Morgunblaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2022 Garðatorg 6 | sími 551 5021 | vefverslun | aprilskor.is Copenhagen Shoes Moments 16.990 kr. Copenhagen Shoes Kayliee Loafer 17.990 kr. Frábært úrval af fallegum mokkasíum í ýmsum gerðum B E R N H A R Ð L A X D A L Skipholti 29b • S: 551 4422 Opið 11-16 NÝTT FRÁ Skoðið netverslun laxdal.is Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir, alls 260 fermetra hús með bílskúr. Húsið skiptist í glæsi- lega efri sérhæð og á neðri hæð eru stúdíóíbúð, tveggja herbergja íbúð og bílskúr. Nánari upplýsingar veitir Árni í síma 898-3459 og á netfang arni@fmg.is. GRASARIMI GRAFARVOGI Skaflinn í Gunnlaugsskarði í Esj- unni mun ekki hverfa þetta árið. Fönn þessi, sem er nánast efstí fjallinu vestan við Kistufell, hefur lengi verið höfð sem óopinber hita- mælir og staðan höfð til vitnis um tíðarfar hvers árs. Síðast hvarf skaflinn að öllu leyti árið 2019, þá eftir sólríkt og gott sumar. „Síðasta vetur var snjóþungt til fjalla og sumarið var í kaldara lagi. Staðan á skaflinum nú er því til samræm- is,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Kennimörk eru víða Víða eru kennimörk, lík skafl- inum í Gunnlaugsskarði, sem höfð eru til vitnis um tíðarfar. Í Mæli- fellshnjúki í Skagafirði er jafnan stór skafl, líkur hesti að sjá. Mál fólks í héraði var gjarnan að þegar bógarnir á klárnum í fjallinu slitn- uðu sundur og haus væri farinn frá búk væri snjó tekið að létta á há- lendinu. Fært væri orðið um Stóra- sand, það er norðan við Langjökul, þar sem er gömul þjóðleið milli norðlenskra byggða og Borgar- fjarðar. Á ferð um Skagafjörð í síð- ustu viku sást að lítill snjór er í hnjúknum og einnig hafa á fé- lagsmiðlum birst myndir og sögur af jeppamönnum sem fóru um Stórasand á dögunum. Staðan á skafli í Kinn, á sunn- anverðri Breiðadalsheiði á Vest- fjörðum, þótti einnig gefa ágætar vísbendingar um hitafar. Vegur um bratt klif var í Kinn, og þar var fönnin, sem fáir fylgjast með nú, en umferð þarna lagðist af þegar Vest- fjarðagöng voru tekin í notkun fyr- ir aldarfjórðungi. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Gunnlaugsskarð Enn sést fönn í efstu brún Esjunnar vestan við Kistufell, sem hverfur sennilega ekki eftir sumarið. Myndin er tekin úr Örfirisey. Esjuskaflinn lifir eftir kalt sumarið - Hvarf síðast 2019 - Hitamælir lands Yfirlit um rekstur Háskóla Íslands fyrir fyrstu sex mánuði þessa árs sýnir rekstrarhalla upp á 50 millj- ónir króna. Rekstraryfirlit fyrir skólann í heild var lagt fram á fundi háskóla- ráðs hinn 8. september síðastliðinn. Þar kom fram að tekjur skólans fyrstu sex mánuði ársins eru svip- aðar og á sama tíma í fyrra. Jenný Bára Jensdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs Háskóla Íslands, segir að þessar niðurstöður séu vel í sam- ræmi við áætlanir skólans. Gert hafi verið ráð fyrir 250 milljóna halla í ár en fyrningar frá fyrri árum kæmu á móti. Haustið sé oft þyngra í rekstri en fyrri hluti árs. Á fundi háskólaráðs var samþykkt að taka undir það sjónarmið að fjár- veiting til Raunvísindastofnunar Há- skóla Íslands verði færð undir fjár- veitingarlið Háskóla Íslands á fjárlögum, samanber ítrekaðar ábendingar Ríkisendurskoðunar. hdm@mbl.is Hallarekstur í Háskóla Íslands - Niðurstöður í samræmi við áætlanir Morgunblaðið/Ómar Hallarekstur Um 50 milljóna tap var í HÍ fyrstu sex mánuði ársins. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Á síðasta fundi borgarráðs lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram tillögu um að hætt verði við þau áform að leggja niður skólamuna- stofu Austurbæjarskóla. Skólamun- irnir eru geymdir í risi Austurbæj- arskóla en eins og fram hefur komið í fréttum, hyggjast skólayfirvöld í Reykjavík nýta húsnæðið fyrir tölvu- kennslu. Í tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Hildar Björns- dóttur og Kjartans Magnússonar, segir að um árabil hafi merkum mun- um úr skólastarfi í Reykjavík verið safnað saman til varðveislu í svo- nefndri skólamunastofu, sem stað- sett er í risi Austurbæjarskóla. Holl- vinafélag skólans hafi annast varðveislu gripanna og sýningarhald á þeim í sjálfboðavinnu. Í stað þess að leggja skólamunastofuna niður verði framtíð hennar tryggð, helst í núver- andi húsnæði í risi Austurbæjarskóla en annars í öðru hentugu húsnæði á vegum skóla- og frístundasviðs eða Borgarsögusafns Reykjavíkur. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins, Kolbrún Baldursdóttir, lagði fram til- lögu í sama anda. „Lagt er til að hætt verði við þessi áform og ákvörðunin endurskoðuð. Hér er um að ræða vanhugsað skref sem einkennist af geðþóttaákvörðun eftir því sem séð verður,“ sagði m.a. í tillögunni. Fram kemur í greinargerð með tillögunni að Flokkur fólksins sé ósáttur við þessa ákvörðun og finnst, að með henni sé skóla- og frístunda- svið og meirihlutinn í borgarstjórn að sýna skólamunastofunni, öllu því sem í henni er og þeim sem hafa haldið utan um munina mikla vanvirðingu. Tillögunum var vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs. Skólamunir fari hvergi - Tillögur í borgarráði að skólamunastofunni verði þyrmt Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skólamunastofan Þarna er m.a. að finna sýnishorn af handavinnu nemenda. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.