Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 10
10 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021
F R É T T I R
25 ÁRA AFMÆLISHÁTÍÐ
NÁMSBRAUTAR Í LJÓSMÓÐURFRÆÐI
Á þessu ári fagnar námsbraut í ljósmóðurfræði við hjúkrunar-
fræðideild Háskóla Íslands 25 ára afmæli. Haldið var upp á dagi
nn þann 15. október með hátíðardagskrá í Veröld – húsi Vigdísar.
Ávörp og erindi voru flutt. Helga Gottfreðsdóttir námsbrautarstjóri
setti afmælishátíðina og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskólans
og Herdís Sveinsdóttir, deildarforseti Hjúkrunarfræðideildar fluttu
ávörp. Herdís sagði m.a. frá því að samþykkt hefði verið í Háskóla-
ráði að nýtt heiti deildarinnar yrði Hjúkrunar- og ljósmóðurfræði-
deild sem geri ljósmóðurfræðina sýnilegri innan Háskólans, enda
hefur fræðasamfélag ljósmæðra byggst upp með glæsibrag þessi 25
ár. Fulltrúar nemahópa, þess fyrsta sem hóf nám í janúar 1996 og
þess sem útskrifaðist síðastliðið vor, héldu erindi, þær síðarnefndu
um „besta nám í heimi“. Ólöf Ásta Ólafsdóttir sagði frá flutningi
námsins í Háskólann og fyrstu árunum, Hildur Kristjánsdóttir fjall-
aði um nám ljósmæðra og samfélag og Ingibjörg Eiríksdóttir um
hlutverk umsjónarljósmæðra og þróun þekkingar í starfi. Í lokin var
tónlistaratriði flutt af Jóhanni Kristófer Stefánssyni. Emma Marie
Swift var fundarstjóri.