Andvari - 01.01.2016, Page 48
46
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON
ANDVARI
að taka fram, að hann hefði aldrei verið í neinum stjórnmálaflokk,
sem hefði haft kommúnisma eða sósíalisma á stefnuskrá sinni. Hins
vegar hefði hann haft samúð með þessum stefnum á stúdentsárum
sínum.151 í bæjarstjórnarkosningunum í Reykjavík 1954 skipaði Ólafur
12. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins. Undir forystu Gunnars
Thoroddsens borgarstjóra hélt flokkurinn meiri hluta í bæjarstjórn,
og var Ólafur einn af varamönnum í bæjarstjórn næsta kjörtímabil-
ið. Næstu misseri héldu þeir Ólafur Björnsson og Gylfi Þ. Gíslason
deilum sínum um hagskipulag og hagstjórn áfram. Þeir voru frum-
mælendur á fundi Stúdentafélags Reykjavíkur í Sjálfstæðishúsinu 21.
febrúar 1956 um efnið: „Er hægt að halda verðlagi niðri með verðlags-
eftirliti?“ Gylfi svaraði játandi, en Ólafur neitandi. Gylfi gagnrýndi
kenninguna um frjálsa verslun. Ólafur benti á, að ekki væri mikill
vandi að ráða við verðbólgu, ef svarið við spurningunni væri játandi.
Taldi hann verðlagseftirlit skapa svartan markað, bakdyraverslun og
biðraðir. Stuðningsmenn hafta töluðu alltaf um alþýðuna, en ættu að-
eins við samherja sína í stjórnmálum.152 Þessi ár skrifaði Ólafur fjölda
greina í Morgunblaðið og önnur blöð um hagfræði og til stuðnings
frjálslyndum sjónarmiðum.153 Hann tók einnig að sér formennsku í
Dansk-íslenska félaginu 1955-1956 til að afstýra ýmsum erfiðleikum,
en hann hafði setið í stjórn félagsins allt frá 1945.154
Jafnframt því sem Ólafur Björnsson annaðist prófessorsembætti sitt
í Háskóla Islands, kenndi í Verslunarskólanum, gegndi formennsku í
BSRB, samdi bækur, ritgerðir í tímarit og greinar í blöð, sinnti hann
fjölskyldu sinni. A meðan Ólafur var enn í Menntaskólanum á Akureyri
árið 1930, hafði faðir hans, séra Björn Stefánsson á Auðkúlu, kvænst
aftur, Valgerði Jóhannsdóttur frá Torfustöðum í Svartárdal. Þau hjón
eignuðust tvær dætur, hálfsystur Ólafs. Önnur var Guðrún Sigríður,
fædd 1930 og skírð eftir móður Ólafs, fyrri konu séra Björns. Hin er
Ólöf Birna, fædd 1934. Þrjár alsystur Ólafs fóru frá Auðkúlu, strax og
þær gátu, enda voru þær miðlungi hrifnar af því að eignast stjúpu.155
Ingibjörg gekk í Menntaskólann á Akureyri, leigði með systrum sínum
í Reykjavík og giftist Þórarni Sigmundssyni mjólkurfræðingi. Hann
hafði verið sjálfboðaliði í her Finna í Vetrarstíðinu 1939-1940, en
komið heim með Esjunni frá Petsamo haustið 1940. Þórarinn starf-
aði lengst hjá Mjólkurbúi Flóamanna. Ingibjörg lést 1977, en Þórarinn
1996. Þorbjörg gekk í Kvennaskólann í Reykjavík, leigði um skeið með
systrum sínum í Reykjavík, en bjó síðan í mörg ár hjá móðursystur