Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Side 47

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Side 47
að sjá okkur þarna í hóp, „nú gætu menn þó talað saman“. Þessi °rð þurfa í rauninni engrar útskýringar við, þótt á megi minna, að deilur milli blaða voru áður miklu persónulegri og harðari, og frá upphafi þess tíma er hér um ræðir, við formennsku Þorsteins heitins Gíslasonar, og síðar annarra góðra manna, varð ég aldrei annars var en að félagssamstarfið væri ágætt, þrátt fyrir ólíkar stjórnmálaskoðanir og sjónarmið. Og samstarfið milli FB og blað- anna var jafnan á grundvelli velvildar og trausts, og hefði hún ekki ella starfað í hálfan annan áratug. Skúli Skúlason skipulagöi FB. Skúli Skúlason ritstjóri skipulagði FB og var forstöðumaður hennar fyrst í stað, eða þar til hann fluttist til Noregs, en hann var blaðamaður við Morgunblaðið, áður en FB var stofnuð. Það hggur í augum uppi, hve margt er gerbreytt frá þeim tíma, er FB tók til starfa, og kemur það fram beint og óbeint í því, sem á eftir fer. Skúli Skúlason gerði eftirfarandi grein fyrir tilganginum með stofnun FB, tilhögun o. frv., í tilkynningu, sem birt var í blöðun- unum í janúar 1924. Þar segir svo: Blaðamannafélag Islands hefur komið á fót almennri fréttastofu hér í Reykjavík í þeim tilgangi að afla íslenzkum blöðum og fréttafélögum (sjá síðar) meiri og áreiðanlegri frétta en kostur hefur verið á áður. Væntir stofan að geta að staðaldri flutt merkustu útlendar fréttir og þær fréttir innlendar, er máli skipta, Rjótt og vel og hefur í þeim tilgangi fengið fasta fréttaritara víða um land, en væntir þess einnig, að al- uienningur geri stofunni viðvart um það, sem gerist markvert, ef ætla má, að hún hafi ekki fengið fregn af því. Skúli Skúlason. 41

x

Rökkur : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.