Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2016, Side 36

Andvari - 01.01.2016, Side 36
34 HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON ANDVARI leiddi óhjákvæmilega til einokunar í stað samkeppni. Á dögum Marx hefði til dæmis litið út fyrir, að járnbrautir myndu lenda í höndum auð- hringa. En nú hefðu bílar hnekkt þeirri einokunaraðstöðu. Rafmagnið hefði líka auðveldað litlum iðnfyrirtækjum leikinn. Hafa yrði í huga, að ríkið hefði oft stuðlað að einokun, til dæmis með tollmúrum og öðrum viðskiptatálmunum og margvíslegum stuðningi við hagsmuna- samtök, sem vildu takmarka samkeppni. Aðalatriðið væri, að sam- keppnin fengi að þrífast neytendum til hagsbóta á þeim sviðum, þar sem skilyrði væru fyrir henni. Þótt Jónas H. Haralz teldi möguleika á lýðræðislegri áætlanagerð, væri gallinn sá, að þá væri ekki nýtt sú þekking, sem dreifðist nú á hina fjölmörgu eigendur atvinnutækjanna. Ólafur vísaði því á bug, að Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti einhvern einn spámann, hvort sem hann héti Keynes, Beveridge eða Hayek. Hann gæti nýtt sér það, sem nýtilegt væri úr kenningum Keynes og Beveridges, „þótt almenningi hafi verið gefinn kostur á að kynnast hinni rökföstu gagnrýni próf. Hayeks á sósíalismanum“.92 Ólafur bætti því við í stuttri athugasemd við skrif Þjóðviljans, að fræðimenn mættu auðvitað hafa stjórnmálaskoðanir, en hitt væri annað mál, að í vísind- um væri ekkert til, sem héti „gott“ eða „vont“, heldur væri þar aðeins leitast við að rekja orsakasamhengi hluta.93 Þjóðviljinn hélt áfram að ráðast á þá Hayek og Ólaf: „Landsviðundrið Ólafur hefur nú viðurkennt, að heimsviðundrið Hayek hafi ekki skrifað bók sína um þessi efni sem vísindalegt hagfræðirit, heldur sem „áróð- ursrit“ fyrir stjórnmálastefnu íhaldsmanna.“ Blaðið endurtók síðan þá kenningu sína, að meira lýðræði væri í því fólgið, að hinn vinnandi fjöldi ætti atvinnutækin en auðmenn eins og Ólafur Thors og Björn Ólafsson.94 Jónas H. Haralz svaraði einnig Ólafi. Hafði hann meiri trú en Ólafur á því, að opinberar stofnanir gætu í umboði löggjafarþinga og með aðstoð sérfræðinga samið og framkvæmt heildaráætlanir um þróun atvinnulífsins.95 Enn svaraði Ölafur Jónasi. Lagði hann áherslu á hið mikla og víðtæka vald, sem lagt yrði í hendur opinberra starfs- manna, væru atvinnufyrirtæki þjóðnýtt. Taldi hann litlar líkur á því, að það yrði notað skynsamlega, en hitt einmitt líklegra, að það yrði misnotað. „Jafnvel þótt þegnum þessa þjóðfélags væri tryggður réttur til atvinnu, væri auðvelt að framkvæma það þannig, að líf þeirra, er stjórnarvöldin teldu sér andvíga, væri raunveruleg fangabúðatilvera.“96 í nokkrum forystugreinum tók Morgunblaðið undir með Hayek og Ólafi Björnssyni. Ekki mætti skilja Hayek svo, að íslenskir lýðræðis-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.