Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2016, Page 49

Andvari - 01.01.2016, Page 49
ANDVARI ÓLAFUR BJÖRNSSON 47 sinni Kristínu Ólafsdóttur og manni hennar, Vilmundi Jónssyni. Hún var einhleyp, vann í Landsbankanum nánast alla sína starfsævi, en stundaði líka ferðalög um heiminn. Hún lést 2007.156 Ásthildur tók stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1937 og vann á Hagstofunni frá 1941. Hún leigði með systrum sínum, kynntist Steini Steinarr skáldi og giftist honum eftir nokkurra ára sambúð 1948. Var fjölskylda hennar og þá aðallega faðir hennar og alsystur í fyrstu miðl- ungi ánægð með ráðahaginn. Séra Björn smakkaði ekki vín og líkaði illa, að Steinn væri ekki bindindismaður. Komst þó betri regla á líf Steins, eftir að hann tók saman við Ásthildi, og varð þeim Birni vel til vina. Skáldið sleppti hinum virðulega mági sínum ekki við mein- hæðni sína. Kvað Steinn Ólaf slakan hagfræðing, því að hann hefði ekki haft ráð á að kaupa nema úreltar kennslubækur á útsölum há- skólaárin í Kaupmannahöfn! En allir vissu, eins og Helgi Sæmundsson ritstjóri sagði, að þetta „var aðeins skemmtilegur sleggjudómur þess- arar frægu ormstungu“.157 Ólafur kippti sér ekki upp við stríðni mágs síns, og samdi honum vel við Stein. „Það var varla hægt að hugsa sér ólíkari menn, en Ólafi lynti við alla,“ segir frændi hans, Ólafur Ólafsson landlæknir.158 Steinn féll frá 1958. Ásthildur bjó síðan með Þormóði Guðlaugssyni (föður Ulfars rithöfundar) frá 1966. Hann lést 1989, en Ásthildur 1998.159 Alsystur Ólafs þrjár voru allar róttækar í stjórnmálaskoðunum ólíkt föður sínum og bróður, en Ólafur hélt ekki uppi neinum deilum við þær, heldur hló aðeins að því, sem hann taldi rangt hjá þeim.160 Séra Björn Stefánssonþjónaði Auðkúluprestakalli í þrjátíu ár, til 1951, og var prófastur síðustu tuttugu árin. „Kirkjusókn var mikil að Auðkúlu, og að messu lokinni var öllum kirkjugestum boðið til kaffidrykkju á heimili prestshjónanna, og þótti prestsfrúin þar ávallt sýna hina mestu gestrisni og myndarskap.“161 Þau hjónin, séra Björn og Valgerður, flutt- ust til Akureyrar að prestsskap loknum, enda stunduðu dætur þeirra tvær nám í Menntaskólanum á Akureyri. Þau fluttust tveimur árum síðar til Reykjavíkur, árið 1953, en séra Björn lést 10. nóvember 1958. Vinur hans og flokksbróðir, Hannes Pálsson frá Undirfelli, skrifaði: „Björn prestur var maður hæglátur í fasi og hugsaði hvert mál vel, áður en hann tók afstöðu til mála. Honum var það fyrir mestu að gera það eitt, sem rétt var, en eftir að hann hafði tekið afstöðu til máls, var hann því máli hinn traustasti liðsmaður.“162 Valgerður Jóhannsdóttir, stjúp- móðir Ólafs Björnssonar, lést 1980. Guðrún Sigríður, eldri dóttir þeirra
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.