Andvari - 01.01.2016, Side 77
BJÖRN ÞORSTEINSSON
Verkefnið að vera manneskja
Um framlag Páls Skúlasonar til menningar-
og samfélagsumræðu á Islandi
Það er ekkert áhlaupaverk að gera æviverki Páls Skúlasonar heimspekings
og háskólarektors skil. Frá því að hann kvaddi sér fyrst hljóðs í opinberri
umræðu á íslandi árið 1974 og þar til hann féll frá í apríl 2015 var hann
bókstaflega óþreytandi við fyrirlestrahald, greinaskrif og samningu bóka,
auk starfa sinna við kennslu, stjórnun og stefnumótun innan Háskóla íslands
og á öðrum vettvangi. Ritaskrá Páls er gríðarmikil að vöxtum og hefur að
geyma 20 bækur, tugi útgefinna greina í bókum, tímaritum og dagblöðum
og mörg hundruð fyrirlestra og erindi af ýmsum toga.1 Þessi verk Páls bera
merki um tvíþættan metnað eða tvöfalt ætlunarverk sem hann einsetti sér að
sinna ungur að árum: að takast á við gömul og ný vandamál úr sögu manns-
andans með aðferðum heimspekinnar, og að iðka þessa sömu heimspekilegu
hugsun á íslensku í því augnamiði að bæta, glæða og efla samfélagið.2 Það
sem þessir tveir þættir eiga þó sameiginlegt er hollusta Páls við heimspekina
og raunar, í víðari skilningi, við það sem hann nefndi háskólahugsjónina -
hugmyndina um að háskólafólki beri að beita þekkingu sinni á opinberum
vettvangi til að greina og gegnumlýsa þau úrlausnarefni sem á okkur, hinum
almennu borgurum, hvíla hverju sinni.3 Hér á eftir verður þess freistað, að
beiðni ritstjóra Andvara, að gera grein fyrir framlagi Páls til menningar- og
samfélagsumræðu á íslandi í áranna rás. Eðli málsins samkvæmt verður því
fyrst og fremst einblínt á þau verk Páls sem ætluð eru almennum áheyrend-
um og lesendum en fræðilegri og sértækari verk að mestu látin liggja á milli
hluta. Að því sögðu er rík ástæða til að benda á að skilin milli „alþýðlegrar"
og „akademískrar“ fræðaiðkunar eru engan veginn skörp og verk Páls bera
margvísleg merki þess að þeim er að endingu beint til allrar alþýðu manna.
*
Eins og áður sagði er ritaskrá Páls mikil um sig. Stór hluti umfangsins eru
erindi og fyrirlestrar sem Páll flutti á vegum félagasamtaka af ýmsum toga
í því skyni að miðla hugsun sinni, og heimspekilegri aðferð og efnistökum