Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Page 76

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Page 76
422 Georgíu. Í námsferðum fá þátttakendur góða kynningu á dóms- og réttarkerfi landanna sem eru heimsótt. Þannig fóru lögfræðingar á fund hjá Dómarafélagi Argentínu og hittu síðan aðstoðarforseta Hæstaréttar Argentínu. Einnig var þing landsins heimsótt og fund- ur haldinn með tveimur þingmönnum stjórnar og stjórnarandstöðu sem sögðu frá stjórnmálaástandinu. Auk þess eru helstu ferða- mannastaðir landanna heimsóttir og ferðirnar eftirminnilegar í alla staði. Hægt er að lesa sögur frá þessum ferðum á heimasíðu félags- ins. ANNAÐ Fjöldi félagsmanna síðustu ár hefur verið um 1150. Árið 2013 voru 524 áskrifendur að prentuðu hefti Tímarits lögfræðinga en 41 að rafrænni útgáfu sem mismunandi mikið er greitt fyrir eftir þeim fjölda sem hefur aðgang að því. Framkvæmdastjóri Lögfræðinga- félags Íslands er Eyrún Ingadóttir og er hún í 25% starfi en skrifstof- an er opin virka daga frá kl. 13:00-15:00. STJÓRNIR LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS Stjórn LÍ 2013-2014 Eyvindur G. Gunnarsson formaður, Hervör Þorvaldsdóttir varafor- maður, Jónína Lárusdóttir ritari, Ólafur Þór Hauksson gjaldkeri, Þóra Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Tímarits lögfræðinga. Páll Þórhallsson og Jóhannes Eiríksson voru meðstjórnendur. Stjórn LÍ 2012-2013 Kristín Edwald formaður, Eyvindur G. Gunnarsson varaformaður, Ólafur Þór Hauksson gjaldkeri, Jóhannes Eiríksson ritari og Mar- grét Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Tímarits lögfræðinga. Páll Þór- hallsson og Hervör Þorvaldsdóttir voru meðstjórnendur. Stjórn LÍ 2011-2012 Kristín Edwald formaður, Eyvindur G. Gunnarsson varaformaður, Ólafur Þór Hauksson gjaldkeri, Jóhannes Eiríksson ritari, Margrét Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Tímarits lögfræðinga. Páll Þórhalls- son og Hervör Þorvaldsdóttir voru meðstjórnendur.

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.