Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Side 41

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Side 41
387 laga að vera sprottin af siðferðilegum rótum, siðareglurnar taka á sig mynd laga þegar fram líða stundir. Hitt er vafasamara, að til- koma laganna geri siðareglur í reynd óþarfar þannig að til sé orðið „lokað kerfi“ í fyrrnefndum skilningi. Nú á dögum er almennt lagður þrengri og tæknilegri skilningur í lagahugtakið en fyrr á tímum. Ætli menn sér að leysa öll mál á grundvelli laganna einna er þar með verið að taka áhættuna á því að ekkert aftri fólki frá afbrotum annað en óttinn við að nást. Ef ótt- inn við refsidóm manna væri orðið það eina sem aftraði þeim frá glæpum mætti sannarlega segja að siðferðisreglur hefðu engu sjálf- stæðu hlutverki að gegna lengur. Með því að leggja alla áherslu á lagaákvæði og lagaramma sem nái utan um allar tegundir afbrota vanrækjum við það sem sumir myndu telja mikilvægara, þ.e. að efla með almenningi siðvitund og samvisku sem hvort tveggja hlýtur að vera til þess fallið að sporna gegn afbrotum. Í sjálfu sér er ekkert undarlegt við það að menn hafi lengst af ekki gert skýran greinarmun á lagareglum og siðferðisreglum. Bæði siðferðis- og lagareglur gegna því hlutverki að mæla fyrir um hegð- un fólks við tilteknar aðstæður. Andlag reglnanna er oftar en ekki af sama meiði þar sem rætt er um ábyrgð manna og skyldur, boð og bönn. Ennfremur getur reglum þessum svipað saman efnislega, t.d. þegar þær banna manndráp og mæla gegn líkamsmeiðingum, rán- um, svikum o.s.frv. Frá örófi hafa menn fylgt ýmiss konar reglum í samskiptum sínum, meðal annars til að verja eignarrétt, auka fyr- irsjáanleika og stuðla að friði. Gera má ráð fyrir að til grundvallar hinum fyrstu settu lögum hafi legið tiltekin gildi sem mótast höfðu á löngum tíma um hvað væri rétt og röng breytni, hvað væri ásætt- anleg hegðun og hvað ekki. Þau tilvik geta komið upp sem gefa mönnum tilefni til að draga í efa réttmæti þess eða tilgang að greina á milli laga og siðferðis. Tvennt kemur hér aðallega upp í hugann: Í fyrsta lagi ýmis voða- verk sem unnin hafa verið í nafni laga. Nægir þar að nefna stríðs- glæpi af ýmsu tagi, þar sem gerendur bera því við sér til varnar að athæfi þeirra hafi verið í samræmi við gildandi reglur laga og sjón- armið um gott eða slæmt siðferði skipti þ.a.l. ekki máli. Hin hliðin á sama peningi eru illvirki, svo sem hryðjuverk, unnin í nafni siðferðis- sjónarmiða, væntanlega með vísan til þess að þau „yfirtrompi“ öll lagaákvæði. Í öðru lagi þekkjum við dæmi um verk sem samræmast illa almennum siðferðiskröfum en látin eru refsilaus þar sem laga- ákvæði ná ekki yfir háttsemina. Af nýlegum dæmum mætti nefna blöndun iðnaðarsalts í matvæli eða framleiðslu á tilbúnum „kjöt- réttum“ sem innihéldu ekkert kjöt. Við umhugsun um þær marg-

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.