Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2016, Page 155

Andvari - 01.01.2016, Page 155
ANDVARI HIN EILÍFA SAMÞÆTTA LÍFSHEILD 153 Hafið og eilífðin í „Hel“ Birtingarmynd vítalískra einkenna í „Hel“ er íjölbreytt og prímitífisminn ekki endilega svo veigamikill þegar grannt er skoðað. Anders Ehlers Dam nefnir að ein algengasta myndlíking bókmenntastefnu lífhyggjunnar hafi falist í að hinum endalausu umbrotum lífskraftsins var líkt við ólgandi og sí- breytilegt öldurót hafsins. Sjórinn þótti lifandi og afmarkaður heimur heild- ar sem innihélt gríðarlega orku sköpunar og eyðingar sem óútskýrð öfl sáu fyrir stöðugri og margbreytilegri útrás. Ekki síst vegna þessarar hreyfing- ar varð hafið eitt helsta tákn lífsins hjá rithöfundum lífhyggjunnar og það látið endurspegla virknina sem þokaði því áfram eftir hinni eilífu hringrás og tryggði vöxt þess og viðgang. Nefnir Dam ljóðin „Havet“ eftir Johannes Jorgensen og „Vesterhavet“ eftir Thoger Larsen sem dæmi um þessa mynd- hverfingu en tiltekur að hún komi víðar fram og með ólíkum hætti, til dæmis í verkum Haralds Kidde (1878-1918) og Johannesar V. Jensens.57 í „Hel“ er líkingamál tengt hafinu og bylgjum þess áberandi og strax í upphafí er það hafið sem kallar Álf til sín og hann segist elska það, „[...] fjölbreytt og sívakandi [...]“.58 Það seiðir hann til sín og hann þráir að sam- einast því og hinum dularfulla draumheimi sem í því er hulinn. Eins og Dam undirstrikar felst hin jákvæða gerð vítalísku stefnunnar í að draumsýnum um ljúfleika lífsins er hafnað og sársauki og erfiðleikar þess viðurkenndir sem óumflýjanlegir hlutar þess.59 Hlutskipti Álfs er í samræmi við það, hann hleypur á vit hugarsýnar sem felur í sér glötun, veður úr einu í annað, leitar stöðugt eftir nýjum tilbreytingum og eykur þannig linnulaust á ójafnvægi sálarlífs síns. Það er ekki fyrr en eftir samtal sitt við Steinunni að það virðist renna upp fyrir honum hve innihaldslaust líf hans hefur verið. Á endanum slítur hann sig frá hinni iðandi heild og berst að bökkum eilífðarfljótsins í einhvers konar óljósu gleymskuástandi: Alt í einu verður hann var við nýjan straum [...]. Þessi straumur seiðir hann með sér, hann berst með honum [...] niður að fljótinu. [...] Alt er aftur nýtt fyrir hann, grasið og sólin, döggin og ástin. Og tíminn líður, endalaust. Þúsund ár. En aðeins einn dagur. Hundrað þúsundir ára. En altaf einn dagur. Nýr dagur, án fortíðar og framtíðar. Dagur, sem er ríkur eins og þúsund ár. Öll eilífðin, sem einn dagur. Einn dagur, sem öll eilífðin.60 En þetta framandlega ástand reynist naumast fýsilegt. Álfur nær að kom- ast út fyrir efnisheiminn og upplifa þann veruleika sem leynist handan við hinn mælanlega tíma. Um leið tapar hann öllum skilningi á veruleikanum og sál hans verður tóm og takmarkalaus: „Hann hefur haldið formi sálar- innar óskertu [...] þó að alt innihaldið hafi verið tekið burtu. [...] Þar er nú
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.