Fréttablaðið - 15.10.2022, Page 43

Fréttablaðið - 15.10.2022, Page 43
Umsóknarfrestur er til og með 23. október nk. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og upplýsingar um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Nánari upplýsingar veita Hlynur Atli Magnússon, hlynur@hagvangur.is, og Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is. Sölustjóri forsteyptra eininga Vegna vaxandi umsvifa leitar Steypustöðin ehf. að sölustjóra í sölu á forsteyptum einingum. Um er að ræða sérhæft starf á sölu- og markaðssviði sem snýr fyrst og fremst að sölu, tilboðsgerð og samskiptum við viðskiptavini. Aðsetur viðkomandi verður á aðalskrifstofu fyrirtækisins að Malarhöfða 10 í Reykjavík. Helstu verkefni og ábyrgð • Innleiðing og eftirfylgni á sölustefnu félagsins • Tilboðsgerð og samskipti við viðskiptavini félagsins • Öflun nýrra viðskiptavina • Samskipti við hönnuði, arkitekta og verktaka • Samvinna með öðrum sölustjórum félagsins Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun á sviði byggingarfræði, verkfræði eða sambærilegrar menntunar • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum • Rík þjónustulund • Metnaður og frumkvæði • Sjálfstæð vinnubrögð hagvangur.is Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík. Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Vík í Mýrdal ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum. Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi. Hjá félaginu starfa nú tæplega 300 starfsmenn. Sótt er um starfið á hagvangur.is hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.