Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Page 70
416
París. Í dag eru þetta minnismerki um góðæri sem gekk þjóðinni úr
greipum og hún hefur ekki getað endurskapað þrátt fyrir gjöfult
land. Argentínumenn fagna í ár 30 ára lýðræði eftir kvalafullt tíma-
bil herræðis og niðurlægingu Falklandseyjastríðsins. Spilling og
misskipting auðs stendur í vegi fyrir framförum. Þó er enn að
nokkru leyti byggt á arfleifð Evu Peron og eiginmanns hennar sem
stóðu fyrir félagslegum umbótum. Eva Peron er alls staðar nálæg í
umhverfi og tali fólks.
Efnahagsástand Argentínu minnir á íslenskan veruleika en okk-
ar úrlausnarefni verða smá í samanburðinum. Það eru ströng gjald-
eyrishöft í Argentínu og dollarar eftirsóttir. Ferðamenn freistast til
að skipta við ólöglega gjaldeyrisbraskara í skuggasundum til að fá
helmingi fleiri pesóa fyrir dollarana sína og taka áhættuna á að fá í
hendur falsaða seðla.
HÆSTIRÉTTUR, DÓMARAFÉLAG OG ÞJÓÐÞING ARGENTÍNU
Íslenski hópurinn heimsótti argentínska þingið. Verið var að vinna
að endurbótum á þinghúsinu, sem er eitt helsta kennileiti borg-
arinnar, en fjárveitingar til viðhalds höfðu greinilega ekki verið
miklar í gegnum árin.
Stjórnskipulag Argentínu líkist bandarísku stjórnskipulagi.
Þingið starfar í tveimur deildum, einni allsherjardeild og einni hér-
aðadeild. Þingkosningar voru rétt afstaðnar og nýtt þing ekki enn
komið saman. Dómarafélag Argentínu tók höfðinglega á móti okk-
ur í virðulegum húsakynnum sínum þar sem áhugaverðar umræð-
ur sköpuðust. Við heimsóttum einnig Hæstarétt Argentínu sem er
til húsa í glæsilegu dómshúsi sem reist var í byrjun 20. aldar. Vara-
forseti dómsins, Elena Inés Highton de Nolasco, tók á móti okkur.
Þrátt fyrir að árin hefðu beygt þessu konu þannig að hún var nánast
í keng þá geislaði hún af persónutöfrum, greind og húmor. Henni
fannst með endemum að svona stór hópur frá slíkri örþjóð væri að
þvælast alla leið til Argentínu.
UNDIR, YFIR OG ALLT Í KRING UM STÓRKOSTLEGA REGN-
SKÓGARFOSSA
Eftir nokkra daga í miðborg Buenos Aries, með yfirþyrmandi mann-
hafi og bílaumferð, var ekki laust við að íslenskum eyjarskeggum
þætti góð tilbreyting að lenda í friðsælli sveit við Iguazu fossana
þar sem við bjuggum á ævintýralegu hóteli með hengirúm á milli
bygginga og sundlaugar inni í regnskóginum. Regnskógarnir skila
þarna af sér gífurlegu vatni sem mynda þvílíka fossa að Dettifoss og
Gullfoss til samans eru hjóm í samanburðinum. Þessa fossa skoð-