Bændablaðið - 06.10.2022, Síða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022
Hér á landi hefur menning
fyrir velferð dýra fest rætur, af
því megum við sem byggjum
þetta land vera stolt og leitumst
jafnframt við að gera sífellt betur.
Þar eru þeir sem
stunda blóðnytjar
af hrossum engin
undantekning.
Í umræðum um
atvinnugreinina
hefur athyglin
eðlilega beinst
mest að áhrifunum
á velferð hryssn-
anna sem í hlut
eiga og folalda þeirra. Í þeim
efnum hefur margt verið ofsagt
og því verið svarað en um sumt
hafa gagnrýnendur komið fram í
hlutverkinu; „sá er vinur sem til
vamms segir“ og hlutirnir verið
færðir til betri vegar.
Á málinu eru þó fleiri hliðar
sem vert er að gefa gaum. Ein
hliðin er sú að ef þær úrtöluraddir
sem voru sem háværastar hefðu
náð sínu fram myndu áhrifin hafa
orðið hvoru tveggja víðfeðm og
alvarleg. Fall atvinnugreinarinnar,
þ.e. að ef blóðnytjar af hrossum
hyrfu, myndi leiða til þess að
umtalsverðar gjaldeyristekjur
þjóðarbúsins töpuðust, fólk missti
atvinnu sína og tekjumissir bænda
yrði mikill, ekki síst í dreifbýlustu
sveitunum en þar er svigrúm til
stóðhalds sem þessa eðlilega mest.
Framleiðslan hefði jafnframt flust úr
landi og þá til landa þar sem kröfur
til dýravelferðar eru mikið minni
en okkar. Hver hefði grætt á því?
Svarið er einfalt; enginn hefði grætt,
hvorki menn né málleysingjar. Allir
hefðu hins vegar tapað! Höldum
því til haga í þessu sambandi, að
þó Ísland sé eyja umflotin sjó er
landið ekki eyland nema einungis í
þessari landfræðilegu merkingu, því
Ísland er hluti af hag- og vistkerfi
heimsins. Og blóðnytjar af hrossum,
allur iðnaðurinn sem þeim fylgja
og lokaafurðin hvað helst, hefur
hvoru tveggja grunnt vistspor og
gríðarmikinn vistvænan ábata.
Það sem hér er verið að vitna til
er sú staðreynd að starfsemi Ísteka
felst í að vinna með líftækni eCG
homónið úr blóðvökva hryssna.
Hagnýting hormónsins hefur afar
mikinn umhverfislegan ávinning
á heimsvísu, auk þess að bæta
bókstaflega velferð dýra og viðgang
þeirra þar sem það er notað. Þannig
má sýna fram á að hagnýting þess
sem Ísteka framleiðir árlega af
hormóninu og flytur út leiðir eitt og
sér, með samstillingu gangmála og
aukinnar frjósemi, til fóðursparnaðar
á korni í svínaeldinu sem nemur
rúmlega milljón tonnum árlega, sjá
álitsgerð fyrirtækisins sem lögð var
fram í vinnuferlinu við samningu
reglugerðar nr. 900/2022, um
blóðtöku úr fylfullum hryssum.
Gögnin eru öllum aðgengileg
í samráðsgátt. Þessi mikli
fóðursparnaður skiptir stórmáli en
keðja fóðurframleiðslunnar er löng
og dýr en afurðirnar eru vissulega
afar verðmætar. Veigamestu
hlekkirnir í fóðurframleiðslukeðjunni
eru eldneytis- og áburðarþörf við
framleiðsluna, þungaflutningar
á vegum úti og á sjó, unnar
vinnustundir o.fl.
Fleira skiptir vitaskuld máli
í framleiðsluferlinum en fóður-
kostnaðurinn einn, þó sparnaður þar
vegi eðlilega þungt. Við minnkaða
frjósemi myndi húsnæðis-, orku-
og hvers konar aðstöðukostnaður
aukast með tilheyrandi útgjöldum og
dýpra vistspori. Samstilling gyltna
með eCG leiðir einnig til minni
aldursdreifingar í grísahópunum sem
eru í uppeldi hverju sinni.
Það út af fyrir sig hefur mjög
jákvæð áhrif á umhirðu grísanna
og samskipti þeirra á milli vegna
minni átaka þar eð goggunarröðin
er jafnari sem aftur dregur úr halabiti
og fleiri neikvæðum þáttum, s.s.
notkun sýklalyfja og það svo aftur
færir betri og heilnæmari matvæli á
borð neytenda.
