Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 44
44 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021
Síðastliðið haust var haldin Norræn ráðstefna brjóstagjafaráðgjafa
í níunda sinn. Í þetta sinn á Íslandi og það í annað sinn. Þetta var
dagana 23.-24. september á Hilton Reykjavik Nordica og fyrsta
alþjóðlega ráðstefnan haldin í langan tíma eftir að heimsfaraldur
skall á. Stund reyndist vera á milli stríða og ekki þurfti að vera með
ráðstefnuna á netinu. Heiti ráðstefnunnar var Brjóstagjöf í núinu
eða á ensku Mindful Breastfeeding. Á heimasíðu ráðstefnunnar
kom fram að hugsunin væri að vera með barn á brjósti í núvitund,
njóta brjóstagjafarinnar og horfa á barnið, frekar en klukkuna eða
appið. Einnig að fagfólk sé meðvitað um ólíkar þarfir mæðra, afli
sér þekkingar, leiti lausna til stuðnings við foreldra og næringu
barnsins á leið til farsællar brjóstagjafar. Í ráðstefnunefnd voru fyrir
utan fulltrúa Félags brjóstagjafaráðgjafa á Íslandi, einnig fulltrúar
frá Háskóla Íslands, Hjúkrunarfræðideild, námsbraut í ljósmóður-
fræði og frá kvenna- og barnasviði Landspítala og Þróunarmiðstöð
íslenskrar heilsugæslu.
Þátttakendur voru tæplega 200 og komu víða að, flestir frá Íslandi
og Norðurlöndunum en einnig frá Belgíu, Ítalíu, Króatíu, Litháen,
Rúmeníu og Þýskalandi. Í hópnum voru ljósmæður, hjúkrunar-
fræðingar, læknar, talmeinafræðingar og ljósmæðranemar. Margir
voru brjóstagjafaráðgjafar eða fólk með reynslu og áhuga á stuðn-
ingi við brjóstagjöf og til að læra meira, enda mikilvægt að efla
brjóstagjöf við upphaf lífs sem hefur áhrif á lýðheilsu.
Aðalfyrirlesari var Professor Amy Brown við Swansea University
í Bretlandi. Hennar bakgrunnur er í sálfræði og hún rannsakar meðal
annars, lága brjóstagjafartíðni í heiminum, hvaða sálfélags- og
menningarlegar ástæður eða hindranir liggja þar að baki sem hafa
síðan áhrif á lýðheilsu samfélaga. Frá Íslandi héldu aðalfyrirlestra
ljósmæðurnar og brjóstagjafaráðgjafarnir Ingibjörg Eiríksdóttir og
Hallfríður K. Jónsdóttir. Ingibjörg fjallaði um sögu brjóstagjafar á
Íslandi í 100 ár og Hallfríður byggði sinn fyrirlestur á kerfisbundinni
fræðilegri samantekt um stuðning ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga
og áhrif á tíðni og lengd brjóstagjafar. Sonja Magnúsdóttir, sjálfstætt
starfandi talmeinafræðingur sem sinnir greiningu og þjálfun barna
með tal- og málmein, fjallaði um tunguhaft, meðferð og áhrif á
brjóstagjöf.
Formaður ráðstefnunefndar var Hulda Sigurlína Þórðardóttir en hún
er formaður Félags brjóstagjafaráðgjafa á Íslandi. Mikil ánægja var
með ráðstefnuna og fréttinni fylgja myndir sem sýna stemninguna.
NORRÆN RÁÐSTEFNA BRJÓSTAGJAFARÁÐGJAFA
OG FÉLAG BRJÓSTARÁÐGJAFA Á ÍSLANDI
Félagið var stofnað þann 10. janúar 2003 af konum sem höfðu
lokið prófi frá International Board of Lactation Consultant
Examiners (IBCLC). Prófið er alþjóðlegt próf sem nú er metið
til 11 eininga á háskólastigi og veitir réttindi til að starfa sem
brjóstagjafaráðgjafi hvar sem er í heiminum. Gerðar eru forkröfur
fyrir prófið sem er haldið tvisvar á ári, í apríl og október. Fyrst og
fremst ljósmæður, hjúkrunarfræðingar og læknar taka prófið en
einnig áhugafólk um brjóstagjöf með ólíkan bakgrunn. Brjósta-
gjafaráðgjafi þarf að uppfylla lágmarkskröfur um endurmenntun
og heldur þannig réttindum í 5 ár, en prófið þarf að endurtaka
á 10 ára fresti. Frá árinu 2000 hefur verið hægt að taka prófið
á Íslandi en nú er það rafrænt alls staðar í heiminum. Lesa má
um prófið á heimasíðu alþjóðlegu brjóstagjafasamtakanna http://
europe.iblce.org. Ingibjörg Eiríksdóttir brjóstagjafaráðgafi og sér-
fræðiljósmóðir ingibjorgei@hotmail.com er tengiliður LBCLC á
Íslandi og gefur nánari upplýsingar.
Nú eru brjóstagjafaráðgjafar IBCLC hér á landi um 12 talsins og
7 eru með samning við Sjúkratryggingar Íslands. Það er ánægju-
legt að segja frá því að haustið 2022, verður í boði diplómanám
í heilsugæslu með áherslu á brjóstagjöf við Hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands í samstarfi við Félag brjóstagjafaráðgjafa.
FÉLAG BRJÓSTAGJAFARÁÐGJAFA Á ÍSLANDI
F R É T T I R