Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 20
20 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021
HEIMAÞJÓNUSTA LJÓSMÆÐRA Á
ÍSLANDI Á ÁRUNUM 2012-2019
Lýðgrunduð framskyggn ferilrannsókn
R I T R Ý N D G R E I N
ÚTDRÁTTUR
Bakgrunnur: Heimaþjónusta ljósmæðra til sængurkvenna og
nýbura á Íslandi er ætluð fyrir þær mæður og börn sem útskrifast
af fæðingarstað innan 72 klukkustunda eða í sérstökum tilvikum
innan 86 klukkustunda. Heimaþjónusta felur í sér ákveðinn fjölda
vitjana í heimahús innan 10 daga frá fæðingu. Fjöldi vitjana ákvarð-
ast af heilsufari móður og barns. Heilsufar er skilgreint með flokkun
A/B/C þar sem mæður og nýburar við góða heilsu eru skilgreind í A
flokki, mæður og nýburar með lítilsháttar heilsufarsfrávik eru skil-
greind í B flokki og alvarlegri heilsufarsfrávik í C flokki. Bráðavitj-
anir eða sértæk brjóstagjafaráðgjöf ákvarðast eftir þörfum. Markmið
rannsóknar var að lýsa heimavitjunum, bráðavitjunum og vitjunum
brjóstagjafaráðgjafa til mæðra í sængurlegu á árunum 2012-2019
og meta áhrif heilsufarsflokkunar á áhættuna fyrir bráðavitjun eða
brjóstagjafaráðgjöf.
Aðferð: Lýðgrunduð gögn frá Sjúkratryggingum Íslands yfir heima-
þjónustu ljósmæðra á árunum 2012-2019 voru skoðuð (N=28.009).
Gögnum var safnað í rauntíma af ljósmæðrum sem sinna heimaþjón-
ustu og innihalda upplýsingar um bakgrunn kvenna, fæðingarmáta
og flokkun á heilsufari (A, B eða C). Gögnum var lýst eftir ári og
eftir heilsufarsflokkun sem heildarfjölda og hlutfalli af heild. Mark-
tækni var miðuð við p <0,05. Gagnlíkindi (GL) og leiðrétt gagnlík-
indi (LGL) voru reiknuð með 95% öryggismörkum.
Niðurstöður: Mæðrum og nýburum í flokki A fækkaði á tímabilinu
úr 55,8% árið 2012 í 31,9% árið 2019 en mæðrum og nýburum í
flokki B og C fjölgaði (p<0,001). Bráðavitjanir jukust og fóru úr
1,4% í 5,8% (p<0,001). Vitjanir brjóstagjafaráðgjafa jukust og fóru
úr 1,0% í 8,8% (p<0,001). Heilsufarsflokkun B og C jók líkindin
á bráðavitjun (LGL=2,42 og 2,40) og á vitjun brjóstagjafaráðgjafa
(LGL=2,01 og 2,65) samanborið við heilsufarsflokkun A.
Ályktanir: Rannsóknin sýndi hlutfallslega fækkun á mæðrum
og nýburum í heilsufarsflokki A en aukningu í flokkum B og C á
árunum 2012-2019, samhliða því að bráðavitjanir og vitjanir brjósta-
gjafaráðgjafa jukust. Rannsóknin varpar ljósi á þjónustu sem veitt
var af ljósmæðrum í heimaþjónustu og brjóstagjafaráðgjöfum á
tímabilinu. Þörf er á rafrænni skráningu á heimaþjónustu ljósmæðra
og brjóstagjafaráðgjafa í samræmi við gæðavísa til að meta nánar
árangur og þróun í þjónustu.
Lykilorð: Sængurlega, heimaþjónusta, heilsufarsflokkun, ljósmóðir,
bráðavitjun, brjóstagjafaráðgjöf
ABSTRACT
Background: In Iceland, postpartum in-home care is provided by
midwives for mothers and newborns who are discharged within
72 hours of giving birth, in special cases within 86 hours. In-home
visits occur within the first ten days after birth and the number of
visits depend on the health of the mother and newborn. An A/B/C
health category system is used to describe mother and newborn
health. Mother and newborn in good health condition are classified
in health category A, mother and newborn with minimal health
problems in category B and those with major health problems in
category C. Emergency or breastfeeding consultation is provided as
needed. The aim of this study was to describe in-home postpartum
care, including emergency and lactation consultation, in Iceland
from 2012 to 2019and to assess the association between health
category classification and the need for emergency and lactation
consultantation.
Method: Population-based data was obtained from Sjúkratryggingar
Íslands (e. Health insurance Iceland). Data was collected by midwi-
ves in 2012-2019 (N=28.009). Data was collected by midwives
providing in-home postpartum care and includes information about
women’s background, birth mode and health category (A, B or C).
Data was described by year and health category as a total number
and a percent of total. Significance was based on p<0,005. Odds
Kristjana Einarsdóttir,
Miðstöð í lýðheilsuvísindum,
Háskóli Íslands
Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Miðstöð í lýðheilsuvísindum,
Háskóli Íslands
Hallfríður Kristín Jónsdóttir,
ljósmóðir og brjóstagjafaráðgjafi,
Landspítali - Háskólasjúkrahús
Emma Marie Swift,
Lektor við námsbraut í ljósmóður-
fræði, Hjúkrunarfræðideild,
Háskóli Íslands
TENGILIÐUR: gudlaug22@gmail.com