Bændablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022
Þá lék lúðrasveit en því næst tók til
máls forsætis- og landbúnaðarráðherra.
Í máli sínu taldi hann vel til fallið
að efna til þessarar sýningar og
benti á að margar helstu framfarir í
búnaðarmálum Suðurlands mætti
rekja til giftudrjúgrar forystu
Búnaðarsambands Suðurlands.
Ráðherrann sagði að vormönnum
Íslands hefði verið það ljóst að stórum
steinum yrði ekki velt nema með
sameiginlegu átaki. Sterk og þroskuð
félagshyggja hefði verið nauðsynleg
til að hrinda áleiðis þeim verkefnum
er lágu fyrir. Fór ráðherrann nokkrum
orðum um þessa félagshyggju, taldi
henni margt til gildis og sagði að
megininntak hennar hefði verið að
vera trúr sínu þjóðfélagi og vinna því
allt sem menn máttu.
Þá sagði hann að nú væri margt
unnið gegn hagsmunum þjóðarinnar
undir yfirskini félagshyggju.
Ráðherrann lauk máli sínu með því
að segja Landbúnaðarsýninguna á
Selfossi opnaða.
Í umfjöllun Morgunblaðsins um
sýninguna segir: „Margar konur
stöldruðu við í eldhúsi sýningarinnar,
sem er búið öllum fullkomnustu vélum.
Sýning tækja frá aldamótaárunum
vakti óskipta athygli margra svo og
handavinnusýning kvenfélaganna.
Garðyrkju- og blómasýninguna
skoðuðu menn yfir rjúkandi
kaffibollum og gripasýningin dró til
sín margt forvitinna áhorfenda.“
Vegvísir inn í framtíðina
Við setningu Landbúnaðar-
sýningarinnar á Selfossi 1978, sem
haldin var í tilefni af 70 ára afmæli
Búnaðarsambands Suðurlands,
flutti Stefán Jasonarson í Vorsabæ,
formaður Búnaðarsambands
Suðurlands, ávarp. Hann sagði meðal
annars að með þessari sýningu vildi
Búnaðarsamband Suðurlands minna á
þátt landbúnaðarins í íslensku þjóðlífi
og minna á liðna tíð. Stefán sagðist
einnig vona að sýningin mætti verða
vegvísir inn í framtíðina.
Kristján Eldjárn, forseti Íslands,
segir í upphafi ávarps síns í
sýningarskránni að: „Ein helsta
nauðsyn íslensku þjóðarinnar og
skylda flestum æðri í nútíð og framtíð
er að hafa gott samkomulag við landið
sem hún byggir.“
Sýningin var haldin í Gagnfræða-
skólanum á Selfossi og nærliggjandi
útisvæðum og voru sýnendur 106
og þar á meðal Vélprjónasamband
Íslands, Samband sunnlenskra kvenna
og Samband vestur-skaftfellskra
kvenna sem kynntu heimilisiðnað.
Afurðasalar kynntu framleiðslu sína
og kynnt var garðyrkja og skógrækt.
Búfjárræktendur sýndu gripi og
vélasalar kynntu tæki og tól.
Dagblaðið Vísir gaf út veglegt
sérblað um sýninguna þar sem
blaðamenn blaðsins fóru á staðinn og
ræddu við sýnendur og gesti.
Máttur lífs og moldar
Árið 1987 var haldin landbúnaðar-
sýning í Reiðhöllinni í Víðidal sem
kallaðist Bú 87.
Bændablaðið gaf út 32 síðna
aukablað vegna sýningarinnar þar sem
fjallað er um sýnendur og það sem
þótti áhugaverðast á henni.
Ólafur H. Torfason, sem þá
starfaði hjá Upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins, sagði í inngangi
að blaðinu í grein sem hann titlar
Landbúnaðurinn er siðmenningin:
„Landbúnaðurinn er lífið sjálft. Þess
vegna finnst borgarbúanum svo
endurnærandi að koma í sveitina.
Bóndinn er lifandi afl, sem ræktar
og kemur lífverum til þroska.
En hann varðveitir á sama hátt
leyniþráð menningarsögunnar á
jörðinni. Hlutverk hans er göfugt og
stórbrotið. Landbúnaður er upphaf
menningarinnar á þessari jarðkúlu.
Sjálft orðið menning á alþjóðatungum:
CULTURE, – KULTUR o.s.frv.,
– þýðir ekkert nema RÆKTUN.
Og þar voru árstíðasveiflur sem
komu syngjandi ræktendum og
búfjáreigendum á sporið við Níl,
Indus, Jangtsekíang, Efrat og Tígris.
Þarna upplaukst stjörnufræðin og
tímareikningurinn – og þar með allur
reikningur.
Seinna dröttuðust á eftir siglingar,
bókmenntir og myndlist.“
Rúmlega 70 sýnendur voru
á Bú 87 og spönnuðu þeir flest
svið landbúnaðarins á bæði inni-
og útisvæði.
Landbúnaðarsýningin í
Laugadalshöllinni 1968
Búnaðarfélag Íslands stóð reglulega
fyrir bændaferðum á Smithfield-
sýninguna á Bretlandi á sjötta og
sjöunda áratug síðustu aldar í gegnum
Bændaferðir sem voru reknar af
Búnaðarfélaginu.
Að sögn þeirra sem til þekkja voru
þessar ferðir að vissu leyti skrýtnar.
Aldrei var spurt um kostnaðinn á þeim
og ferðirnar í fyrstu eingöngu ætlaðar
körlum og engar konur fengu að fara
með. Bændur áttu það til að vera ansi
blautir og slarksamir í þessum ferðum
og sýningin uppnefnd Spritfield. Árið
1966 fengu konur í fyrsta sinn að koma
með og af 86 þátttakendum voru 30
konur og 12 þeirra mættu á flugvöllinn
og á sýninguna í peysufötum.
