Fréttablaðið - 15.10.2022, Side 28

Fréttablaðið - 15.10.2022, Side 28
Ég var alltaf svo feim- inn á þessum tíma og er það svo sem enn, svo ég var alltaf með sólgleraugu og það tengdu allir Mary Jane við marijúana. Jóhann Félagarnir Magnús Þór Sig- mundsson og Jóhann Helga- son fagna þessi dægrin fimm áratuga samstarfsafmæli. Þrátt fyrir að annar sé feim- inn og hinn ofvirkur hefur þeim varla orðið sundurorða á 50 árum og enn eru þeir að skapa. Þjóðin þekkir þá félaga sem dúettinn Magnús og Jóhann en þeir kynntust á unglingsaldri þegar þeir bókstaflega mokuðu sig hvor í átt að öðrum á Suður- nesjunum. Þeir störfuðu þá báðir í vegavinnu, Magnús í Njarðvíkum og Jóhann í Keflavík, og mættust á miðri leið í uppgreftri. Þetta var á þeim tíma þar sem tónlistarmennirnir virtust hrein- lega framleiddir suður með sjó og f ljótlega hittust þeir félagar aftur á því sviði. Jóhann var þá í hljóm- sveitinni Rofum sem vantaði gítar- leikara. „Við æfðum í forvera Stapans sem þá hét Krossinn, gamla hersjúkra- húsi Rauða krossins,“ rifjar Jóhann upp. „Við vorum að vandræðast með sóló í einu Kinks-lagi þegar Maggi mætti á æfingu, stökk upp á svið og tók þetta sóló svo vel að við buðum honum í hljómsveitina.“ Sveitin fékk svo nýtt nafn, Nes- menn. „Við vorum lengi húsband í Rockville, radarstöð í Sandgerði, og spiluðum um hverja helgi.“ Eldskírn að spila á Vellinum Hljómsveitin spilaði tökulög af topp 40 vinsældalistanum í Kanaútvarp- inu. „Það var fín eldskírn að spila uppi á flugvelli. Við urðum að læra þessi vinsælustu amerísku lög og vorum því alltaf með puttann á púlsinum í því sem var að gerast í tónlistinni. Þetta var fín æfing fyrir okkur í að skilja hljómfall og samsetningar. Og svo fengum við borgað fyrir það – gat ekki verið betra,“ segir Magnús í léttum tón. Hálf öld af ástinni og lífinu Á þessum tíma voru þeir félagar aðeins farnir að fikta við að semja eigin tónlist þó að Kanalistinn hafi verið það sem þeir léku gegn greiðslu. „Svo hætti frændi minn í hljóm- sveitinni og Maggi fór á sjóinn í upp- hafi árs 1970,“ segir Jóhann en þann- ig varð ekki meira úr Nesmönnum. „Ég fór þá til Bolungarvíkur að spila með hljómsveit sem hét Hug- sjón en þegar við hittumst aftur um vorið vorum við báðir farnir að semja eigin lög,“ segir Jóhann. „Við hringdum á milli Njarðvíkur og Keflavíkur og sungum hvor fyrir annan.“ „Ég man eftir símtalinu þegar Jói sagðist vera búinn að semja lagið Mary Jane, sem síðar varð svo sterkasta merki okkar. Hann sagðist þá hafa samið lag sem hann teldi nokkuð gott. Hann hefði heyrt lag í útvarpinu með James Taylor sem hét Sweet Baby James og búið til lag sem hét Mary Jane,“ segir Magnús og hlær. Jóhann heldur áfram: „James Tay- lor og þessi plata hans heillaði mig of boðslega. Lagið var lengi texta- laust en sjónvarpsþættirnir, I Love Lucy voru í sjónvarpinu á þessum tíma og vinkona hennar hét Mary Jane, svo ég ákvað að taka það nafn,“ segir hann og hlær að minningunni. „Ég var alltaf svo feiminn á þess- um tíma og er það svo sem enn, svo ég var alltaf með sólgleraugu og það tengdu allir Mary Jane