Andvari - 01.01.2016, Síða 46
44
HANNES HOLMSTEINN GISSURARSON
ANDVARI
eyrisvarasjóður var til, og sá gjaldeyrir, sem þó var aflað, var notaður
í framkvæmdir, sem taldar voru nauðsynlegar. „En þrátt fyrir þessar
óhagstæðu ytri aðstæður varð mikill og varanlegur árangur af þeim
efnahagsráðstöfunum, sem gerðar voru í mars 1950,“ sagði Ólafur
Björnsson. „Með þeim tókst að skapa slíkt jafnvægi í efnahagsmálum,
að unnt var að afnema skömmtunina, útrýma vöruskortinum og slaka
verulega á innflutningshöftunum.“139
í miðju annríkinu við undirbúning efnahagsráðstafananna 1949-
1950 bætti Ólafur Björnsson við sig verkefni. Hann skipaði 11. sæti
framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í bæjarstjórnar-
kosningunum 29. janúar 1950. „Nýtur hann vaxandi álits sem hag-
fræðingur fyrir sakir glöggskyggni sinnar, nákvæmni og samvisku-
semi,“ skrifaði Morgunblaðið.14° Gunnar Thoroddsen borgarstjóri var
í fyrsta sæti listans, en Auður Auðuns í öðru. Sjálfstæðisflokkurinn
fékk meiri hluta atkvæða og 8 fulltrúa kjörna. Var Ólafur varamaður
í bæjarstjórn næsta kjörtímabil. Um leið var hann fyrsti varamaður
Sjálfstæðisflokksins á Alþingi úr Reykjavík. Tók hann sæti á þingi í
maí 1950, þegar Gunnar Thoroddsen var í útlöndum, og í október 1950
í forföllum Björns Ólafssonar ráðherra.141 Jafnframt gegndi hann áfram
formennsku í BSRB. Þar var sótt að honum 1950, eflaust að undir-
lagi sósíalista og sumra Alþýðuflokksmanna. Bauð Pétur Pétursson
útvarpsþulur sig fram gegn honum, en Ólafur var endurkjörinn með
47 atkvæðum, og fékk Pétur 25 atkvæði.142 Árið eftir, haustið 1951,
bauð Pétur sig aftur fram gegn Ólafi, sem var endurkjörinn með 57 at-
kvæðum, en Pétur fékk 23 atkvæði.143
Ríkisstjórn Steingríms Steinþórssonar sat fram á sumarið 1953. Eftir
erfiðleikana 1950-1952 var árferði að batna, og töldu sjálfstæðismenn
einsýnt, að minnka skyldi haftabúskapinn og leggja Fjárhagsráð niður,
enda kraumaði óánægja í flokknum vegna haftanna. I kosningunum
1953 skipuðu sömu sex menn efstu sæti listans og 1949. Morgunblaðið
skrifaði: „Maðurinn í baráttusætinu á lista Sjálfstæðisflokksins nú er
Ólafur Björnsson prófessor. Hann er ekki aðeins viðurkenndur gáfu-
maður, heldur og afburða vinsæll af öllum, sem kynnast honum. Innan
launþegasamtakanna hefur hann unnið mikið og gott starf, enda hefur
fylgi hans þar farið stöðugt vaxandi.“144 Ólafur skrifaði 70 bls. bók,
sem gefin var út fyrir kosningar, Haftastefnu eða kjarabótastefnu,145
Þar skýrði hann á einfaldan hátt út helstu lögmál hagfræðinnar, og
var niðurstaða hans ótvíræð: „Frjáls verslun bæði innanlands og í inn-