Bændablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022
„Síðast þegar við vorum að rífa
til að koma róbótanum inn sá ég að
þakið var einangrað með torfi eða
mosa, þannig að sá hluti var eins
gamall og hann getur orðið.“
Tækifærið kæmi ekki aftur
Í byrjun árs 2022 sagði nágranni
þeirra á Refsstöðum að hann hygðist
bregða búi og setja jörðina á sölu.
„Fyrst þegar ég heyrði af sölunni
þá ýtti ég henni eiginlega af borðinu.
Það var ekkert draumur hjá okkur
að verða svona rosalega stór, en svo
fórum við að skoða þetta nánar og
sáum að þessi fjárfesting væri ekki
galin,“ segir Arnþór.
Allt gerðist mjög fljótt. Fyrstu
hugmyndirnar af sameiningu
búanna koma í byrjun mars. Undir
lok mánaðarins gera þau kauptilboð
í jörðina með fyrirvara um
fjármögnun. Svarið frá bankanum
kom 28. mars og Arnþór og Birna
taka við Refsstöðum 1. apríl.
Tímasetningin hentaði þeim
ekkert allt of vel, því Birna átti von
á barni snemma sumars. Þau áttuðu
sig samt á því að þetta væri tækifæri
sem kæmi ekki aftur, því hugsanlegt
var að kvótinn færi á tilboðsmarkað
og Refsstaðir hefðu þá staðið eftir
án framleiðsluréttar. Þau þurftu því
annaðhvort að hrökkva eða stökkva.
Þar sem jarðirnar liggja saman er
auðvelt að fá heimild til að sameina
búin og færa allan kvótann yfir á
eina jörð. „Nú er ég kominn með
750 þúsund lítra kvóta, en var
bara með 280 þúsund lítra hérna á
Signýjarstöðum áður,“ segir Arnþór.
Nútímaleg aðstaða á Refsstöðum
Á Refsstöðum eru tveir mjaltaþjónar
og 120 legubásar, en Birna segir að
líklegast sé hæfilegt að vera með 110
kýr hverju sinni.
„Fjósið á Refsstöðum er miklu
þægilegra fjós, en það var upphaflega
byggt sem róbótafjós,“ segir Arnþór.
Fjárhagsáhyggjur horfnar
Arnþór segir að fjárhagsáhyggjur
sem fylgdu rekstrinum áður séu nær
horfnar. Þau gátu lagst í fjárfestingar
á tækjabúnaði í sumar sem hefðu
annars þurft að bíða í mörg ár ef
einungis búið á Signýjarstöðum
stæði á bak við þær. „Áður þurfti
ég virkilega að pæla í hverri krónu,
en með sameinuðu búi stöndum við
miklu betur.“
Upphaflega stóð til að færa allar
kýrnar yfir að Refsstöðum og nýta
húsin á Signýjarstöðum sem aðstöðu
til uppeldis. Þar sem byrjað var
að borga fyrir alla mjólk umfram
kvóta núna í sumar hafa þau slegið
endanlegri sameiningu á frest og
mjólka á báðum stöðum.
Geta verið með vinnumann
Þau viðurkenna að þetta sé mikið
meiri vinna, en þar sem reksturinn
stendur á traustari grunni þá geta
þau bæði verið með fulla atvinnu
af búskapnum ásamt því að ráða til
sín vinnumann.
Með því að vera með vanan
starfsmann í vinnu sjá þau fram á
að geta tekið frí. Það var eitthvað
sem ekki var hlaupið að áður. Með
tíð og tíma stendur til að selja hluta
úr jörðinni á Refsstöðum til að losa
um fjármagn.
Þar er til að mynda íbúðarhús og
gestahús sem þau ætla að láta frá sér.
Sjálf ætla þau að halda áfram búsetu
á Signýjarstöðum í íbúðarhúsi sem
þau byrjuðu að byggja fyrir nokkrum
misserum. „Það að keyra í fimm
mínútur að Refsstöðum og í fimm
mínútur aftur til baka breytir mjög
litlu,“ segir Arnþór.
Hann segir þó að honum finnist
þægilegt að vita af einhverjum á
hlaðinu og því ætla þau að nýta
gamalt timburhús, sem var flutt
að Refsstöðum frá Akureyri af
fyrri ábúenda, sem aðstöðu fyrir
vinnumann.
Öll pappírsvinna tvisvar
Aðspurð hvort þau mæli með því að
kaupa tvær jarðir, þá segja þau að
best væri að geta gengið frá öllum
kaupum í einu. Þar sem þau keyptu
fyrst Signýjarstaði og Refsstaði
tveimur árum síðar hafi þau þurft að
greiða tvisvar fyrir alla pappírsvinnu.
Á bak við það er mikill kostnaður.
Þegar þau voru að reikna
fjármögnunina á kaupunum á
jörðunum fengu þau Ráðgjafar-
miðstöð landbúnaðarins (RML)
til að reikna út rekstraráætlun,
enda gera bankar kröfu um slík
gögn. Þau eru nokkuð gagnrýnin á
ýmsar forsendur sem nýttar eru við
áætlunargerðina og var þeim ekki
breytt þrátt fyrir ábendingar þeirra.
Til að mynda gaf RML sér of háan
launakostnað að þeirra mati og of
lágt verð fyrir þjónustusamninginn
á mjaltaþjóninum.
Eftir að þau breyttu
rekstraráætluninni eftir sínum
forsendum gátu þau séð að dæmið
gengi vel upp í bæði skiptin.
Kalla eftir endurmenntun
Þau reikna ekki með því að
leggjast út í miklar framkvæmdir
og breytingar fyrst um sinn. Með
Refsstaðafjósinu fylgdi hins vegar
heilfóðurvagn sem þau myndu vilja
nýta. Arnþór nefnir að erfitt sé að
verða sér úti um þekkingu á útfærslu
slíkrar fóðrunar.
„Ef bændum byðist þátttaka
í áfanga um heilfóður í gegnum
Landbúnaðarháskólann þá myndi
ég hiklaust stökkva í hann,“ segir
Arnþór, en samkvæmt honum ættu
endurmenntunarnámskeið fyrir
bændur að vera fleiri.
vallarbraut.is S-4540050 vallarbraut@vallarbraut.is Trönuhrauni 5 220 Hafnarfirði
Mest selda dráttarvélin sl. 2 ár á Íslandi
SOLIS 26 beinskipt.
Verð: 1.620.000+vsk
Með ámoksturstækjum
Verð: 2.640.000+vsk
SOLIS 16 beinskipt.
Verð: 1.250.000+vsk
Með sláttuvél
Verð: 1.400.000+vsk
SOLIS 50
Verð: 4.950.000+vsk
Með ámoksturstækjum
Verð: 6.180.000+vsk
SOLIS 90
Verð: 5.695.000+vsk
Með ámoksturstækjum
Verð: 6.970.000+vsk
Ragnar Páll, fimm ára, er áhugasamur um bústörfin. Mynd / Einkaeign
„Ég er alinn upp í sveit og ég vil gefa börnunum mínum tækifæri á að alast líka upp í sveit,“ segir Arnþór frá
Signýjarstöðum. Mynd / Einkaeign