Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2016, Síða 20

Andvari - 01.01.2016, Síða 20
18 HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON ANDVARI umönnun?“20 Eftir gagnfræðaprófið stytti Ólafur sér aftur leið og las fimmta bekk utan skóla sumarið 1930, en sat í sjötta bekk veturinn 1930-1931. Þá átti hann í ritdeilu í blaði menntaskólanema við Halldór Pálsson frá Guðlaugsstöðum um stærðfræði og latínu. Hélt Ólafur fram latínu, því að hún skerpti hug manna og hefði auk þess bók- menntagildi. Ekki er víst, að þeir Ólafur og Halldór hafi sjálfir tekið allt alvarlega, sem þeir skrifuðu þá.21 A stúdentsprófi vorið 1931 var Ólafur þrátt fyrir ungan aldur næsthæstur með 7,36 á 0rsted-kvarða.22 Hagfrœðistúdent í Kaupmannahöfn: 1931-1938 Veturinn 1931-1932 sat Ólafur Björnsson í lagadeild Háskóla Islands, sem þá var haldinn í Alþingishúsinu. Hann hafði ekki sótt um stóra styrkinn, sem veittur var nokkrum bestu námsmönnum hvers árs, og fjárráðin leyfðu ekki utanför án slíks styrks. Haustið 1931 var gerð könnun á þörf þjóðarinnar fyrir háskólamenn, og samkvæmt henni þurfti aðeins þrjá til fjóra lögfræðinga á ári, en í lagadeildina höfðu innritast sautján manns. Ólafi sóttist laganámið ágætlega, en hætti að sækja tíma á miðjum vetri. Tók hann þó próf í forspjallsvísindum og hlaut ágætiseinkunn, 7,33 á 0rsted-kvarða.23 Akvað hann að leita eftir styrk til náms við Kaupmannahafnarháskóla í hagfræði, sem hann hélt, að væri aðallega tölfræði, en hún lá vel fyrir honum. „Það má því segja, að ég hafi farið út í hagfræðina á röngum forsendum,“ sagði hann síðar kímileitur.24 Ólafur hlaut styrkinn og hélt til Kaupmannahafnar haust- ið 1932. Þar var hann einn af síðustu nemendum hins fræga hagfræði- prófessors Lauritz Bircks, sem lést snemma árs 1933. Birck hafði setið á þingi fyrir hægri menn, en var sjálfstæður í skoðunum og kjarnyrtur, jafnvel stundum stóryrtur. Varð Ólafi minnisstætt, þegar Birck sagði eitt sinn, að páfagaukur gæti verið seðlabankastjóri í landi, þar sem gjaldmiðillinn væri á gullfæti.25 Með þessu var hann að leggja áherslu á, að gullfótur eins og tíðkast hafði fyrir 1914 stuðlaði að jafnvægi í gjaldeyrismálum og alþjóðaviðskiptum án beinnar milligöngu neins sérstaks aðila. Þá gátu seðlabankar ekki gefið út meira af seðlum en gullforði þeirra leyfði. Birck þótti utan við sig, og voru sagðar margar sögur af honum, sem sumar voru síðan heimfærðar á Ólaf Björnsson. Til dæmis sat Birck dag einn á skrifstofu sinni og sökkti sér niður í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.