem vildu ljúka meistaranámi. Það leiddi til umræðu um sérfræðileyfi, sérfræðinám/þjálfun og sérfræðingsstöður í klínísku starfi. Samkvæmt reglugerðinni eru sérstök ákvæði um sérfræðileyfi í 5. og 6. grein en þar stendur: 5. gr. Sérfræðileyfi. Rétt til að kalla sig sérfræðing á klínískum sérsviðum ljósmóður- fræði og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem hefur fengið til þess leyfi landlæknis. 6. gr. Skilyrði fyrir sérfræðileyfi Sérfræðileyfi má veita á klínískum sérsviðum ljósmóðurfræði. Skil- yrði er að sérfræðinám umsækjanda sé skilgreint innan þess sérsviðs sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til. Viðkomandi sérsvið skal standa á traustum fræðilegum grunni og eiga sér samsvörun á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi. Með klínískum sérsviðum er átt við svið þar sem störf fela í sér bein samskipti við sjúklinga, sem og forvarnir og ljósmóðurfræði- lega greiningu og meðferð. Til að ljósmóðir geti átt rétt á að hljóta sérfræðileyfi skv. 5. gr. skal hún uppfylla eftirtaldar kröfur: 1. Hún skal hafa starfsleyfi sem ljósmóðir hér á landi skv. 2. gr. 2. Hún skal hafa lokið meistaraprófi eða doktorsprófi í ljósmóðurfræði frá viðurkenndum háskóla eða hafa sambærilega menntun. 3. Hún skal hafa starfað við ljósmóðurstörf að loknu prófi skv. 2. tölul. sem svarar til að minnsta kosti tveggja ára í fullu starfi á því sérsviði sem umsókn hennar um sérfræðileyfi tekur til. Sé starfshlutfall lægra, lengist starfstíminn sem því nemur. Til frádráttar geta komið allt að tólf mánuðir í fullu starfi ef viðkomandi hefur starfað samhliða doktorsnámi á viðkomandi sérsviði. Um frekari skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfis fer skv. 13. gr. Ljóst er að í dag heimilar reglugerðin þannig þeim ljósmæðrum sem hafa meistarapróf að sækja um sérfræðileyfi eftir tveggja ára starfs- reynslu. Tilgangur þessara hugleiðinga er að varpa því fram hvernig beri að haga veitingu sérfræðileyfis í framtíðinni. Athuga þarf að sérfræðileyfi gefur ekki rétt til sérfræðingsstöðu – það er mál stofnana hvernig þær sjá fyrir sér að nýta sérfræðiljósmæður í starfi. Hægt er að hugsa sér tvær leiðir: 1. Halda reglugerðinni óbreyttri, þ.e. allar ljósmæður geti sótt um sérfræðileyfi eftir tvö ár í starfi á því sérsviði sem umsóknin beinist að. 2. Reglugerðinni yrði breytt í þá veru að ljósmæður þyrftu að hafa lokið skipulögðu námi/þjálfun til sérfræðiréttinda. Rætt hefur verið um að skipulögð þjálfun yrði í boði fyrir ákveðirn hóp ljósmæðra á hverju ári. Það yrði skipulagt í samvinnu við heilbrigðisstofnanir, helstu kennslustofnanir HÍ, LSH, HH, ÞÍH og SAK en gert yrði ráð fyrir 18 mánaða prógrammi þar sem ljósmóðir yrði á launum. Litið yrði til þess fyrirkomulags sem hefur verið í boði á Landspítala um sérfræðinám í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði við mótun frekari hugmynda. Á haustmánuðum 2021 var settur saman vinnuhópur til að fjalla um framtíð starfsþjálfunar ljósmæðra til sérfræðiréttinda í ljósi ofangreindra breytinga. Vinnuhópinn skipa Helga Gottfreðsdóttir fyrir hönd Náms- brautar í ljósmóðurfræði í Háskóla Íslands, Valgerður Lísa Sigurðardóttir fyrir hönd Fagráðs um ljósmæðraþjónustu á Landspítala, Edda Sveins- dóttir fyrir hönd ljósmæðra sem lokið hafa starfsnámi til sérfræðiréttinda, Guðlaug María Sigurðardóttir fyrir hönd stjórnar Ljósmæðrafélags Íslands og Ástþóra Kristinsdóttir fyrir hönd Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu. Vinnuhópurinn hefur það hlutverk að endurskoða fyrir- komulag á veitingu sérfræðileyfa ljósmæðra í framtíðinni og samhliða því að skapa umræðu um þörf fyrir sérfræðiþekkingu ljósmæðra innan barneignarþjónustu á landsvísu. Í þeirri vinnu mun hópurinn m.a. leita til yfirljósmæðra um allt land í þeim tilgangi að fá sýn þeirra á þörf fyrir sérfræðiljósmæður og tilhögun sérfræðiþjálfunar/-náms ljósmæðra á mismunandi stöðum. Gera má ráð fyrir að þörf fyrir sérfræðiþekkingu sé mismunandi á milli stofnana og mikilvægt að hver stofnun skoði það út frá starfssviði ljósmæðra á hverjum stað. Það er von vinnuhópsins að umræða skapist meðal ljósmæðra alls staðar á landinu um hvernig veitingu sérfræðileyfis verður hagað í fram- tíðinni. Fyrir hönd vinnuhópsins, Helga Gottfreðsdóttir, prófessor og námsbrautarstjóri í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands. Valgerður Lísa Sigurðardóttir, sérfræðiljósmóðir á Landspítala og lektor við Námsbraut í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands. SÉRFRÆÐINÁM OG SÉRFRÆÐILEYFI Í LJÓSMÓÐURFRÆÐI Hugleiðingar um framtíðarskipulag F R É T T I R

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.