Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Blaðsíða 11

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Blaðsíða 11
boð mikið, og fannst mér til um virðuleik húsbónda míns og hver virðing honum var sýnd. Ef við stöldrum aðeins við vegna þessa atviks, er ég áður lýsti, vil ég minna á, að það gerðist á því Herrans ári 1914, en óðalsbóndinn, sem reiddist, mun hafa verið fæddur laust eftir 1850 — ef til vill minn- ugur harðra kosta á uppvaxtarárum, en Noregur er harðbýlt land sem Island. Þá voru öll skilyrði ólík þeim, sem komin voru til sögunar er þetta bar til, og svo gerólík sem hugsast geta skilyrðum þeirra vel- gengnistíma sem við nú lifum á. Minnugur reynslu forfeðranna var hann að gefa börnum sínum ráðningu, sem þau áttu að læra af og muna, og hann gerði það með þeim hætti, sem honum flaug í hug á þessari sömu stund — án umhugsunar um háttvísi — eða gleymdi hann henni af ásettu ráði? Hann sleikti diskinn sinn. Þetta skyldi vera sú ráðning, sem gleymdist ekki. Sjálfum hefur honum fundizt, að hann væri að vara við hættum, öðrum og meiri er koma myndu í kjölfar þeirrar borgarvenju að skilja eftir dálítið af mat á diskinum sínum, og af því að skapið var mikið hlaut þetta gos að koma. Lyppast niðar gat hann ekki. Og hann var óumdeilanlega sá, sem valdið hafði, sá, sem hafði agað sín börn, er alin höfðu verið upp í þeim anda, að heiðra föður sinn og móður svo þau yrðu langlíf í landinu. Enn voru þeir tímar, er hið gamla var virt, það, sem gamalt var og gott — og ef til vill líka sumt, sem var miður gott, og tengslin voru traust milli foreldra og barna. Síðar — á lýðháskóla í Noregi 1917 — heyrði ég oft unglingana syngja af innileik og tilfinningu: Du gamle mor du sliter arm, so sveitten <?r som blod, eftir Aasmund Olavson Vinje. Og þess er ljúft að minnast sem flests annars frá þessum löngu liðna tíma. En það varð stutt í Noregsdvölinni, mikklu styttra en ég hafði ætlað. Eleimstyrjöld reið yfir og vegna óvissunnar um hversu lengi hún mundi standa og siglingar heim óvissar ákvað ég að reyna að komast heim um Danmörku, og á leiðinni frá Þrændalögum suður fjöllin til Kristjaníu sat ég innan um tóma Þjóðverja, sem sungu við raust og hrópuðu annað t'eifið: Til Parisar, til St. Pétursborgar. Það átti að sigra heiminn með valdi vopnanna. Rödd Berthu von Suttner, höfundar hinnar frægu skáldsögu Die Waffen Nieder var þögnuð. Ég hef rifjað upp nkkrar minningar frú sumrinu 1914 um atburði, sem áttu sér stað áður en hildarleikurinn mikli, fyrri heimsstyrjökl, hófst, og af þeim og fleirum bjarmar enn í huga mínum, en enginn má ^tla, að mér hafi ekki verið ljóst — og hafi jafnan verið — að þá, fyrr og síðar, fór því fjarri að allt væri í ljómanum. Öll saga var þá sem ávallt 5 L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.