Landbúnaðarsýningin í Laugardals-
höllinni var að hluta til haldin vegna
vinsælda Smithfield-sýninganna
og stóðu Búnaðarfélag Íslands og
Framleiðsluráð landbúnaðarins fyrir
henni. Markmiðið með sýningunni
var að kynna þróun landbúnaðarins
og framleiðslu hans. Sýningarsvæðið
utandyra var á stóru svæði austan við
Laugardalshöllina. Útisvæðið var 3,8
hektarar að stærð og mjög blautt og
með opnum skurðum þegar ákveðið
var að nota það. Byrjað var á að setja
rör í skurðina og fylla þá og því næst
voru lagðir vegir um svæðið og það
girt, sáð í það eða þökulagt. Sett
voru upp þrjú gripahús á svæðinu,
fyrir sýningargripina, hross, sauðfé,
nautgripi, svín og hænsni. Auk
þess sem gerður var dómhringur og
hlaupabraut og smíðuð rétt.
Kappkostað var við að allir gripir
á sýningunni væru úrvalsgripir, hvort
sem það voru hestar, nautgripir eða
sauðfé. Sýnendur voru 80 og þar
af voru 56 með bás innandyra en
34 voru utandyra, mikið vélasalar,
og sumir sýnendur bæði innan-
og utandyra. Sýnendurnir komu
víða að en flestir voru þeir tengdir
landbúnaði á einn eða annan hátt.
Samband íslenskra samvinnufélaga
var stærsti sýnandinn og lagði undir
sig allt sviðið í Laugardalshöllinni. Á
sýningunni voru kvikmyndasýningar
á hverjum degi og á öðrum stað
var sýning og lýsing á gömlum
munum og bekkirnir voru þéttsetnir
alla daga þegar Vigdís Jónsdóttir,
skólastjóri Húsmæðrakennaraskólans,
og nemendur hennar voru með
sýnikennslu í matargerð.
Sýningin heppnaðist vel og hana
sóttu 94 þúsund manns og var hún
langmest sótta sýning hér á landi til
þess tíma.
Bú 2000 hófst í Laugardalshöllinni
Landbúnaðarsýningin Bú 2000
fór fram í Laugardalshöllinni
og á útisvæðinu umhverfis hana
aldamótaárið 2000. Um 70
fyrirtæki, búgreinafélög
og menntastofnanir í
landbúnaði voru með
kynningu á vörum
sínum og þjónustu á
sýningunni.
Ari Teitsson,
þáverandi for-
maður Bænda-
samtaka Íslands, opnaði
sýninguna formlega og sagði
að á þessum tímamótum, þegar
aldir og árþúsundir mættust, stæði
landbúnaður styrkum fótum og að
íslenskar búvörur væru vaxandi þáttur
í neyslu þjóðarinnar, þrátt fyrir aukinn
innflutning búvara síðustu misseri.
Hann sagði að sú ákvörðun að halda
sýninguna í Reykjavík væri táknræn.
„Sagt hefur verið að gjá hafi
myndast á milli þéttbýlis og dreifbýlis
síðustu ár og að íbúar þessara svæða
hafi fjarlægst hver annan. Þessa
gjá viljum við brúa því það er bara
pláss fyrir eina þjóð í þessu landi.
Bú 2000 er framlag landbúnaðarins
til Reykjavíkur – menningarborgar
Evrópu árið 2000.“
Fjölbreytni íslensks landbúnaðar
Í tilefni af 100 ára afmæli Búnaðar-
sambands Suðurlands var haldin
Landbúnaðarsýning á Gaddstaða-
flötum við Hellu árið 2008. Sýningin
var, eins og sagði í kynningu um hana,
þróunar- og tæknisýning sem jafnframt
átti að kynna hlutverk og stöðu íslensks
landbúnaðar í þjóðfélaginu. Markmið
sýningarinnar var að kynna fjölbreytni
íslensks landbúnaðar, hátt tæknistig
og þá miklu þekkingu sem er að finna
innan greinarinnar.
Á sýningunni voru sýnd tæki og
vélar, afurðir og búfé auk þess sem
kynnt var ýmis þjónusta og vörur
tengdar landbúnaði. Samstarfsaðilar
Landbúnaðarsýningarinnar á Hellu
2008 voru Mjólkursamsalan,
Kaupþing, Bændasamtökin, Slátur-
félag Suðurlands og sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið.
Silfurpeningurinn sem
Einar Jónsson mynd-
höggvari hannaði fyrir
b ú s á h a l d a s ý n i n g u
Búnaðarfélags Íslands
árið 1921. Aðeins er vitað
um tvo slíka peninga
í einkaeign hérlendis.
Mynd / Myndasafn Bbl.
LÍF&STARF
Íslenskt fyrirmyndarheimili á Landbúnaðarsýningunni 1947.
Mynd / Myndasafn Bændasamtaka Íslands
Gaddavír og skilvinda. Sýningarskrá Búsáhaldasýningarinnar 1921.
Mynd / Úr sýningarskrá
Ýmis fyrirtæki dreifðu sérritum um vörur
sínar og þjónustu á Landbúnaðar-
sýningunni á Selfossi árið 1958.
Mynd / Sérrit Dráttarvéla
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson var fjár- og geitahirðir á Landbúnaðarsýningunni
1968. Mynd / Einkasafn
Þúfnabaninn og fleiri eldri landbúnaðartæki á sýningunni 1947. Mynd / Myndasafn Bændasamtaka Íslands