við marjú- ana,“ segir Jóhann. Sagan var lífseig og Magnús minnist þess að hafa heyrt hana oft. „Fólk spurði mig hvort það væri ekki skrítið að vinna með honum Jóa, hvort hann væri ekki alltaf upp- dópaður,“ segir hann og hlær. Taldi hann klikkaðan Þegar Jóhann kom til baka frá Bolungarvík var Magnús til sjós á mótorbátnum Mumma og ætlaði sér að verða skipstjóri. „Þegar tveir dagar voru eftir af vertíðinni var komið svo rosalegt óþol í mig,“ segir Magnús sem hafði tekið gítar með þremur strengjum með sér um borð. „Ég fór upp í stýrishús og talaði við skipstjórann, Einar, og sagði við hann alvarlegur: „Ég þarf eigin- lega að hætta þegar við komum í land.“ Hann spurði þá á móti hvort eitthvað hefði komið upp á og ég svaraði: „Ég ætla að gerast tónlistar- maður.““ Magnús minnist þess að skip- stjórinn hafi skellihlegið en hann var ákveðinn og þeir Jóhann höfðu gert áætlanir um tónlistarferil. „Ég rakst á skipstjórann einhverj- um árum síðar, hann minnti mig á þessa sögu og sagði: „Mér fannst þú vera svolítið klikkaður. En nú eruð þið orðnir þekktir tónlistarmenn, þú og Jóhann, svo líklega var þetta rétt hjá þér.““ Músíkin stillti Magga villing Það lá nefnilega ekkert endilega beinast við að Magnús yrði tónlist- armaður, bæði var hann liðtækur til sjós og mikill íþróttamaður og Íslandsmeistari í spjótkasti á sínum yngri árum. „Já, já, þú vannst Bubba í steina- kasti,“ segir Jóhann og á þá við hinn eina sanna Morthens. „Það er nú önnur saga,“ svarar Magnús og þar við situr. „Ég var kominn með tilboð frá íþróttafélögum um að taka mig í alvöru þjálfun en hugsaði með mér að íþróttamaður entist í mesta lagi til 33-34 ára en ef ég gerðist tón- listarmaður gæti ég verið að því allt mitt líf.“ Jóhann segir tónlistina hafa átt hug hans allan. „Maður var hel- tekinn af Bítlunum og tónlistinni sem þá var að gerjast, enda voru það allir.“ Fyrir Magnús var tónlistin ekki bara dægradvöl heldur virkaði hún frelsandi. „Ég var ofvirkur og er. Ég var kallaður Maggi villingur og það eina sem gat stillt mig var mús- íkin. Þar náði ég fókus og var ekki til vandræða.“ Þegar hér er komið í spjalli okkar hefur Jóhann lýst sér sem feimnum og Magnús sér sem ofvirkum svo það mætti draga þá ályktun að þeir væru ólíkir karakterar. „Við erum mjög ólíkir en eigum mjög gott með að vinna saman. Við þurfum mjög lítið að tala saman,“ segir Jóhann og hlær. „Ég reiði mig mjög mikið á Jóhann þegar kemur að minnisþáttum og ákveðnu næmi, hann er svo mús- íkalskur. Ég þurfti að hafa meira fyrir því að verða músíkalskur. Ég hafði bara svo of boðslegan áhuga, og mikla þörf fyrir að geta gleymt mér í einhverju einu, í stað þess að vera úti um allt,“ segir Magnús sem æfði sig mánuðum saman í sex til sjö klukkustundir á dag. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Jóhann Helgason og Magnús Þór Sigmundsson hafa starfað saman í hálfa öld, á milli þeirra ríkir gagnkvæm virðing enda þvælist engin minnimáttarkennd fyrir vinskapnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 28 Helgin 15. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.