Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Page 53

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Page 53
399 ingu, opinbert eftirlit og fleira má ætla að enn sé fátt haldbetra í þessu tilliti en siðfræðileg undirstaða og gagnrýnin hugsun. Ef marka má þau orð sem vitnað var til í byrjun þessarar greinar hefði hinn spakvitri Laozi vart verið líklegur til að telja nákvæma löggjöf bestu lausn við öllum vanda. Lög og siðferði gegna að sönnu mikilvægu hlutverki á vegferð okkar, en svo sem hinn vitri meistari Laozi benti á fyrir margt löngu duga þau viðmið skammt, ein og sér. Ofar þessum viðmiðum standa hugsjónir og almenn góðvild. Þar fyrir ofan ber hinar sígildu dyggð- ir við himinn, svo sem auðmýkt, glaðværð, heiðarleiki, hugrekki, mildi, miskunnsemi, samvinna, sálarró, skilningur, sjálfsagi, stöðug- leiki, sveigjanleiki, sannsögli, viska og þolinmæði, sem lýsa leiðina í átt til æðstu markmiða mannlegs samfélags, þar sem menn lifa í sátt við sjálfa sig og aðra. Í þessu stóra samhengi hlutanna berum við, hvert og eitt, þyngsta ábyrgð. „Því er það að dygðin tekur við þar sem ferlinu sleppir, góðmennskan tekur við er dygðinni sleppir, réttlætið tekur við er góðmennskunni sleppir, og siðirnir taka við þar sem réttlætinu sleppir.“ Laozi, Ferlið og dygðin, úr 38. versi.36 36 Laozi: Ferlið og dygðin, bls. 113-115.

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.