Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Side 75

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Side 75
421 úTGÁFUSTARFSEMI Lögfræðingafélagið sendir reglulega út tölvupóst á félagsmenn sína þar sem auglýstir eru þeir atburðir sem í boði eru hverju sinni í samfélagi lögfræðinga. Reikna má með að félagsmenn fái tölvupóst frá félaginu tvisvar í viku. Einnig heldur félagið úti heimasíðu þar sem helstu viðburðir í félaginu eru tíundaðir nánar. Árið 2012 var byrjað að gefa út rafrænt fréttabréf LÍ. Misjafnt er hve mörg hefti koma út á ári en hægt er að nálgast þau á heimasíðu félagsins. Ritstjóri frá upphafi hefur verið Páll Þórhallsson og í rit- nefnd sitja auk hans formaður og framkvæmdastjóri félagsins. Tímarit lögfræðinga kemur út fjórum sinnum á ári. Ókeypis aðgangur er að fyrstu 53 árgöngum tímaritsins á www.timarit.is en aðrir árgangar fást keyptir í vefverslun á heimasíðu félagsins www. logfraedingafelag.is. Félagið er einnig með samning við FonsJuris um endursölu á rafrænu tímariti í gegnum vef sinn. Róbert R. Spanó, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, var ritstjóri til 2013 en frá og með 2. hefti þess árs hefur Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, ritstýrt tímaritinu. ÖLDUNGADEILD LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS Mikil gróska hefur verið í öldungadeild LÍ frá því að hún var stofn- uð, 28. nóvember 2007, og má með sanni segja að hún sé fjöður í hatt félagsins. Yfir vetrartímann heldur deildin mánaðarlega fundi og er efni þeirra af ýmsu tagi. Formaður öldungadeildar er Hörður Ein- arsson hæstaréttarlögmaður, en auk hans eru Ingimundur Sigfús- son og Elín Norðdahl í stjórn starfsárið 2013-2014. Frá stofnun árið 2007 til ársins 2012 var Hrafn Bragason, fyrrverandi hæstaréttar- dómari, formaður en hann var einnig stofnandi deildarinnar. Þeir lögfræðingar sem nú eru skráðir í öldungadeildina eru 72 talsins en að jafnaði sækja um 20-30 manns fundi hennar hverju sinni. Auk þess hefur deildin efnt til stuttra dagsferða á vorin og var til dæmis farið í einstaklega vel heppnaða dagsferð í Hvalfjörð und- ir leiðsögn Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, rithöfundar og fyrrver- andi alþingismanns, árið 2013. Þema ferðarinnar var hlutverk og þýðing Hvalfjarðar í síðari heimsstyrjöldinni og var meðal annars farið í hernámssetrið í félagsheimilinu Hlöðum. NÁMSFERÐIR Lögfræðingafélagið efnir til námsferða annað hvert ár. Ferðirnar hafa í gegnum tíðina verið mjög vinsælar en haustið 2013 fór 46 manna hópur til Argentínu og árið 2011 fór 46 manna hópur til

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.