Fréttablaðið - 15.10.2022, Síða 20

Fréttablaðið - 15.10.2022, Síða 20
Stéphanie Frappart Franski dómarinn er af mörgum talin vera sú besta í heimi. Hún er að dæma um helgina í franska boltanum viðureign Rennais og Lyon og mun dæma á HM í Katar. En hún átti afleitan dag í Portúgal og hvernig í ósköpunum hún gat komist að því að Áslaug Munda ætti skilið að fá rauða spjaldið er ákvörðun sem engin mun skilja. Aldrei. UEFA Knattspyrnusamband Evrópu hefur ekki beint verið okkur hlið- hollt að undanförnu. Fyrst baunaði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, á UEFA fyrir að úrslitaleikur liðsins gegn Slavia Prag ætti að fara fram á handónýtum velli. „Ef þetta er virðing – að spila á svona velli í úrslitaleik til að komast í Meistaradeildina – þá er eitthvað mikið að hjá UEFA,“ sagði Pétur. Og ekki var nú fyrirkomulagið í umspilinu um laust sæti á HM eitthvað skárra í vikunni. „Það þarf að halda ráð- stefnu um útfærslu á þessu umspili og forvitnast um hvað fólk var að taka þegar það ákvað að þetta yrði svona,“ sagði Sandra Sigurð- ardóttir, markvörður íslenska landsliðsins. Þrátt fyrir að Ísland væri með betri árangur í riðlakeppninni fékk Portúgal heimaleik gegn Íslandi í hálfgölnu umspili. Dominik Szoboszlai Ungverjinn ungi rak hníf í hjarta þjóðarinnar í Covid-faraldrinum 2020 þegar hann hljóp upp allan völlinn í úrslitaleiknum um að komast á EM og þrumubombaði boltanum í netið. Vissulega vel gert en algjör óþarfi. Frakkar, Þjóðverjar og Portúgalir biðu okkar í riðlakeppninni og þetta var flugbeittur hnífur. Cristiano Ronaldo Stærsta íþróttastjarna heims, Cristiano Ronaldo, varð ekkert voðalega vinsæl eftir leik Íslands á EM árið 2016. Hann neitaði að skipta á treyju við Aron Einar Gunnarsson og vandaði okkar mönnum ekki kveðjurnar eftir leik. „Ísland reyndi ekkert. Það var bara vörn, vörn, vörn og skyndisóknir. Þeir fengu færi og skoruðu eitt mark,“ sagði Ronaldo eftir leikinn sem fór 1-1. Hann hefur reyndar komið nokkrum sinnum til landsins og notið sín í botn, sé eitthvað að marka samfélagsmiðla. Santiago Ponzinibbio UFC-bardagakappinn Santiago Ponzinibbio er ekki hátt skrifaður hjá íslensku þjóðinni eftir að hafa beitt óþverrabrögðum til að leggja Gunnar Nelson. Ponzinibbio potaði ítrekað í augu Gunn- ars meðan á bardaganum stóð og tapaði Gunnar eftir rothögg í 1. lotu. Ponzinibbio fengi engar sérstakar móttökur myndi hann mæta á klakann til að skoða land og þjóð. Viktor Kortsnoj Ótrúleg hegðun hans við skákborðið 1988 gerði íslensku þjóðina hoppandi reiða en Kortsnoj blés sígarettureyk framan í Jóhann Hjartarson í einvígi í Kanada. Þjóðin, sem þá var skákóð, fokreiddist. Jóhann hafði unnið hug og hjörtu landsmanna með rólegu fasi sínu en Kortsnoj stimplaði sig inn sem óvin þjóðarinnar. Jóhann vann þó sigur í einvíginu, 4½-3½ eftir bráðabana við mikinn fögnuð Íslendinga. Öll dýrin í skóginum geta ekki verið vinir. Því miður. Trúlega fer Stéphanie Frapp- art knattspyrnudómari ekki fram fyrir röð á skemmti- stöðum landsins eftir frammistöðu sína í Portúgal í vikunni. En hún er ekki sú eina sem hefur sært þjóðar- stoltið á íþróttavellinum. Fréttablaðið settist niður og skoðaði gamla góða óvini. Óvinir þjóðar Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas @frettabladid.is 20 Íþróttir 15. október 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 15. október 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.