Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2016, Side 8

Andvari - 01.01.2016, Side 8
6 GUNNAR STEFANSSON ANDVARI Morgunblaðsins og fyrrum forsætisráðherra. Við svo búið lýsti Ólafur á ný breyttri afstöðu til framboðsmála og dró sig í hlé, enda væru hæfir fram- bjóðendur komnir fram. Er það nýlunda að fráfarandi forseti leggi opinbert mat á hæfni manna til að taka við af sér. Verður að segja að þessi atburða- rás öll var einkar óviðfelldin og bar vott um skort á virðingu fyrir embætti forseta íslands. Annað átti líka augljóslega þátt í endanlegri ákvörðun Ólafs Ragnars, þótt hann vildi ekki kannast við það. Hann hafði neitað því endur- tekið á alþjóðlegri sjónvarpsstöð að nokkuð myndi koma fram sem tengd- ist honum eða ijölskyldu hans í Panamaskjölunum frægu, sem brátt getur. Skömmu síðar var frá því skýrt að kona hans ætti þar einmitt hlut að máli og jafnskjótt hrundi fylgi hans í könnunum. Margir hefðu áreiðanlega kosið að lok hinnar löngu forsetatíðar Ólafs Ragnars Grímssonar yrðu með öðrum og geðfelldari hætti en raun varð. Frambjóðendur í forsetakjöri urðu alls átta, en fjórir hlutu verulegt fylgi, Guðni Th., Halla Tómasdóttir, Andri Snær Magnason og Davíð Oddsson. Guðni var kjörinn með rúmlega 38 af hundraði greiddra atkvæða, Halla hlaut 27,5, Andri Snær rúm 14 prósent og Davíð tæp 14 prósent. Hinir fengu sam- anlagt aðeins um 4 prósent. Framan af hafði Guðni miklu meira fylgi með þjóðinni samkvæmt könnunum, en Halla mun minna. Vinsældir Guðna stöf- uðu ekki síst af því að hann þótti koma vel fram sem fréttaskýrandi og álits- gjafi í sjónvarpi í sambandi við þær miklu sviptingar sem urðu í stjórnmálum vegna fyrrnefndra Panamaskjala. Sú uppákoma var furðuleg og áreiðanlega eru ekki öll kurl komin til grafar í sambandi við hana þegar þetta er ritað. * Panamaskjölin opinberuðust íslensku þjóðinni í sérstökum Kastljósþætti í sjónvarpi Ríkisútvarpsins sunnudaginn 3. apríl klukkan 18. Var þá sýndur þáttur sem tekinn hafði verið upp í Ráðherrabústaðnum 11. mars, en ekki var heimilt að sýna fyrr. Skjölum þessum, 11 milljónum talsins, hafði verið lekið frá lögfræðistofunni Mossack Fonseca í Panama. Skjölin sýna meðal ann- ars hvernig lögfræðistofan aðstoðaði viðskiptavini sína við peningaþvott og skattaundanskot á aflands- og leynireikningum. Kastljósið var unnið í sam- vinnu við einkafyrirtækið Reykjavík Media, Alþjóðasamtök rannsóknar- blaðamanna (ICIJ) og þýska dagblaðið Súddeutsche Zeitung. í þessum þætti var Sigmundur Davíð óunnlaugsson forsætisráðherra einn til svara. Islenskir sjónvarpsáhorfendur hafa aldrei orðið vitni að annarri eins framgöngu gagn- vart stjórnmálamanni og sjá mátti sunnudaginn 3. apríl. Tveir rannsóknar- blaðamenn, Svíinn Sven Bergman og Jóhannes Kr. Kristjánsson, eigandi Reykjavík Media og þarna verktaki hjá Ríkisútvarpinu, leiddu forsætisráð- herra í gildru með blekkingum. Bergman kvaðst ætla að ræða við hann um ástand efnahagsmála á Islandi eftir hrun, en vék síðan að aflandsfélagi for-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.