Það sem hér var rakið snertir
einvörðungu notkun eCG í
svínarækt en hormónið er notað
víðar, þar á meðal í sauðfjár-, geita-
og nautgriparækt. Þetta dæmi sýnir
þó skýrt að jákvæð áhrif notkunar
eCG á vistsporið í landbúnaði eru í
öllu tilliti risavaxin, það má því svo
sannarlega kalla eCG, hormónið
sem Ísteka framleiðir „grænu
sameindina“. Það er upprunnið
í grænum landbúnaði Íslands og
grænkar enn landbúnað víðsfjarri
Íslandsströndum, með að leggja
m.a. lóð á vogarskál baráttunnar
gegn loftslagsvánni.
Vistspor framleiðslunnar er
jafnframt lágt, hvort sem litið
er til grunnframleiðslunnar eða
úrvinnslunnar. Grunnframleiðsla
bænda hefur við tilkomu
blóðnytjanna sem Ísteka stendur að
og fer að verða hálfrar aldar gömul
atvinnugrein í landinu, breyst á
þann veg að hrossastóð sem áður
fyrr voru nær einvörðungu nýtt til
kjötframleiðslu eru nú til viðbótar
í blóðnytjum en vistsporið því
samfara bara aukist óverulega.
Ávinningurinn er því stór.
Jákvæð áhrif á vistspor hafa og
náðst í úrvinnslunni í verksmiðju
Ísteka í Reykjavík. Þar hefur tekist,
nú á umliðnum árum, að auka
nýtingu hráefna verulega og þar
með grynna vistsporið.
Í lokin er svo vert að minna á
þá staðreynd að græna sameindin
eCG hefur verið notuð með
árangursríkum hætti til að auka
frjósemi villtra dýra í viðkvæmri
stöðu gagngert til að draga úr hættu
á útdauða tegundanna.
Kristinn Hugason,
samskiptastjóri Ísteka.
LESENDARÝNI
Kristinn
Hugason.
0
5
10
15
20
25
30
Ársverðbólga í nokkrum löndum
Sept '22
Þann 30. september sl.
birti Eurostat niðurstöður
verðbólgumælinga í ESB í
september. Í fyrsta skipti mælist
verðbólga á evrusvæðinu með
tveggja stafa tölu, 10,0%.
Þetta er meiri
verðbólga en
spár hagfræðinga
sem Bloomberg
fréttaveitan leitaði
til gerðu ráð
fyrir, en miðgildi
þeirra reyndist
vera 9,7%.
Í Þýskalandi,
stærsta hagkerfi
Evrópu, hækkaði verð mun meira
en búist var við og er verðbólga þar
nú 10,9%. Eystrasaltslöndin þrjú
tróna á toppnum á evrusvæðinu en
verðbólga í þeim er yfir 22%, hæst
í Eistlandi. Þá vekur óneitanlega
athygli 17,1% verðbólga í Hollandi.
Þrátt fyrir sameiginlegan gjaldmiðil
er mikill munur á verðbólgu milli
landa sem öll eru þar að auki hluti
af innri markaði ESB.
Hvaða orsakir búa
að baki verðbólgunni?
Þegar litið er á helstu orsakir
verðbólgu á evrusvæðinu er 12
mánaða hækkun langmest á orku
sem hafði hækkað um heil 40,8% frá
því í september í fyrra. Næstmesta
hækkunin varð á matvöru og áfengi,
11,8%, en aðrir liðir hækka minna,
þó allir meira m.v. 12 mánaða
tímabil en mæling ágústmánaðar
sýndi. Engan þarf því að undra að
Evrópubúar kvíði komandi vetri
með slíkri hækkun á orkureikningi
sínum og engar batahorfur á því
sviði í sjónmáli.
Á sama tíma er verðbólga á
Íslandi á niðurleið og mældist 9,3%
í september. Hér á landi hækkaði
matur og drykkjarvörur um 8,4%
á 12 mánaða tímabili, rafmagn og
hiti um 7,1% og bensín og olíur
um 29,8%.
