Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 42
42 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021
LAGASETNING, REGLUGERÐ OG LEYFI
Þegar farið var af stað með námskeiðið þá var ekki komin reglu-
gerð með lögunum eða útfærsla í kerfinu um aðgang ljósmæðra til
að ávísa getnaðarvarnarlyfjum.
Ári eftir fyrsta námskeiðið, í janúar 2021, var leyfi komið til
að ávísa getnaðarvarnarlyfjum. „Þá var sagan ekki öll sögð þar
sem Landlæknisembættið var ekki búið að innleiða eða setja inn
í Sögukerfið möguleikann á að ávísa. Reynsla ljósmæðra af að
veita þessa getnaðarvarnarráðgjöf er því enn takmörkuð, sem eru
vonbrigði. Þetta tímabil „the computer said no“ hefur staðið í allt
of langan tíma“.
Enn eru þessir hlutir ekki komnir á hreint. Nú í lok árs 2021 eru
þó einhverjar ljósmæður komnar með prufuaðgang þar sem þær
geta ávísað getnaðarvarnarlyfjum í gegnum Sögukerfið.
LJÓSMÆÐRAREKIN EINING Í KEFLAVÍK
„Mig langar til að deila því með ykkur hvernig ég sé þessa þjón-
ustu þróast á því svæði þar sem ég hef unnið, á Ljósmæðravakt
í Keflavík og í heimaþjónustu í sængurlegu. Ljósmæðravaktin er
ljósmæðrarekin eining innan Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
(HSS) þar sem markmiðið er að veita konum og fjölskyldum þeirra
samfellda og einstaklingsmiðaða þjónustu. Við ljósmæðurnar
sinnum konum í meðgönguvernd, fæðingu og sængurlegu hvort
sem það er innan HSS eða heima. Einnig erum við með göngu-
deildarþjónustu þar sem við sinnum konum með meðgönguvanda-
mál eða vandamál eftir fæðingu. Einnig sinna ljósmæður sýna-
töku í krabbameinsleit. Því er það svo sannarlega góð viðbót í
okkar samfelldu þjónustu að geta veitt konum og mökum þeirra
getnaðarvarnaráðgjöf, ávísa getnaðarvarnalyfjum sem tekin eru
í töfluformi, setja upp lykkju eða hormónastafinn, gefa hormóna-
sprautur eða kenna konum að nota hormónahringinn. Við ljós-
mæður höfum alla burði og þekkingu til þess að sinna þessari
einstaklingsbundnu þjónustu vel bæði faglega og af nærgætni
þar sem við þekkjum skjólstæðinga okkar vel. Það er ekki nóg
að skrifa bara út lyfseðil heldur þarf að fræða foreldra um milli-
verkanir, aukaverkanir og finna út með þeim hvaða getnaðarvörn
hentar þeim. Ég sé þetta þannig fyrir mér í framkvæmd að þegar
ljósmóðir er að útskrifa konu og fjölskyldu hennar úr heimaþjón-
ustu, þá geti fyrsta samtalið og ráðgjöfin um getnaðarvarnir átt
sér stað. Valmöguleikar sem eru í boði væru kynntir og síðan gæti
parið komið á Ljósmæðravaktina og hitt sína ljósmóður þar sem
farið er yfir þá getnaðarvörn sem valin er, kosti og galla. Hægt
væri að setja upp lykkju eða hormónastafinn eða hreinlega að
kenna þeim á aðrar getnaðarvarnir. Síðan gæti eftirfylgni verið í
síma, þar sem gengið er úr skugga um að verið sé að nota getnað-
arvörnina rétt eða að það séu ekki miklar aukaverkanir“.
NÁGRANNALÖNDIN - FRAMTÍÐIN
Ljósmæðrareknar einingar eru einnig að þróast á höfuðborgar-
svæðinu eins og með tilkomu Bjarkarinnar frá því fyrir nær fjórum
árum og nú nýstofnuðu Fæðingarheimili Reykjavíkur. Heima-
fæðingum fjölgar einnig á landinu og nálgast að vera 3 % allra
fæðinga. Í þessum þjónustueiningum eru barneignar- og kynheil-
brigðisþjónusta í höndum ljósmæðra sem getur verið frá því fyrir
getnað og þar til eftir fæðingu. Heilsuráðgjöf og meðferð er þá
jafnvel veitt frá vöggu til grafar.
Að lokum vitnar Steina til þess hvernig þessari þjónustu er
háttað erlendis og hvernig hún hefur fulla trú á íslenskum ljós-
mæðrum til að sinna kynheilbrigðisþjónustu. „Víða erlendis svo
sem í Svíþjóð og Hollandi eru til staðar slíkar ljósmæðrareknar
einingar, nokkurs konar kvennaeiningar. Konur og fjölskyldur
þeirra geta verið í sambandi við ljósmæður allan tímann á meðan
þær eru á barneignaraldrinum til breytingaskeiðs. Ljósmæður
þar hafa séð um getnaðarvarnaráðgjöf og ávísun á pilluna og
uppsetningu á lykkju til fjölda ára. Því segi ég loksins, loksins -
og vonandi er þetta fyrsta skrefið í að ljósmæður fái einnig form-
leg leyfi til að skrifa upp á veikindavottorð á meðgöngu og fyrir
að hafa helstu lyf sem okkar skjólstæðingar þurfa í okkar „ljós-
mæðratösku“ t.d. vegna fæðingarhjálpar og brjóstagjafarvanda-
mála. Við á Íslandi erum vel í stakk búin til þess að gera alla
þessa hluti vel, með vel menntuðum ljósmæðrum í góðu sambandi
við skjólstæðinga okkar“.
Ólöf Ásta Ólafsdóttir.
Nemendur og kennarar á fyrsta námskeiðinu um getnaðarvarnir.
Ljósmæður sem fyrst hljóta leyfi: Katrín Sif, Kristbjörg, Steina Þórey, Ólafía og Hrafnhildur Lóa.