Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Qupperneq 40

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Qupperneq 40
Merkur maður sagði eitt sinn við mig um sjómannasöng föður míns: „Þetta er okkar sjómannasöngur". Það var í einlægni mælt, en þótt þetta fagra ljóð hafi ævarandi gildi var það sjómanna- söngur róðrarbáta- og skútualdarinnar framar öðru, og það er eins með hinn snjalla fánasöng Einars Benediktssonar. Hann var fánasöngur í baráttunni fyrir bláhvíta fánanum, og hefur að sjálf- sögðu sitt ævarandi gildi sem fánasöngur. Tilgangslaust er annað en horfast í augu við þessi augljósu sannindi. Deilurnar hörðnuðu. Andstæðingar fánans kölluðu hann í lítils- virðingarskyni „Kritarfánann". Einnig var hann stundum kallað- ur Stúdentafélagsfáninn. Því var mjög á loft haldið af andstæð- ingum hans, sem bergmáluðu í því efni skoðanir Dana, hve líkur hann væri gríska fánanum. Og svo var því haldið fram, að hann væri ekki heppilegur siglingafáni, og athuganir gerðar það varð- andi, og munu niðurstöður um þetta hafa reynzt þungar á met- unum. Af ýmsum, einkum dansklunduðum embættismönnum og kaup- mönmrm, var hampað mjög sögu um það, að er Friðrik konungur Vni kom til íslands 1907 hafi hann sagt, er hann sá bláhvítan fána við hún: „Þetta á nú viö hann bróður minn“ (þ. e. Georg Grikkjakon- ung). En merkan mann heyrði ég segja, að sér fyndist fara vel á því, að einmitt íslendingar og Grikkir hefðu sömu fánaliti og fána líka að gerð. Því fór fjarri að allir kaupmenn í Reykjavík væru dansklund- aðir og andstæðingar bláhvíta fánans, og einn þeirra var meðal hinna f jnrstu, sem drógu hann á stöng. Og nú var þá svo komið, að alþýða manna sá þó blakta hlið við hlið Dannebrog í þessum bæ fána, sem henni gat þótt vænt um, og boðaði framtíð án fátækt- ar og kúgunar. Vafalaust þurftu margir að stappa í sig stálinu til þess að taka í sig kjark og flagga með bláhvíta fánanum, og það mun hafa komið fyrir að róið var í menn til þess að fá þá ofan af slíkum tiltektum. Ég hef aldrei getað gleymt atviki frá þessum árum. Ég var þá enn innan við fermingu og á rjátli einhverju í austurbænum, og nam staðar við trégirðingu, en innan girðingar var húseigandinn að draga Dannebrog að hún á flaggstöng á húsi sínu. Maður nokk- 34

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.