Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Síða 59

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Síða 59
405 skýringu nánar svo að með henni sé „efni ákvæðis rýmkað með lög- skýringu út fyrir þau vébönd, sem orð ákvæðis marka …“. Einstök orð kunni að vera tvíræð og oft sé völ tveggja kosta, rýmri og þrengri. Ef valinn er rýmri kosturinn sé um rúma ákvarðandi skýr- ingu að ræða en ekki rýmkandi lögskýringu. Að lokum tekur Ár- mann fram að skilin milli rýmkandi lögskýringar og lögjöfnunar séu ekki hnitmiðuð. Ef efni ákvæðis er rýmkað með stoð í gögnum sem sýna að túlkunin sé í samræmi við viðhorf löggjafans eða til- gang ákvæðisins sé um að ræða rýmkandi lögskýringu en ekki lög- jöfnun. Hið sama eigi við um tilvik sem ekki er getið í ákvæði en hljóti að rúmast þar af rökbundinni nauðsyn, t.d. með vísan til sam- ræmisskýringar.7 Kallar hann rýmkandi lögskýringu og lögjöfnun „nánast lögfræðileg frændsystkini“.8 Í sama anda er umfjöllun Davíðs Þórs Björgvinssonar. Með rýmk- andi og þrengjandi lögskýringu sé átt við að efni settrar lagareglu sé ákvarðað rýmra eða þrengra en orðalag hennar gefur til kynna.9 Róbert R. Spanó segir um tengsl lögskýringarleiða og lögskýringar- aðferða/-sjónarmiða að heildarmat á samhengi lagaákvæðis leiði að lokum til ályktunar um val á milli tækra túlkunarkosta. Val „á endanlegum túlkunarkosti [sé] byggt á lögskýringarleið sem er niður- staða lögskýringar“.10 Fellst hann á nálgun Lárusar H. Bjarnasonar að „[rýmri] og þrengri lögskýring [sé] úrlausn slíkra vafaspurninga kölluð, eftir því, hvort hallast er að rýmri eða þrengri merkingu orðanna“;11 rýmkandi og þrengjandi lögskýring feli í sér aðferðir til að leysa úr vafatilvikum. Almenn lögskýring sé þá sú leið, sem val- in er, þegar ekki er fyrir hendi vafi að loknu heildarmati á samhengi lagaákvæðis.12 Dregur hann þá ályktun að sá greinarmunur sé á viðhorfum hans og Lárusar annars vegar og Ármanns og Davíðs 6 Ármann Snævarr: Almenn lögfræði, bls. 525. 7 Ármann Snævarr: Almenn lögfræði, bls. 528-529. 8 Ármann Snævarr: Almenn lögfræði, bls. 535. 9 Davíð Þór Björgvinsson: Lögskýringar. Reykjavík 1996, bls. 97 og 108. Sjá einnig Davíð Þór Björgvinsson: Lögskýringar. Kenningar, aðferðir og sjónarmið við skýringu og beitingu laga. Reykjavík 2008, bls. 23-24, en þar segir: „Með almennri lögskýringu er átt við að efni laga- ákvæðis sé ákvarðað í samræmi við orðalag þess og efnið því hvorki þrengt né rýmkað, miðað við það sem eðlilegur skilningur (almennur, sérfræðilegur og lögfræðilegur) á orðalagi þess gefur tilefni til.“ Síðan segir hann að með þrengjandi lögskýringu sé átt við að efni lagaákvæðis sé orðað þrengra en orð þess gefa til kynna og færri tilvik falli undir ákvæðið en ætla mætti eftir orðanna hljóðan. Rýmkandi lögskýring er þá andstæðan við þrengjandi lögskýringu. Sjá einnig sömu heimild, bls. 160-184, fyrir nánari umfjöllun um lögskýring- arleiðirnar. 10 Róbert R. Spanó: Túlkun lagaákvæða. Reykjavík 2007, bls. 277. 11 Lárus H. Bjarnason: Lög og lögskýring. Reykjavík 1916-1917, bls. 49. 12 Róbert R. Spanó: Túlkun lagaákvæða, bls. 280-283.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.