Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Blaðsíða 65

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Blaðsíða 65
411 andi (undir) eða þrengjandi (utan) lögskýringu.28 Við það val koma til skoðunar ýmis rök, leiðbeiningarsjónarmið og lögskýringarregl- ur. Þar sem val á lögskýringarleið, samkvæmt þeim skilningi sem verður lagður í viðhorf Róberts, hefur sjálfstæða þýðingu í lögskýr- ingarferlinu og fyrir það álitaefni hvort lagaregla nái til tiltekins til- viks standa rök til þess að lögskýringarleiðirnar séu ekki aðeins lýs- ing á niðurstöðu heldur sjálfstæður þáttur í túlkun lagaákvæðis. Í þessu sambandi má vekja athygli á því að Davíð þór tekur fram, sem fyrr er getið, að lögskýringarreglur hafa áhrif á niðurstöðu túlkunar lagaákvæðis. Það álitamál vaknar hvort lögskýringarreglurnar, sem hér hafa verið nefndar til sögu, hafi í fyrsta lagi sjálfstæða þýðingu og í öðru lagi hvar í lögskýringarferlinu þær hafa áhrif og þá hvernig. Fyrra álitaefnið rís vegna þess að spyrja má hvort þær leiði aðeins af öðr- um lögskýringarsjónarmiðum, s.s. texta- og samræmisskýringu og túlkun með vísan til eðlis máls og almennra matskenndra lagasjón- armiða, og bæta þ.a.l. í reynd engu við lögskýringarferlið. Síðara álitaefnið er uppi vegna þess að ekki er sjálfgefið, séu þær aðgreind- ar frá öðrum lögskýringarsjónarmiðum, að þær hafi ólík áhrif og komi til skoðunar á öðrum stöðum í lögskýringarferlinu en lögskýr- ingarsjónarmiðin. Með öðrum orðum má spyrja af hverju t.d. mark- miðsskýring sé ekki vegin gegn lögskýringarreglunni um að túlka beri undantekningar þröngt? Því er helst til að svara að þegar tekin er afstaða til þess hvernig túlka ber lagaákvæði þarf að huga að innbyrðis samhengi og tengslum einstakra þátta í þeirri starfsemi. Þessi tengsl þurfa að endurspegla þau rök sem búa að baki þýðingu þeirra fyrir lögskýr- ingarferlið, þ.e. að vera áhrifaþættir við túlkun lagaákvæðis í tiltek- inni lagamenningu (réttarkerfi). Ein ástæða gæti verið sú að lög- skýringarreglurnar (lagarökin), s.s. að túlka beri undantekningar, refsiákvæði og undanþágur frá sköttum þröngt en réttindi rúmt, eru almennt ekki skýrlega hluti af heildarsamhengi lagaákvæðis. Þær tengjast þó yfirleitt efni og framsetningu lagaákvæðis, málefna- sviði sem það tilheyrir og stöðu og tengslum þess við aðrar laga- reglur og lagasjónarmið í réttarkerfinu. Tengjast þær einatt kröfum réttarríkisins, mannréttindum og öðrum gildum í réttarkerfinu eða á einstökum réttarsviðum.29 Þar sem þau standa utan heildarsam- hengis lagaákvæðis, sé fallist á þessa ástæðu, en hafa samt þýðingu fyrir túlkun þess, má leiða rök að því að ástæða sé til að halda þeim utan við mat á heildarsamhengi þess og beita við val á lögskýring- 28 Róbert R. Spanó: Túlkun lagaákvæða, bls. 49-50, 283, 296 og 332. 29 Um gildi og túlkun lagaákvæða, sjá Jens Evald: Retskilderne og den juridiske metode. Kaupmannahöfn 1997, bls. 66-73, 87-98, 104-108 og 118-129.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.