Morgunblaðið - 03.09.2022, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 03.09.2022, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2022 • Glæsilegt morgunverðarhlaðborð frá kl. 7.00-10.30* • Fitness salur með öllum græjum ásamt Sauna og Steambað* • Veitingasalur opinn frá kl. 12.00-01.00 alla daga vikunnar • Staðsetning er steinsnar frá Strikinu, fjölda veitingastaða og verslana Niko ehf, Austurvegi 6, 800 Selfoss, sími 783-9300, www.hotelbokanir.is, hotel@hotelbokanir.is Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn Heill heimur út af fyrir sig – Lúxushótel í hjarta borgarinnar Kynnið ykkur sérverð okkar fyrir árið 2022 á hotelbokanir.is Einfalt að bóka – engar greiðslur fyrirfram og hægt að afpanta með eins dags fyrirvara án kostnaðar *Morgunverður og aðgangur að fitness er ávallt innifalinn í okkar verði Öldungaráð fyrrverandi starfsmanna Landhelgisgæslunnar kom saman í fyrrakvöld til að halda upp á að 50 ár voru þá lið- in frá því fiskveiðilögsaga Íslands var færð út í 50 sjómílur. „Við hittumst alltaf einu sinni í mánuði. Við höfum gaman af því að rifja upp gamla tíma,“ segir Benóný Ásgrímsson, sem starfaði hjá Landhelgisgæslunni í hálfa öld, lengst af sem þyrluflugmaður. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og sagnfræðingur, sendi á fimmtudag frá sér bók um sögu landhelgismálsins 1961-1971. Öldungaráðið mætti í útgáfuhóf sem haldið var þann dag og kom svo saman síðar um kvöldið í Fjósinu hjá Valsheimilinu á Hlíðarenda ásamt mökum. Benóný segir að í öldungaráðinu séu nú 47 fyrrverandi starfsmenn Gæslunnar. Sigurður Árnason er eini skipherrann sem enn er á lífi, 94 ára að aldri. „Við vorum með myndasýningu frá útfærslunni í 50 mílur og þegar myndirnar runnu í gegn rifjuðust atburðir upp fyrir mörgum og þá komu sögurnar,“ sagði Benóný. Hann hóf störf hjá Landhelgisgæslunni árið 1966, þá 14 ára léttadrengur á varðskipinu Ægi. Hann vann sig síðan upp hjá Gæslunni, varð háseti, bátsmaður, stýrimaður og kafari en fór síðan í flugnám og var ráðinn flugmaður 1978. Hann flaug þyrlum til ársins 2016 þegar hann varð 65 ára og mátti þá samkvæmt reglum ekki starfa lengur sem atvinnuflugmaður. Fiskveiðilögsaga Íslands var fyrst færð út í 12 mílur árið 1958, síðan í 50 mílur 1. september árið 1972 og loks í 200 míl- ur árið 1975. Í kjölfar allra útfærslnanna fylgdu svonefnd þorskastríð þegar Bretar sendu herskip á Íslandsmið til að vernda togara sína fyrir íslenskum varðskipum og sigldu her- skipin meðal annars á varðskipin. Öldungaráðið minntist útfærslu landhelginnar Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.