Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Qupperneq 44

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Qupperneq 44
390 rökræðu og greiningu og einmitt þar sem réttarkerfið hefur náð mestri framþróun. Traust okkar á lögin og mátt þeirra getur orðið að oftrausti. Lög geta enn verið ólög þótt komið sé fram á 21. öld. Íslenskir lögfræðingar hafa í laganámi tamið sér tiltekinn hugs- unarhátt eða aðferðarfræði, sem stundum er vísað til sem hins „júri- díska þankagangs“.28 Hin lagalega aðferð er verkfæri lögfræðings- ins þegar hann leiðir fram svar við spurningunni um hver sé gild- andi réttur. Einmitt þessi spurning, „hver er gildandi réttur?“, leiðir fólk á fund lögmanns og síðar lögmenn á fund dómara. Í leit að svari lítur lögfræðingurinn fyrst til settra laga. Leiðir það af þeirri stjórnskipan sem við búum við, þ.e. löggjafarvaldið er í höndum Alþingis sem þiggur umboð sitt frá þegnunum í gegnum almennar kosningar. Af þessu leiðir að sett lög frá Alþingi eru mikilvægar réttarheimildir sem horfa verður til þegar réttarreglu er slegið fastri. Ætla má að meginþorra landsmanna sé þetta ljóst og raunar örlar stundum á þeim misskilningi að ekki sé um fleiri réttarheimildir að ræða. Hin settu lög eru grundvöllur réttarríkisins, en hvernig sem menn vanda sig við að orða lagareglur, birta þær og framkvæma, sýnir reynslan að hvorki bannreglur né boðreglur duga til að öllum takist að feta hinn gullna meðalveg dyggðanna. Í tilviki kynferð- isbrota eru refsiákvæðin almennt svo skýr og afdráttarlaus að óger- legt er að halda því fram að óljóst sé hvert inntak ákvæðanna er eða tilgangur þeirra. Þrátt fyrir almenna alþjóðlega mannréttindasátt- mála, sáttmála um réttindi barna, refsiákvæði og barnaverndarlög halda menn áfram að fremja ofbeldisverk og illvirki. Skráðar og birtar lagareglur leysa því ekki allan vanda. 6. BREYTT HLUTVERK SIÐFERÐIS OG LAGA Spurningin um tengsl og aðgreiningu laga og siðferðis er ein þeirra sem mest hefur verið fjallað um á vettvangi réttarheimspekinnar á umliðnum öldum og áratugum. Fylla mætti heilu bókasöfnin ein- vörðungu með ritum um þetta efni.29 Hvað sem hins vegar líður líflegri umræðu í hinum akademíska heimi verður því vart á móti mælt að vegur siðferðisreglna hefur farið dvínandi, hér á Vestur- löndum að minnsta kosti. úr lagasafninu mætti tilgreina sem dæmi um þetta þá breytingu sem gerð var með gildistöku laga nr. 40/2002 um fasteignakaup, þar sem tekið var af skarið um að það sé gildis- 28 Davíð Þór Björgvinsson: „Völundarhús hins júridíska þankagangs“. Úlfljótur 1995, bls. 379 og 382. 29 Sjá t.d. Ármann Snævarr: Almenn lögfræði, bls. 106-117; Garðar Gíslason: Eru lög nauð- synleg? Reykjavík 1991, bls. 115-136; Sigurður Líndal: Um lög og lögfræði: Grundvöllur laga – réttarheimildir, bls. 32-38.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.