Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2016, Page 137

Andvari - 01.01.2016, Page 137
ANDVARI ÞÝÐING ÞRIGGJA GUÐSPJALLA 135 5 Sveinbjörn hélt breytingu Geirs, t.d. Mt 5:1 (mannfjöldi þar sem áður var fólk). 6 Sveinbjörn lagar en breytir litlu t.d. Mk 4:22 (því ekkert er svo hulid ad þad ei verdi opinberad og ekkert so fólgid ad þad ej verdi augljóst í stað því ekkert er svo hulid sem ej mun opinberad verda og ekkert so fólgid sem ej verdur auglióst). Ýmsir hafa farið lofsamlegum orðum um hlut Sveinbjarnar Egilssonar í þýðingu Viðeyjarbiblíu. Sigurður Nordal lét t.d. svo um mælt að þýðingar Sveinbjarnar á ýmsum ritum heilagrar ritningar séu „tiginbornustu biblíu- þýðingar á íslenska tungu og miklu ókunnari en við er unandi.“15Af dæm- unum hér á undan sést að Sveinbjörn lét sumar breytingar Geirs standa þótt erindisbréfið hefði kveðið á um „ad umbreyta eingu, nema því sem bersýni- lega þætti málleysa, eda þreifanlega rángt útlagt“. Mörgum öðrum breyt- ingum Geirs breytti Sveinbjörn aftur til eldri þýðinga. Erfiðara er að rjála við texta annarra en að þýða sjálfur frá grunni. Eftir því sem best er vitað kom Sveinbjörn einn að Jesaja og Opinberunarbókinni og bera þeir textar málsmekk hans órækt vitni eins og bent hefur verið á.16 Geir hefur víða að mér virðist haft almenning í huga og skilning hans á textanum og valið þess vegna að skýra fremur en taka vélrænt upp það gamla. Dæmi um það finnst mér vera í Mk 4:31 þegar hann þýðir: skyldi eg aldrei neita því að eg þekki þig í stað afneita þér sem lengi hafði verið notað og er notað enn. Þar er Geir nærri 1813 sem þýddi neita þér. Biblíuhefðin er sterk, menn vilja litlu breyta og það vissi Geir mætavel þegar hann skrifaði „og margur mun verða, sem þessi útlegging ekki dámar sem bezt“. TILVÍSANIR 1 Áður hafði Nýja testamentið birst á vegum félagsins í tveimur hlutum 1825 og 1827. I Gegni er á titilblaði ártalið 1827 og er því haldið í greininni til hægðarauka. 2 Biblía. Þad er: Heilog Ritníng. J 5ta sinni útgéfin, á ný yfirskodud og leidrétt, ad tilhlutun ens íslendska Biblíu-félags. Videyar Klaustri 1841. Formáli bls. [III]. J Finnur Sigmundsson 1966. Geir biskup góði í vinarbréfum 1790-1823. Islenzk sendibréf VI. Bls. 154-155. Reykjavík: Bókfellsútgáfan. 4 Sama rit. Bls. 165. 5 Hid Nýa Testamenti Drottins vors Jesú Krists, ad nýju útlagt ad tilhlutun ens Islendska Biblíu-Félags. Videyar Klaustri 1827. 6 Biblía. Þad er: I leilog Ritníng. J 5ta sinni útgéfin, á ný yfirskodud og leidrétt, ad tilhlutun ens íslendska Biblíufélags. Videyar Klaustri 1841. 7 Breve fra og til Rasmus Rask. II: 114-115. Kobenhavn: Ejnar Munksgaard forlag 1941. 8 BIBLIA, Þad er Aull Heilaug Ritning útlaugd á Jslendsku og prentud Epter þeirri Kaupmannahaufnsku Útgáfu MDCCXLVII at forlagi Þess Bretska og útlenda Felags til útbreidslu Heilagrar Ritningar medal allra þióda. Kaupmannahaufn ... [1813].
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.