Þrýstingur á Seðlabanka Evrópu
um að hækka vexti hefur því enn
aukist en næsta vaxtaákvörðun
þar á bæ verður 27. október nk. og
búast sérfræðingar við 75 punkta
hækkun. Verðbólgumarkmiðið
er 2% en spár hníga að því að
verðbólga verði áfram mikil út árið.
OECD hefur einnig hækkað spá
sína um verðbólgu á evrusvæðinu
á næsta ári um 1,6 prósentustig í
6,2%. Vart þarf að orðlengja að
Ísland á mikið undir að efnahagur
í nágrannalöndum okkar, þar með
talið ESB, sé sterkur. Þetta eru okkar
helstu viðskiptalönd bæði fyrir
vöru og þjónustu, að ferðamanna-
þjónustu meðtalinni.
Staðan innan
Evrópusambandsins
Engum getur blandast hugur um að
ESB á nú við mikinn vanda að etja.
Margt hefur komið til. Í fyrsta
lagi hafði Covid-19 faraldurinn
gríðarleg áhrif. Hann truflaði
verulega flæði vinnuafls með
takmörkunum á landamærum og
dró úr virkni innri markaðarins
þegar hvert land valdi sín eigin
viðbrögð og reglur. Þannig sýndi
faraldurinn glöggt fram á að þegar
í harðbakkann slær treystir hver
þjóð á eigin þjóðaröryggishagsmuni
og eru ákvarðanir teknar á þeim
grundvelli en ekki samkvæmt
heildarhagsmunum ESB.
Í framhaldinu hefur sá veikleiki
ESB að reiða sig á óhindraðar
hnattrænar framboðskeðjur fyrir
lykilaðföng komið skýrt fram. Þetta
á ekki hvað síst við um orku- og
umhverfisstefnu ESB sem hefur
gert aðildarríkin mjög háð framboði
hráefna og orku frá öðrum ríkjum.
Önnur markaðssvæði glíma
við sambærilegar áskoranir, t.d.
Bandaríkin. Spenna í samskiptum
Bandaríkjanna og Kína hefur
nú þegar haft áhrif á ákvarðanir
stórfyrirtækja. Þannig hefur
Apple fyrirtækið ákveðið að hefja
framleiðslu á nýjum farsíma, iPhone
14, á Indlandi. Er þetta fyrsta raftæki
Apple sem framleitt er utan Kína í
nær tvo áratugi.
Staða Íslands í
alþjóðasamfélaginu
Þegar litið er á þann ólgusjó sem
leikur nú um ESB og raunar flest
ríki heims, má segja að Íslandi sé
að farnast tiltölulega vel. Hagkerfi
okkar hefur mikla sérstöðu, og
hagvaxtarhorfur eru fremur góðar.
Ísland á einnig í miklu samstarfi
í alþjóðasamfélaginu til dæmis á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna,
NATO, Norðurlandaráðs, Evrópu-
ráðsþingsins, Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar, EES, EFTA, auk
ótal tvíhliða samninga um viðskipti
og þróunarsamvinnu.
Landið trónir einnig í efstu
sætum á flestum alþjóðlegum
mælikvörðum um lífskjör. Í nýlegri
skýrslu Katrínar Ólafsdóttur
fyrir Þjóðhagsráð kemur fram
að kaupmáttaraukning hér á
landi er mikil á síðustu árum, en
þar segir m.a. „[e]f við horfum
eingöngu á tímabilið frá 2012
þá er kaupmáttaraukning á
Norðurlöndunum á bilinu 2-10%
samanborið við 57% á Íslandi.“
En veldur hver er á heldur, fram
undan er vetur hér á norðurhveli
jarðar. Kjarasamningagerð fer í hönd
á komandi mánuðum og fjárlög sem
marka bæði tekju- og útgjaldaramma
ríkisins eru til meðferðar fyrir
Alþingi. Mikið liggur við að vel
takist til svo viðhalda megi þeirri
stöðu sem tekist hefur að byggja upp
á undanförnum misserum.
Erna Bjarnadóttir,
hagfræðingur hjá
Mjólkursamsölunni
Verðbólga reynir á
hagkerfi Evrópu
Erna
Bjarnadóttir.
Jákvæð loftslagsáhrif
blóðnytja af hrossum
Og blóðnytjar af hrossum, allur iðnaður-
inn sem þeim fylgja og lokaafurðin hvað
helst, hefur hvoru tveggja grunnt vistspor
og gríðarmikinn vistvænan ábata.“
Mynd / ghp