Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Síða 20

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Síða 20
366 tengslum við GATT samkomulagið en Bandaríkjaþing var þá enn fyrirstaðan og slík stofnun varð raunar ekki formlega til fyrr en árið 1995 með Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO).61 Bandaríkin urðu hins vegar stofnaðilar að Sameinuðu Þjóðunum (SÞ) og höfðu raun- ar mest að segja af öllum stofnríkjum um endanlega gerð ákvæða í Sáttmála SÞ.62 Frumkvæði og áhrif Bandaríkjanna í tengslum við aðrar alþjóðastofnanir sem margar voru settar á laggirnar í kjölfar síðari heimsstyrjaldar eru óumdeild og má t.d. nefna Alþjóðagjald- eyrissjóðinn (AGS), Alþjóðabankann og þá stofnun sem nú nefnist Efnahags- og framfarastofnunin (OECD). Hvað varðar Bandaríkin og SÞ, sem er án vafa mikilvægasta hnattræna alþjóðastofnun ríkja, má segja að staða Bandaríkjanna hafi þar framan af verið gríðarlega sterk. Þetta helgast einkum af því að Bandaríkin höfðu, líkt og fjögur önnur stórveldi, fastafull- trúa með neitunarvald í Öryggisráði SÞ, en þar fyrir utan voru vest- ræn ríki og bandamenn þeirra einnig með traustan meirihluta ríkja á bak við sig, bæði í Öryggisráðinu og á Allsherjarþingi SÞ. Þetta leiddi til þess að Bandaríkin gátu því sem næst stjórnað dagskrá í báðum stofnunum og engin ályktun kom til álita í þeirra óþökk. Á sjöunda áratug 20. aldar urðu hins vegar breytingar þegar mikill fjöldi nýrra ríkja gekk í SÞ og þróunarríki mynduðu meirihluta á Allsherjarþinginu. Er ljóst að staða Bandaríkjanna á vettvangi SÞ breyttist þá mjög.63 Síðustu áratugi hefur stirðleiki í samskiptum Bandaríkjanna gagnvart SÞ verið nokkuð áberandi sem hefur m.a. birst í tregðu Bandaríkjanna við að standa skil á þeim framlögum til SÞ sem Allsherjarþingið hefur ákvarðað. Hvað varðar alþjóðadómstóla og lausn deilumála á alþjóðavett- vangi má segja að almennt séu ríki heldur treg til að fallast á lög- sögu þess háttar dómstóla og þá ekki síst stórveldin. Bandaríkin gengust t.d. aldrei við lögsögu Fasta Alþjóðadómstólsins í Haag (FAD) sem starfaði í tengslum við þjóðabandalagið. Eftir stofnun SÞ féllust Bandaríkin hins vegar á almenna dómslögsögu Alþjóða- dómstólsins í Haag (AD) sem leysti FAD af hólmi með því að látin var í té almenn yfirlýsing þess efnis samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Sam- þykktar fyrir Alþjóðadómstólinn (SAD). Yfirlýsing Bandaríkjanna var hins vegar, eins og títt er, bundin fyrirvörum, en í tilfelli Bandaríkj- anna voru fyrirvararnir þó sérlega ítarlegir og margþættir. Þeir voru 61 Andreas F. Lowenfeld: International Economic Law. Oxford 2008, bls. 25-28. 62 Shirley V. Scott: International Law, US Power – The United States Quest for Legal Security, bls. 119. 63 John F. Murphy: The United States and the Rule of Law in International Affairs, bls. 3-4.  John F. Murphy: The United States and the Rule of Law in International Affairs, bls. 8.  John F. Murphy: The United States and the Rule of Law in International Affairs, bls. 250.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.